Ferðaþjónustan er ekki endalaus tekjulind fyrir ríkissjóð Björn Ragnarsson skrifar 2. júlí 2026 15:32 Árið sem nú er hálfnað hefur haldið áfram að skapa óvissu í rekstri fyrirtækja. Stríðsástand í Mið-Austurlöndum hefur hækkað eldsneytisverð og haft áhrif á ferðavilja fólks. Hér heima hefur ólga verið í kringum flugfélag okkar landsmanna, verðbólga er í hæstu hæðum, vextir sliga bæði fólk og fyrirtæki en samt heldur ríkisstjórnin áfram að boða skattahækkanir. Óvissan þrengir að rekstri fyrirtækja Ég er í forsvari fyrir eitt af stærri ferðaþjónustufyrirtækjum landsins og er ábyrgur fyrir rekstri þess gagnvart eigendum og starfsfólki. Mín ábyrgð er að rekstur þess gangi upp og að þjónustan sé til fyrirmyndar. Það ástand sem við búum við um þessar mundir gerir það að verkum að við höldum að okkur höndum í vöruþróun, drögum úr umsvifum í rekstri og hættum þjónustu sem ekki er arðbær. Við höfum þurft að fækka starfsfólki, færa störf úr landi og finna leiðir til að hagræða í rekstri þar sem erfitt hefur verið að hækka verð á þjónustu vegna versnandi samkeppnisstöðu Íslands. Skattahækkanir veikja samkeppnisstöðu Íslands Síðustu misseri hafa stjórnvöld hækkað skatta enn frekar á ferðaþjónustuna með hækkun vörugjalda á bíla, upptöku kílómetragjalds sem hækkar verð á bílaleigubílum, hækkun gistináttaskatts og hækkun skatta á farþega skemmtiferðaskipa. Ferðaþjónustan skilar um 200 milljarða skatttekjum til hins opinbera en það virðist ekki duga til og nú boða stjórnvöld bæði náttúru- og innviðagjald á ferðamenn og hækkun virðisaukaskatts á baðlón. Þó að nú sé hápunktur í ferðaþjónustu og ferðamenn flykkist til landsins þá erum við líka að undirbúa okkur fyrir komandi vetur. Við höfum tilkynnt starfsfólki okkar um lokun á rekstrareiningum úti á landi, dregið verður úr framboði og fólki fækkað. Þetta gerum við vegna óvissu í umhverfinu og reynslu af síðasta vetri þar sem við sáum árstíðarsveiflu aukast á ný. Þrátt fyrir að hafa ítrekað farið yfir þessa stöðu með stjórnvöldum þá virðast þau ekki hafa áhuga á að hlusta nema að litlu leyti. Nýlega tilkynntu stjórnvöld löngu tímabært framlag til markaðssetningar á landinu en því miður er svo unnið beinlínis gegn þeirri mikilvægu vinnu með skattahækkunum, og það þegar ferðaþjónustan er þegar búin að bakka langt inn á eigin vallarhelming. Sýnið aðhald í rekstri ríkisins í stað þess að auka álögur á atvinnulíf. Stjórnvöld þurfa að horfast í augu við þessa stöðu. Það er ekki hægt að tala um verðmætasköpun, byggðafestu og öfluga ferðaþjónustu á sama tíma og sífellt er bætt á greinina nýjum gjöldum, nýjum sköttum og aukinni óvissu. Nýr meirihluti tók við í borginni nýverið og hafa þau þegar hafist handa við að spara í rekstri borgarinnar svo að um munar. Það er greinilegt að ríkisstjórnin treystir sér ekki til að ráðast á ríkisbáknið með sama hætti, en slíkt aðhald, agi og ábyrgð er það sem við sem stöndum í fyrirtækjarekstri þurfum að sinna alla daga. Skilaboð okkar sem rekum ferðaþjónustufyrirtæki til ríkisstjórnarinnar eru skýr: Hættið að líta á ferðaþjónustuna sem takmarkalausan tekjustofn og botnlausa auðlind. Hættið að vinna gegn verðmætasköpun í greininni með endalausum skattahækkunum, tryggið fyrirsjáanleika í rekstrarumhverfinu og ráðist sjálf í raunverulegt aðhald í ríkisrekstrinum áður en þið leggið enn meiri byrði á þau fyrirtæki sem skapa störfin og útflutningsverðmætin. Höfundur er forstjóri Icelandia. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ferðaþjónusta Mest lesið Maðurinn sem treysti þjóðinni, en ekki lengur Halldór Jörgen Olesen Skoðun Töpum við fullveldinu ef við göngum í ESB? Gunnar Ármannsson Skoðun UT-mál Reykjavíkurborgar Haukur Arnþórsson Skoðun Samningurinn sem allir hafa lesið Skoðun Var þetta sýndarsamráð? Sigurborg Kr. Hannesdóttir Skoðun Hræðslubandalag elítunnar í fílabeinsturninum Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Prófessorinn, hagfræðingurinn og fullveldið Gunnar Ármannsson Skoðun Er Ísland tilbúið fyrir dánaraðstoð? Ingrid Kuhlman Skoðun Ferðaþjónustan er ekki endalaus tekjulind fyrir ríkissjóð Björn Ragnarsson Skoðun Þegar allt verður forgangsmál Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Skoðun Skoðun Hef trú á Arnari Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Börn eiga ekki að bíða meðan kerfið rífst Guðmundur Ármann skrifar Skoðun Júlí - mánuður fötlunarstolts Freyja Haraldsdóttir ,Jana Birta Björnsdóttir skrifar Skoðun Níutíu ár af sameiginlegu öryggi Ragnar Þór Ingólfsson skrifar Skoðun Var þetta sýndarsamráð? Sigurborg Kr. Hannesdóttir skrifar Skoðun Hvað vitum við í ágúst? Staðreyndir og möguleikar Íslands Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Töpum við fullveldinu ef við göngum í ESB? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Samningurinn sem allir hafa lesið skrifar Skoðun UT-mál Reykjavíkurborgar Haukur Arnþórsson skrifar Skoðun Er Ísland tilbúið fyrir dánaraðstoð? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Þolendur sem vitni í eigin málum Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Maðurinn sem treysti þjóðinni, en ekki lengur Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Mælanlegt sjálfstæði þjóðar Sigurður Friðleifsson skrifar Skoðun Af hverju er netöryggisfræðsla grunninnviður? Margrét Valgerður Helgadóttir skrifar Skoðun Ferðaþjónustan er ekki endalaus tekjulind fyrir ríkissjóð Björn Ragnarsson skrifar Skoðun Hlustum á börn – líka þegar þau eru ósammála okkur Tótla I. Sæmundsdóttir skrifar Skoðun Stærsta hópverkefni Íslands Einar Örn Einarsson skrifar Skoðun Úr gráu yfir í grænt með hjálp 50.000 trjáa Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er Ísland að undirbúa nemendur fyrir framtíðina? Íris Þóra Birgisdóttir skrifar Skoðun Laugavegur 1: Húsvernd á villigötum Þórður Magnússon skrifar Skoðun Hræðslubandalag elítunnar í fílabeinsturninum Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Mikilvægi Fjarðarheiðarganga Steinar Björgvinsson skrifar Skoðun Prófessorinn, hagfræðingurinn og fullveldið Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Varnarsamningurinn og fullveldið Jóhannes Hraunfjörð Karlsson skrifar Skoðun Já, áfram Ísland! Óli Rúnar Ástþórsson skrifar Skoðun Þegar allt verður forgangsmál Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Sjálfstætt Grænland hefði bæði víðtækari rétt og meiri möguleika en Ísland innan ESB Júlíus Valsson skrifar Skoðun Takk, en NEI takk Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Reyndi að hindra að Ísland nyti réttlætis Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Upptaka evru áhættusöm fyrir lítil hagkerfi Kristinn Sv. Helgason skrifar Sjá meira
Skoðun Sjálfstætt Grænland hefði bæði víðtækari rétt og meiri möguleika en Ísland innan ESB Júlíus Valsson skrifar