Hamas byrjar að sleppa tökunum á Gasa Kjartan Kjartansson skrifar 7. júlí 2026 07:37 Ismail al-Thawabta, yfirmaður upplýsingamála hjá Hamas á Gasaströndinni, kynnti ákvörðun samtakanna um að gefa eftir völdin þar í morgun. AP/Jehad Alshrafi Starfsstjórn sem nýtur stuðnings Sameinuðu þjóðanna tekur við völdum á Gasa eftir að hryðjuverkasamtökin Hamas leystu upp stjórn sína þar í dag. Samtökin hafa þó ekki sagt hvort þau ætli að afvopnast eða leyfa alþjóðlegu friðargæsluliði að taka við öryggismálum þar.
Vopnahléssamkomulag sem Bandaríkjastjórn hafði milligöngu um fyrir níu mánuðum gerir ráð fyrir að starfsstjórnin fái yfirráð yfir öllum vopnum á Gasa. Svokallað friðarráð sem Donald Trump Bandaríkjaforseti seldi aðgang að sagðist meðvitað um tilkynningu Hamas í dag en það ætlaði að bíða og sjá hverjar efndir samtakanna yrðu. Talsmaður Hamas sagði á blaðamannafundi að aðeins opinberir starfsmenn yrðu áfram í störfum sínum til þess að sinna daglegum rekstri palestínska landsvæðisins. Þeir væru allir biðnir og búnir að vinna fyrir nýju starfsstjórnina. Fyrstu viðbrögð ísraelsku ríkisstjórnarinnar voru neikvæð. Gideon Saar, utanríkisráðherra, sagði brotthvarf Hamas úr stjórn Gasa aðeins gert til þess að samtökin komist hjá því að afvopnast. „Svo lengi sem Hamas heldur fast í vopnin fer borgaraleg stjórn auðvitað eftir því sem Hamas skipar fyrir um,“ skrifaði hann á samfélagsmiðli. Hamassamtökin hafa ekki viljað ljá máls á því að afvopnast fyrr en eftir að fyrsta áfanga friðarsamkomulagsins hefur verið hrint í framkvæmd. Annar áfangi áætlunarinnar gerir ráð fyrir afvopnun samtakanna og endurbyggingu Gasa eftir árásir Ísraela sem hófust eftir hryðjuverkaárás Hamas 7. október árið 2023.
Palestína Ísrael Átök í Ísrael og Palestínu Mest lesið Réðust á fleiri olíuflutningaskip Erlent Töluðu saman í klukkutíma Erlent Segir þörf á samheldni innan „evrópsku fjölskyldunnar“ Innlent Aðeins um 28 prósent innflytjenda með grunnfærni í lesskilningi Innlent „Við getum verið að fara inn í alveg ískaldan vetur“ Innlent „Það kostar peninga að afla peninga“ Innlent Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna Innlent Skutu tugum eldflauga og dróna að borgum Sádi-Arabíu Erlent „Við erum að búa til samfélag hálfvita“ Innlent Ekki þurfi mikið til að EES-samningurinn rakni upp Innlent Fleiri fréttir Réðust á fleiri olíuflutningaskip Skutu tugum eldflauga og dróna að borgum Sádi-Arabíu Töluðu saman í klukkutíma Handtaka grunaðan spellvirkja í Þýskalandi Fordæma útförina sem „Slátrarinn“ fékk í Serbíu Grípa saman til aðgerða gegn ísraelskum landtökumönnum Allir þeir látnu í bílum sem flugvélin rann á Dýrmætum listaverkum stolið af safni Renoir Starfsmenn í verkfall eftir heimsókn trúarhóps Kim fjölgar herskipum sínum Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Klerkastjórnin missir tökin Rússar svara fyrir sig Ísland á Ameríkukorti Trumps Stöðnun og dýrtíð að baki stórsigri AfD Kanslarinn segir sigur AfD draga dilk á eftir sér Svíþjóðardemókrati í leyfi vegna Rússaáróðurs og hreinsanir á vinstri vængnum Útlit fyrir fyrstu fjarhægristjórnina frá endalokum nasismans Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Ýmislegt bendi til stjórnarskipta í Svíþjóð Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Útgönguspár benda til stórsigurs AfD Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Mætt til Grænlands með pyngju fulla af peningum Gengið til tímamótakosninga í Þýskalandi Funda um framgang stríðsins: „Þeir eru á ómögulega slæmum stað“ Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Bandaríkjaher gerði árásir á þrjú írönsk skip Lögreglan í Kaupmannahöfn stendur í ströngu Sjá meira