Níutíu ár af sameiginlegu öryggi Ragnar Þór Ingólfsson skrifar 3. júlí 2026 15:32 Hvað gerist þegar manneskja veikist, missir starfsgetuna eða nær þeim aldri að hún getur ekki lengur treyst á atvinnutekjur til að framfleyta sér? Í dag finnst flestum líklega sjálfsagt að samfélagið standi með fólki við slíkar aðstæður en þannig hefur það ekki alltaf verið. Í ár eru 90 ár liðin frá því að lög um alþýðutryggingar tóku gildi á Íslandi og Tryggingastofnun ríkisins hóf starfsemi sína. Árið 1936 var stigið eitt stærsta skref í sögu velferðarsamfélagsins hér á landi þegar grunnur var lagður að því öryggisneti sem við þekkjum í dag sem almannatryggingar. Þegar þessu tímamótakerfi var hleypt af stokkunum bjuggu rétt ríflega 100.000 manns á Íslandi. Heimskreppan hafði skilið eftir sig djúp spor. Atvinnuleysi og efnahagsörðugleikar voru verulegir og framtíð margra var óviss. Mikil þörf var á sameiginlegum úrræðum til að styðja við þau sem áttu erfitt með framfærslu og höfðu lent í áföllum. Lögin fólu í sér slysatryggingar, sjúkratryggingar, elli- og örorkutryggingar og atvinnuleysistryggingar. Með þeim var lagður grunnur að kerfi til að tryggja fólki aðstoð og öryggi við veikindi, slys, örorku og þegar aldurinn færðist yfir. Tíu árum fyrr höfðu lög verið sett um slysatryggingar ríkisins sem mörkuðu fyrstu skrefin í þessa átt. Alþýðutryggingalögin sameinuðu hins vegar ólíkar tryggingar undir einum hatti og hafa verið nefnd sem einn af mikilvægustu áföngunum í sögu íslenskrar félagsmálalöggjafar. Að tryggja fólki stuðning þegar á reynir Á næstu áratugum þróaðist kerfið í takt við samfélagið. Lögunum var breytt, réttindi voru aukin og nýjar stofnanir urðu til. Heitið alþýðutryggingar vék fyrir heitinu almannatryggingar sem lýsir betur þeirri hugsun að tryggingarnar séu fyrir alla landsmenn. Verkefni sem áður voru á einni hendi færðust með tímanum yfir til sérhæfðra stofnana, meðal annars á sviði atvinnumála og sjúkratrygginga. Grunnhugsunin hefur þó haldist sú sama í 90 ár: Að tryggja fólki stuðning þegar á reynir. Það er auðvelt að líta á almannatryggingar sem sjálfsagðar og fæst leiðum við líklega hugann að kerfinu fyrr en við þurfum sjálf á því að halda eða sjáum mikilvægi þess í gegnum vini og vandamenn. En á hverjum degi snerta almannatryggingar fólk um land allt. Í gegnum almannatryggingakerfið fær fatlað fólk, fólk sem misst hefur starfsgetu vegna veikinda eða slysa og fólk í endurhæfingu mikilvægan stuðning. Eldra fólk fær lífeyrisgreiðslur og foreldrar langveikra eða alvarlega fatlaðra barna geta fengið umönnunar- og foreldragreiðslur. Kerfið kemur sömuleiðis að greiðsluþátttöku vegna heilbrigðisþjónustu, lyfja og annarrar þjónustu. Svona mætti áfram telja. Allt byggir þetta á þeirri hugmynd að samfélagið beri sameiginlega ábyrgð þegar fólk stendur frammi fyrir veikindum, slysum, örorku eða kemst á aldur. Tímamótanna minnst Það var ekki sjálfgefið á sínum tíma að fámenn þjóð sem glímdi við afleiðingar heimskreppunnar legði í jafn metnaðarfulla uppbyggingu á félagslegu öryggisneti og raun bar vitni. Því er sannarlega tilefni til að staldra við nú þegar 90 ár eru liðin. Það er ánægjulegt að vera í forsvari fyrir félags- og húsnæðismálaráðuneytið á þessum tímamótum og taka þátt í að minnast upphafs almannatryggingalöggjafarinnar á Íslandi. Þann 30. september verður haldin ráðstefna þar sem litið verður yfir sögu, þróun og framtíð almannatrygginga á Íslandi, auk þess sem frekari greinar og umfjöllun munu birtast á opinberum vettvangi. Við stöndum enn á þeim grunni sem lagður var fyrir 90 árum. Grunni sem byggir á samstöðu og þeirri einföldu en mikilvægu hugsun að tryggja að til staðar sé sameiginlegt öryggisnet fyrir okkur öll. Höfundur er félags- og húsnæðismálaráðherra. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ragnar Þór Ingólfsson Tryggingar Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar