Komið með skólabörnin í heimsókn á gamla leikskólann Elína Hallgrímsdóttir skrifar 1. júlí 2026 22:01 Í 5 ár eyðir barn meirihluta vökutíma síns á leikskólanum. Afstæði tímans gerir það að verkum, eins og við vitum, að 5 ár í lífi barns eru töluvert lengri en 5 ár í lífi fullorðins einstaklings. Þess vegna má reikna með því að þegar barnið á að kveðja stofnunina er það að kveðja stóran, mikilvægan og dýrmætan part úr litlu lífi þess. Við fullorðna fólkið hugsum um áfangann sem þann fyrsta, þann fyrsta af fjölmörgum sem barnið á eftir að ganga í gegnum á lífsleiðinni. En í heimi barnsins er þetta eini áfanginn. Fullorðna fólkið virðist gleyma því að barnið hefur ekki víðsýnina sem þau fullorðnu hafa öðlast, einungis með því að hafa upplifað fleiri ár og þar af leiðandi fleiri áfanga. Barnið er að kveðja hitt heimilið sitt. Heimili þar sem það hefur vaxið og þroskast. Heimili sem hefur mótað það. Barnið er að kveðja vini og fólk sem þykir vænt um það. Barnið er að kveðja stað sem það þekkir í þaula; hvern krók og kima, hvern felustað. Stað lærdóms. Stað leiks og hamingju. Öskurs og gráturs. Faðmlaga og söngva. Síðan er þessi merka veröld kvödd. Sum börn fara í skóla í öðru hverfi og koma aldrei aftur. Sum fara í skóla í sama hverfi og koma aldrei aftur. Fæst koma aftur í heimsókn. Leikskólaslit eiga ekki að vera dauði þess áfanga. Þau eiga að flæða inn í næsta áfanga og vera enn til staðar þegar litið er til baka. Leikskólaheimurinn lifir á sínum stað þó svo skólabarnið sé komið á næsta stig. Ég hvet ykkur til að koma með skólabörnin í heimsókn. Á móti þeim tekur fólk sem bíður spennt eftir því að fá að vita hvernig gengur í nýja skólanum. Sem í allri einlægni hefur áhuga á því að sjá hvernig barninu líður. Ég þekki engan kennara sem yrði ekki glaður að fá „gamlan“ nemanda í heimsókn, í smá knús. Hugsanlega eru enn góðir vinir sem eiga eftir að klára leikskólaáfangann þarna - þarna í gamla lífinu. Leikskólinn gerðist. Kennum börnunum okkar að heiðra áfangann sem mótaði fyrstu ár lífs þeirra. Tengjum saman áfangana sem við þræðum í gegnum lífið svo úr verði heild upplifana sem hefur áhrif á það hvernig manneskjur við verðum. Tengjum heimilin saman. Búum til skilning hjá börnunum um hvað skiptir máli í lífinu, hvað mótar okkur. Allt hefur áhrif. Öll upplifun, tíma eytt og deilt hefur áhrif. Það byrjar strax. Þetta er nefnilega svolítið merkilegur tími, þessi ár í ævintýrinu sem leikskólagangan er. Höfundur er kennaramenntaður leikskólakennari Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skóla- og menntamál Leikskólar Grunnskólar Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar