Tónlistarhátíðum aflýst vegna hita Freyja Þórisdóttir skrifar 28. júní 2026 10:05 Þessir hátíðargestir gerðu sitt besta til að kæla sig niður á milli dagskrárliða. Getty Hitabylgja geisar enn um stóran hluta Evrópu og víða hefur viðburðum verið aflýst vegna hitans. Í Hollandi hefur einni stærstu raftónlistarhátíð heims verið aflýst á föstudag, 26. júní, en þar í landi var í fyrsta sinn gefin út rauð veðurviðvörun vegna hita nú á dögunum.
Hundruð milljóna Evrópubúa una nú misvel við verulega háan hita og á sumum svæðum hefur hitinn farið upp í fjörutíu gráður. Defqon.1, einni stærstu raftónlistarhátíð í heimi, var í vikunni aflýst í bænum Biddinghuizen en einn dagur var liðinn af fjórum skipulögðum, að því er þýski fréttamiðillinn Bild greinir frá. Þar segir einnig frá því að hollenskar veðurstofur hafi gefið út rauða veðurviðvörun og að hitastig á sumum svæðum landsins gæti farið upp í næstum 40 gráður. Ákvörðunin um að aflýsa hátíðinni hafi verið tekin í samráði við yfirvöld. Í upphafi hafi skipuleggjendur einfaldlega reynt að fækka gestum en að lokum hafi þó þurft að aflýsa hátíðinni alfarið. Á fjölmörgum miðlum og síðum helguðum fréttum úr raftónlistarheiminum er því lýst að á hátíðarsvæðinu hafi tónlistin þagnað og að margir hátíðargestir hafi fyrst frétt af því að hátíðinni hefði verið aflýst í heild sinni á samfélagsmiðlum. Samkvæmt NL Times var búist við að hátt í sextíu þúsund gestir kæmu sér fyrir á tjaldsvæði hátíðarinnar í ár og auk þess var búist við ríflega fimmtán þúsund manns daglega sem kæmu inn á svæðið með svokölluðum dagsmiða. Staðan svipuð víða um álfuna Þar sem yfirvöld í Frakklandi hafa sett stóra hluta landsins í hitaviðvörun og veðurstofa Hollands hefur gefið út rauða hitaviðvörun hafa nokkrar hátíðir neyðst til að aflýsa um helgina. Á vefnum IQ kemur fram að franska ríkisstjórnin hafi látið sveitarfélögum eftir að ákveða hvort aflýsa þyrfti viðburðum eða halda þá með tilheyrandi varúðarráðstöfunum. Í tilfelli tónlistarhátíðarinnar Solidays, sem átti að fara fram 26.–28. júní á Hippodrome de Longchamp-kappreiðavellinum í París í Frakklandi, völdu yfirvöld fyrri kostinn. „Þó að þessi ákvörðun stjórnvalda sé kostnaðarsöm og hafi áhrif á okkur er hún nauðsynleg í ljósi hitabylgjunnar vegna álags á heilbrigðisstarfsfólk og sjúkrahúsakerfið. Við skiljum þetta og sættum okkur við það,“ er haft eftir forsvarsmönnum Solidays. Hátíðin er skipulögð af Solidarité Sida, sjálfseignarstofnun sem er tileinkuð baráttunni gegn alnæmi. Listamenn sem koma fram á Solidays gefa venjulega hluta af þóknun sinni eða spila ókeypis til að styðja við málstaðinn. Hátíðin skilar einnig sjötíu prósentum af tekjum Solidarité Sida á hverju ári. Aðrir franskir viðburðir sem verða fyrir áhrifum eru meðal annars Paris Pride 2026, sem verður frestað þar til í september, auk Fete de la Musique-götuhátíðarinnar sem fram fer í París, þar sem hingað til hefur aðeins verið bönnuð áfengisneysla sem varúðarráðstöfun. Nokkrir íþróttaviðburðir verða einnig fyrir áhrifum, samkvæmt staðbundnum fréttum. Engu að síður er gert ráð fyrir að ýmsir stórir tónleikar og hátíðir fari fram um helgina en eru þeir sem eiga miða á hátíðir um helgina hvattir til að fylgjast vel með fréttum og tilkynningum frá forsvarsmönnum hátíðanna.
Veður Loftslagsmál Umhverfismál Tónlist Náttúruhamfarir Hitabylgja í Evrópu í júní 2026 Mest lesið Birtir skilaboð um uppsögn: „Kominn tími á að sannleikurinn komi í ljós“ Innlent Óttast að börn með Downs muni ekki lengur fæðast á Íslandi Innlent Segja upp tveimur sérfræðingum Innlent Bannaði Trump að banna fjölmiðla Erlent Dagný Ósk látin Innlent Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Erlent Veturinn verði Rússum erfiður Erlent Móðir lagði ríkið í Hæstarétti vegna vanrækslu á EES Innlent Færri þunganir í áhættuhópi með nýrri tegund fósturskimunar Innlent Barnið ekki í viðeigandi öryggisbúnaði Innlent Fleiri fréttir Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Halda andstæðingum fjarri Grænlandi með samkomulagi Svona var ræða Trumps: Spurning um „gereyðingu“ og nýtt nafn á gervigreind Í leyfi á meðan kosningasvik eru til rannsóknar Bein útsending: Ræða Trumps á allsherjarþinginu Bretar ætla að aðstoða Sáda gegn Hútum Beita buddunni til að vega á móti óvinsældum Trumps Rétta yfir konu spænska forsætisráðherrans Grunur um alvarlegt kosningasvindl í Svíþjóð Stefna að tveimur nýjum herstöðvum á Grænlandi Sniðganga Hvíta húsið Bað Selenskí um að stöðva árásir á rússneskar olíuvinnslur Höfða mál gegn Trump vegna bannsins Sjá meira