Úr gráu yfir í grænt með hjálp 50.000 trjáa Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar 2. júlí 2026 14:01 Trjágróður er ómissandi hluti af fallegu og heilnæmu borgarlandslagi. Borgir þar sem falleg tré fá að njóta sín eru hrífandi borgir sem flestum þykja fallegar. „Gróið hverfi“ er eftirsóknarvert umhverfi meðal flestra. Fjölbreyttur trjágróður er hinsvegar ekki eingöngu fallegur því hann þjónar margvíslegum öðrum tilgangi. Trjágróður bindur kolefni og svifryk, veitir skjól gegn vindi, veitir betri hljóðvist, eykur líffræðilegan fjölbreytileika, bindur regnvatn og veitir fuglum og skordýrum búsvæði. Fólk sækir í borgarskóga til að njóta útivistar og rannsóknir sýna að trjágróður hefur stórkostlega jákvæð áhrif á bæði líkamlega og andlega heilsu fólks. 3 - 30 - 300 Samkvæmt 3 - 30 - 300 reglunni ættu allir borgarbúar að geta séð þrjú stór tré frá glugganum þar sem þeir eyða mestum tíma, það ætti að vera minnst 30% laufþekja[1] í hverju hverfi og ekki lengra en 300 metrar í næsta græna almenningsrými. Sem betur fer eru flestir farnir að hafa 3 - 30 - 300 regluna til hliðsjónar við skipulag nýrra hverfa en þessar hugmyndir eru tiltölulega nýtilkomnar. Í Reykjavík eru endalaus tækifæri til að planta fleiri trjám, sérstaklega í nýjum hverfum þar sem náttúran hefur vikið fyrir byggð. Auðvitað þarf að finna þeim góðan stað og tryggja að það sé auðvelt að sinna þeim - en við vitum það flest, sem búum í höfuðborginni, að á mörgum stöðum mætti bæta í. Viðreisn stendur við kosningaloforðin Við í Viðreisn í Reykjavík lofuðum eftirfarandi í kosningabaráttunni: „Við viljum stórauka gróður í borginni og ætlum við að planta 50 þúsund trjáplöntum af ýmsum tegundum á kjörtímabilinu, sérstaklega þar sem þétting hefur verið mikil og græn svæði hafa vikið fyrir byggð”. Við stöndum við stóru orðin og síðastliðin miðvikudag var samþykkt einróma í Umhverfis- og skipulagsráði að fela sviðinu að koma með tillögu að því hvernig best væri að planta 50.000 trjáplöntum í borgarlandinu. Við ætlum að gera tilraunir með að planta berjarunnum og ávaxtatrjám og leyfa þannig borgarbúum að tína ber og ávexti. Allir með Við viljum þátttöku borgarbúa í verkefninu með aðkomu til dæmis Skógræktar Reykjavíkur, vinnuskólans og leik- og grunnskóla. Verkefnið má svo samhliða nýta í fræðslu um umhverfismál og landgræðslu. Upp kom sú hugmynd á fundi umhverfis- og skipulagsráðs að jafnvel mætti leyfa fólki eða stofnunum að taka að sér tré sem þau hafa plantað og sjá um þau til framtíðar. Með því að gróðursetja mishá og fjölbreytt tré í Reykjavík þar sem tekið er mið af aðstæðum hverju sinni og tryggt að trjágróðurinn njóti sín yfir allar árstíðir getum við skapað betra líf fyrir núverandi íbúa og framtíðarkynslóðir. Tré eru ekki bara falleg – þau eru lykill að bættum loftgæðum, vellíðan og fjölbreytni.Næst þegar þú gengur um borgina, reyndu að taka eftir trjánum í kringum þig – þau eru með okkur borgarbúum í liði. Höfundur er umhverfisfræðingur og varaborgarfulltrúi Viðreisnar [1] Laufþekja er hversu stórt hlutfall ákveðins svæðis er þakið laufum trjáa ef svæðið er skoðað úr lofti. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Tré Margrét Rós Sigurjónsdóttir Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar