Hvað varð um planið? Pétur Óskarsson skrifar 29. júní 2026 15:02 Í aðdraganda síðustu alþingiskosninga lýsti formaður Samfylkingarinnar, Kristrún Frostadóttir, áætlun um að ná niður vöxtum og verðbólgu og metnaðarfullri sýn um framtíðarlandið Ísland, aukna verðmætasköpun, sterkari innviði og meiri lífsgæði. Áætlun þessa kallaði hún „Planið“ og við myndun núverandi ríkisstjórnar var planið lagt fram hvað varðaði ferðaþjónustuna. Koma átti á náttúru- og innviðagjald fyrir heimsóknir gesta á ferðamannastaði í eigu ríkisins en á sama tíma var sérstaklega tilkynnt að virðisaukaskattur á ferðaþjónustugreinar ekki yrði hækkaður. Í atvinnustefnu stjórnvalda var sama upp á teningnum, innheimta skyldi náttúru- og innviðagjald, einfalda regluverk, hefja almenna markaðssetningu á landinu, skilvirkari stjórnsýslu og setja lög og reglur um innheimtu einkaaðila við náttúruperlur. Íslensk ferðaþjónusta er í grjótharðri alþjóðlegri samkeppni og þess vegna er engin ánægja innan greinarinnar með auknar álögur á gestina okkar. Við ákváðum samt að hefja samtal við nýja ríkisstjórn um útfærslu og innleiðingu á sanngjörnu náttúru- og innviðagjaldi. Boltinn í því máli er nú hjá stjórnvöldum. En hvað svo … ? Ríkisstjórnin hefur verið við völd í 18 mánuði og allir sjá að efnahagsmálin hafa ekki gengið sérstaklega vel. Í viðtali á Sýn á dögunum skýrði forsætisráðherra stöðuna og vísaði m.a. til mikilvægi hagvaxtargetu samfélagsins sem byggði m.a. á orkumálum en lét hjá liggja að nefna þau tækifæri sem liggja í íslenskri ferðaþjónustu. Þess í stað tiltók hún skattlagningaráform á greinina, bæði náttúru- og innviðagjaldið og nýjar hugmyndir um að hækka virðisaukaskatt á baðlónin sem eru eitt okkar sterkasta samkeppnisforskot og skýr sérstaða í alþjóðlegri samkeppni um ferðamenn. En Kristrún … þetta var nú ekki planið, var það? Ef það er ekkert plan lengur, hvað þá? Hvað er þá í gangi núna? Við í ferðaþjónustunni höfum margoft bent á að hækkun virðisaukaskatts eykur ekki skatttekjur ríkisins. Fyrir því höfum við fært rök, m.a. með skýrslum færustu sérfræðinga og reynslu frá öðrum löndum. Forsætisráðherra benti á að hagvöxtur á mann hefði verið lítill undanfarin ár, en einmitt þessi sömu ár hefur ferðaþjónustan ekki vaxið neitt þrátt fyrir miklar fjárfestingar í innviðum hennar á sama tíma um land allt. Það þarf ekki að horfa lengi á þessar staðreyndir til að sjá í þeim samhengi. Ferðaþjónustan hefur síðustu ár starfað við versnandi samkeppnisskilyrði. Sterk króna, hraður kostnaðarvöxtur og sífellt hærri álögur hafa gert Ísland dýrara en helstu samkeppnislönd, sem er ein helsta ástæða þess að vöxtur greinarinnar hefur verið minni en ella. Það er augljós staðreynd að versnandi samkeppnishæfni stærstu útflutningsgreinar landsins hefur bein áhrif á bæði hagvöxt og ríkisfjármálin. Það er jafn augljóst að lausnin á þeirri áskorun er ekki að hækka skatta enn frekar. Það mun aðeins draga enn meira úr samkeppnishæfni og þar með úr verðmætasköpun. Stækkum kökuna fyrir alla Það er ástæða til að hrósa atvinnuvegaráðherra og fjármálaráðherra fyrir að taka ákvörðun um að verja nú fjármagni í aukna markaðssetningu Íslands sem áfangastaðar fyrir ferðamenn. Slík fjárfesting er þjóðhagslega skynsamleg. Reynslan sýnir að slíkt markaðsstarf skilar auknum gjaldeyristekjum, meiri verðmætasköpun og hærri skatttekjum fyrir ríkissjóð. Þriðjungur allra gjaldeyristekna sem þannig verða til enda í vasa hins opinbera sem skatttekjur. Þannig stækkum við kökuna í stað þess að skipta sífellt minni köku. Þannig aukast skatttekjur ríkisins af ferðaþjónustu án þess að skatthlutföll hækki eða nýir skattar séu lagðir á. Þetta er bæði vel þekkt hagfræði og vel rökstudd af reynslu Íslands og annarra Evrópuþjóða. Samstarf um sókn skilar meiri árangri en skattahækkanir Við hjá Samtökum ferðaþjónustunnar viljum gjarnan vinna með stjórnvöldum að lausnum sem styrkja bæði ríkissjóð, ferðaþjónustuna og íslenskt samfélag. Ferðaþjónustan hefur sýnt að hún getur skapað gríðarleg verðmæti fyrir þjóðarbúið þegar rekstrarumhverfið er samkeppnishæft og fyrirsjáanlegt. Ríkisstjórnin hefur sjálf sett sér atvinnustefnu sem byggir á aukinni verðmætasköpun, meiri útflutningi, sterkari samkeppnishæfni og aukinni fjárfestingu, og það eru markmið sem við styðjum heilshugar. En þá verða aðgerðir ríkisstjórnarinnar líka að endurspegla þá stefnu. Ef ríkisstjórnin trúir á eigin atvinnustefnu á hún að styðja við útflutningsgrein sem skapar verðmæti um allt land, halda sig við planið og ekki veikja samkeppnisstöðu hennar með illa ígrunduðum skattahækkunum. Höfundur er formaður Samtaka ferðaþjónustunnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Pétur Óskarsson Ferðaþjónusta Mest lesið Afnemum verðtrygginguna - skref fyrir skref Lilja Björk Einarsdóttir Skoðun Forgangsröðun í átök eða efnahagsaðgerðir? Jón Ferdinand Estherarson Skoðun „Mamma, af hverju viltu láta sprengja Ísland?“ Bryndís Matthíasdóttir Skoðun Hvernig á kynlíf að vera? Eva Pandora Baldursdóttir Skoðun Eru stjórnvöld bundin af niðurstöðu óréttmætrar þjóðaratkvæðagreiðslu? Haukur Arnþórsson Skoðun Ný komugjöld: Aukinn kostnaður sjúklinga, sparnaður ríkisins Gunnlaugur Briem Skoðun Hin drepleiðinlega Bókun 35 Helgi Hrafn Gunnarsson Skoðun Lok kosninga Ingibjörg Gunnlaugsdóttir Skoðun Pólitísk ábyrgð hlýtur að hafa afleiðingar Erna Bjarnadóttir Skoðun Framtíð lýðveldisins Íslands Snorri Sturluson Skoðun Skoðun Skoðun Opið bréf Ásta María H Jensen skrifar Skoðun Sjálfbær rekstur eða niðurgreiddur – hvort er lúxus, Daði? Hilmar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Lok kosninga Ingibjörg Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Afnemum verðtrygginguna - skref fyrir skref Lilja Björk Einarsdóttir skrifar Skoðun Forgangsröðun í átök eða efnahagsaðgerðir? Jón Ferdinand Estherarson skrifar Skoðun Ný komugjöld: Aukinn kostnaður sjúklinga, sparnaður ríkisins Gunnlaugur Briem skrifar Skoðun Stjórnmálin verða að svara þeim sem minnst hafa Björn Snæbjörnsson skrifar Skoðun Framtíð lýðveldisins Íslands Snorri Sturluson skrifar Skoðun Eru stjórnvöld bundin af niðurstöðu óréttmætrar þjóðaratkvæðagreiðslu? Haukur Arnþórsson skrifar Skoðun Hvernig á kynlíf að vera? Eva Pandora Baldursdóttir skrifar Skoðun Hver á að leggja símann frá sér? Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun „Mamma, af hverju viltu láta sprengja Ísland?“ Bryndís Matthíasdóttir skrifar Skoðun Félagsmiðstöðvar eru haldreipi margra barna Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Eigum við að borga það? Gréta Ingþórsdóttir skrifar Skoðun Hafa íslensku lífeyrissjóðirnir staðið sig nógu vel? Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Pólitísk ábyrgð hlýtur að hafa afleiðingar Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar Alþingi er beygt í duftið Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Sammála – leggjum þjóðinni ekki orð í munn Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Goðarnir fóru aldrei – þeir skiptu bara um nafn Ragnar Thorarensen skrifar Skoðun Hin drepleiðinlega Bókun 35 Helgi Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Spírallinn Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun „Að tilheyra“, tækifæri til að styðja fyrr við unga fólkið okkar Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Barnið sem mælikvarðinn sér ekki Rebekka Rafnsdóttir skrifar Skoðun Er landsbyggðin hluti af lausninni? Hildur Sólveig Sigurðardóttir skrifar Skoðun Netöryggi snýst líka um að þora að segja frá Margrét V. Helgadóttir skrifar Skoðun Fortíðin vann Baldur Johnsen skrifar Skoðun Getur maður verið rasisti án þess að gera sér grein fyrir því? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ekki leggja þjóðinni orð í munn Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Hvernig hefurðu það? Carmen Maja Valencia skrifar Skoðun Minna kerfi, betri þjónusta Róbert Ragnarsson skrifar Sjá meira
Eru stjórnvöld bundin af niðurstöðu óréttmætrar þjóðaratkvæðagreiðslu? Haukur Arnþórsson Skoðun
Skoðun Eru stjórnvöld bundin af niðurstöðu óréttmætrar þjóðaratkvæðagreiðslu? Haukur Arnþórsson skrifar
Skoðun „Að tilheyra“, tækifæri til að styðja fyrr við unga fólkið okkar Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar
Eru stjórnvöld bundin af niðurstöðu óréttmætrar þjóðaratkvæðagreiðslu? Haukur Arnþórsson Skoðun