„Ég ætla bara að halda mínu striki, það verða tíu gusur hér um helgina“ Smári Jökull Jónsson skrifar 27. júní 2026 00:04 Vala Baldursdóttir er rekstraraðili og eigandi Sækots við Ægissíðu. Vísir/Bjarni Rekstraraðili gufubaðs á Ægissíðu ætlar að halda sínu striki þrátt fyrir deilur við Reykjavíkurborg um eignarhald skúra sem hýsa starfsemina. Borgarlögmaður telur borgina mögulega þurfa að fara dómstólaleiðina og telur einstakling hafa sölsað undir sig eign borgarinnar.
Deilan snýst um hvort Reykjavíkurborg sé raunverulegur eigandi svokallaðra grásleppuskúra við Ægissíðu. Fyrrum eigandi, Magnús Ingólfsson, afsalaði eignarhaldi á skúrunum til borgarinnar árið 2007 en dró það til baka árið 2021 vegna meintra vanefnda og gerði kaupsamning við núverandi rekstraraðila. Þessu mótmælti Reykjavíkurborg, hafði enda sett rúmar fjórar milljónir í endurbætur húsnæðisins og taldi meintar vanefndir ekki á rökum reistar. Í minnisblaði borgarlögmanns um málið segir að einstaklingur hafi sölsað undir sig eign borgarinnar. „Ég hef átt rosalega góð samskipti við borgarlögmann og ég bara skil þetta engan veginn. Því við höfum talað um þetta hvernig væri hægt að finna farsæla lausn,“ segir Vala Baldursdóttir, sem rekur gufubaðið Sækot í skúrnum. „Ég kem að þessu í góðri trú“ Borgarlögmaður hafi haft samband ári eftir að hún gerði kaupsamning. „Að borgin sé eigandi, Magnús eða ég, þá er þetta orðið svolítið flókið mál vissulega. Það er komin svo gríðarlega falleg starfsemi hér að það er mitt hjartans mál, að hún fái að vera áfram. Það skiptir máli að eiga þannig viðræður við borgina.“ Deilur eru uppi um hver sé raunverulegur eigandi skúranna.Vísir/Bjarni Vala segist upphaflega hafa rætt við ýmsa aðila innan borgarinnar og fengið jákvæð viðbrögð. Erfitt hafi verið að fá samtal við fyrri borgarstjórn. „Núverandi borgarstjórn veit svolítið út á hvað þetta gengur og er með puttann á púlsinum hvað þetta varðar og það skiptir máli. Þetta er heilsurækt fyrir líkama og sál, þetta hefur áhrif á lífsgæði margra.“ Segist Vala treysta fyrri eiganda og hvorki þá né nú telja að hann hafi selt henni húsnæðið á fölskum forsendum. „Samhliða þá er ég ekki neinir dómstólar og alls ekki dómbær á það hvort hann eða borgin, ég er ekki löglærð. Ég kem að þessu í góðri trú.“ Ætlar að halda sínu striki og segir boltann hjá borginni Í minnisblaði borgarlögmanns kemur fram að borgin þurfi mögulega að fara dómstólaleiðina. „Ég ætla bara að halda mínu striki, það verða tíu gusur hér um helgina. Ef borgarlögmáður ætlar að láta loka kotinu og senda fólk heim sem kemur hérna til að fara í sjóinn undir leiðsögn, þá verður borgin bara að taka þá ákvörðun.“ Sækot við ÆgissíðuVísir/Bjarni „Ef þetta fer svo langt, sem ég held ekki, að þetta fari fyrir dómstóla þá verður borgin að vera ákvörðunartaki um næstu skref. Ég get í raun og eru bara verið í núinu, flæðinu og haldið áfram því sem ég hef verið að gera og vonað það besta fyrir þá sem hafa verið að stunda þetta.“ Hún segir að rétt þurfi að vera rétt og fara þurfi eftir reglum. „Ég hef aldrei verið að laumast með þetta, hef alltaf útskýrt og upplýst hvað ég hef verið að gera. Borgin þarf að gera upp við sig hvernig hún vilji taka á þessu.“ Myndi aldrei ræða við Hildi um pólitík í gufunni Margir myndu eflaust syrgja ef gufubaðinu yrði lokað. „Maður getur bara búist við öllu þegar borgin er annars vegar. Ég hef auðvitað fulla trú á því þegar borgarstjórn meðal annars hefur komið og notið í gusu hérna en þau verða auðvitað að fylgja lögum og reglum.“ Frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík í gufu í grásleppuskúrnum umdeilda fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor. Vala segir Hildi Björnsdóttur (hægra megin með höfuðfat á myndinni) fastagest.Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík Hildur Björnsdóttir hefur sótt gufubaðið en Vala segir að hún myndi aldrei ræða við hana um pólitík í gufubaðinu. „Þá erum við bara í núinu og að njóta. Hún er bara að koma til að njóta eins og hinir og svo myndi ég kannski ræða við hana á fundi. Hún má bara koma hér eins og hver annar að njóta.“ Segir þann sem endurbyggði hafa gefið samþykki Í minnisblaði borgarlögmanns segir að skúrinn sé ekki endurgerður með það í huga að þar sé gufubað og það geti stytt líftíma hússins. Vala segist hafa verið í samskiptum við þann sem endurgerði skúrinn. „Það er gríðarlega mikilvægt þegar maður er með sánu að rétt sé að öllu staðið. Það var svo gaman að því þegar ég talaði við hann, sem endurgerði skúrinn nánast alveg, hann gaf strax samþykki. Sagði að þetta myndi ekki eyðileggja húsið, þetta er þurrgufa og ekki jafn mikill raki og í blautgufu.“ „Þegar sánur eru byggðar í heiminum þá eru þessir staðlar notaðir sem hann var með. Það er eitthvað svo magnað, það er eins og þetta hafi átt að vera sána en hann var ekki með það í huga þegar hann gerir þetta upp,“ segir Vala að lokum.
Borgarstjórn Reykjavík Fornminjar Gufuböð Tengdar fréttir Telur „gusumeistara“ hafa sölsað undir sig eign borgarinnar Borgarlögmaður telur að Reykjavíkurborg þurfi að fara í hart til þess að stöðva rekstur gufubaðs í grásleppuskúr á Ægisíðu sem yfirlýstur „gusumeistari“ hafi sölsað undir sig. Hann telur fyrri eiganda og gufubaðsstjórann ekkert tilkall eiga til skúrsins. 26. júní 2026 13:22 Mest lesið Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Erlent Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Erlent Haft samband við þá bændur sem búa næst gilinu Innlent Heilsu Haraldar hrakar enn Erlent Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Erlent Málið vegna fjársöfnunar Solaris tekið fyrir í héraðsdómi Innlent Vandræðalegt þegar stjórnmálamenn komi inn á sviðið og ætli að breyta öllu Innlent Leikskóli spratt upp eins og gorkúla Innlent Hafa augun opin fyrir fleiri „hjálparlausum krúttum á vappi“ Innlent Að minnsta kosti 165 eru látnir og yfir 1.500 saknað Erlent Fleiri fréttir Djúpur tunglmyrkvi sýnilegur frá Íslandi í nótt Beint streymi: Háskólamenntaðir á húsnæðismarkaði Málið vegna fjársöfnunar Solaris tekið fyrir í héraðsdómi Þrjú heimilisofbeldismál til rannsóknar eftir nóttina Mikilvægt að fatlaðir geti tekið þátt í umræðunni Hafa augun opin fyrir fleiri „hjálparlausum krúttum á vappi“ Haft samband við þá bændur sem búa næst gilinu Svona var ávarp Kristrúnar vegna atkvæðagreiðslunnar Vandræðalegt þegar stjórnmálamenn komi inn á sviðið og ætli að breyta öllu Leikskóli spratt upp eins og gorkúla Afhjúpi ekkert nema þeirra eigin viðhorf til fólksins í landinu Pallbíll sem var illa lagt upphafið að nágrannaerjum Svipleg starfslok, í beinni frá fjöldafundi og söngkona sem syrgir Flaggað í hálfa stöng í bandaríska sendiráðinu Fjölmiðlanefnd sektar Þórarin um hálfa milljón Mikill munur á trausti til fjölmiðla í aðdraganda atkvæðagreiðslu Hvað gerist ef það verður jafnt? Eins og að hafa fimmtán menn inni á vellinum Svona verður atkvæðagreiðslan á laugardaginn Starfsfólki hafi verið boðin lægri laun Tvöfalt fleiri andvígir loðdýrarækt á Íslandi en hlynntir Dæmdur fyrir nauðgun: „Numer uno hlutur sem fólk gerir í kynlífi“ Starfsfólkinu boðin lakari kjör Grindavík á varaafli Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Stútur „með allt í skrúfunni“ Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Þyrluútköllum fjölgað verulega milli ára Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert Sjá meira
Telur „gusumeistara“ hafa sölsað undir sig eign borgarinnar Borgarlögmaður telur að Reykjavíkurborg þurfi að fara í hart til þess að stöðva rekstur gufubaðs í grásleppuskúr á Ægisíðu sem yfirlýstur „gusumeistari“ hafi sölsað undir sig. Hann telur fyrri eiganda og gufubaðsstjórann ekkert tilkall eiga til skúrsins. 26. júní 2026 13:22