Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Atli Ísleifsson skrifar 8. júlí 2026 12:46 Eigendur Plöntunnar tilkynntu um lokunina á samfélagsmiðlum í dag. Norræna húsið Eigendur Plöntunnar hafa ákveðið að loka kaffihúsi sínu í Norræna húsinu í lok mánaðarins. Frá þessu greina þau á Instagram í dag, en þau munu áfram starfrækja kaffihús Plöntunnar á Njálsgötu.
Eigendur Plöntunnar eru þau Hrafnhildur Gunnarsdóttir, Bernódus Óli Einarsson og Júlía Sif Liljudóttir. Í færslunni segjast þau mjög stolt af þeirri uppbyggingu sem hafi átt sér stað. Dæmið sé bara ekki alveg að ganga upp. „Þetta hefur gengið vel á eiginlega allan mælikvarða, nema fjárhagslega. Fólk, gestir hafa verið mjög ánægðir og við höfum fundið fyrir miklu þakklæti. Viðbrögðin hafa alltaf verið falleg en erfitt rekstrarumhverfi gerir það að verkum að þessi eining er ekki að ganga upp í Norræna húsinu.“ View this post on Instagram A post shared by P L A N T A N bístró (@plantanbistro) Þau segjast mjög þakklát starfsfólkinu sem hafi hlaupið með sér til að reyna að láta hlutina ganga. Þau segja hins vegar að Plantan sé ekkert á förum þar sem þau muni halda starfseminni áfram að Njálsgötu 64. „Við hlökkum til að vaxa þar.“ Leita að nýjum rekstraraðila Á Facebook-síðu Norræna hússins segir að eftir frábært samstarf kveðji Plantan Bistró Norræna húsið en muni halda áfram að taka á móti sínum góðu gestum á Njálsgötu. „Við erum innilega þakklát fyrir þeirra nærveru, hlýju og fagmennsku hér í húsinu og óskum þeim góðs gengis. Lokadagur Plöntunnar hér í Norræna húsinu er 31. júlí og við hvetjum gesti til að nýta tímann vel og njóta. Nýr kafli hefst og Norræna húsið leitar nú að metnaðarfullum og traustum samstarfsaðila til að reka veitingastarfsemi í húsinu og sjá um veitingar í viðburðum. Norræna húsið er lifandi menningarvettvangur sem leggur mikla áherslu á sjálfbærni og inngildingu og er þetta kjörið tækifæri fyrir þá sem hafa áhuga á að skapa hlýlegt, skapandi og spennandi rými fyrir gesti í samvinnu við starfsfólk Norræna hússins,“ segir í tilkynningunni.
Veitingastaðir Reykjavík Mest lesið Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Viðskipti innlent Sektir Neytendastofu á bílastæðafyrirtækin „dropi í hafið“ Neytendur Von á hóflegum hagvexti næstu árin Viðskipti innlent Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Viðskipti innlent Rikka hætt hjá Ólafi Ragnari Viðskipti innlent Farþegum fækkaði milli ára Viðskipti innlent Innkalla te sem innihélt ál Neytendur Starfsfólk lagt inn á spítala með AI-geðrof Atvinnulíf Fundu vinningsmiðann eftir tveggja daga leit í rusli Viðskipti erlent Kushner og Sádar ljúka skuldsettri yfirtöku á Electronic Arts Viðskipti erlent Fleiri fréttir Fer frá laxeldi í eldri borgara Farþegum fækkaði milli ára Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Von á hóflegum hagvexti næstu árin Ingibjörg og Tómas taka við af Þórunni hjá Úrval Útsýn Rikka hætt hjá Ólafi Ragnari Eykur strandveiðikvótann um 964 tonn Þórunn stígur til hliðar hjá Úrvali Útsýn Gistinóttum á hótelum fækkaði milli ára Opna þriðju verslunina í Kaupmannahöfn Oculis tekur kipp í örviðskiptum eftir tilkynningu Fyrrverandi forstjóri Play í landeldið Framkvæmdastjórinn heldur frídag verslunarmanna heilagan Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Tvírukkaðar færslur leiðréttar Niceair horfir til Evrópu eftir brösuga byrjun Ekki erfitt að skila hagnaði í gósentíð hávaxtaumhverfis Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Rúmlega fimmtán milljarða hagnaður Rúmlega sex hundruð milljónir í starfsmannabónusa Samkeppniseftirlitið leggur blessun sína yfir samruna Brims og Lýsis Bæta við sex nýjum Airbus-vélum María Fjóla lætur af störfum hjá Hrafnistu Fyrsta apótek Víkur opnað Skuldir hækka og afkomuspá lækkar Stóru fyrirtækin geti jafnvel orðið öflugri innan ESB Steingrímur kaupir fyrir 51 milljón króna í Heimum „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Sjá meira