„Við erum eitt þeirra landa sem skilja fiskveiðarnar einna best“ Smári Jökull Jónsson skrifar 23. júní 2026 20:02 José Manuel Albares er utanríkisráðherra Spánar. Vísir/Bjarni Utanríkisráðherra Spánar segir Spánverja eiga Evrópusambandinu mikið að þakka og að uppbygging landsins frá því að það gekk í sambandið fyrir fjörtíu árum hafi að miklu leyti verið fjármögnuð með sjóðum ESB. Hann ræddi við Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur á opnum fundi í Norræna húsinu í dag.
Fundurinn var haldinn í Norræna húsinu í dag en sendiráð Íslands í Madríd var opnað þann 1. desember síðastliðinn og segir í kynningu utanríkisráðuneytisins að samskipti Íslands og Spánar hafi verið að eflast í framhaldinu og að stjórnvöld í löndunum tveimur eigi samleið í mörgum veigamiklum málum. Þar segir að Spánverjar hafi sett mannréttindamál á oddinn og ekki síst kynjajafnrétti á meðan Íslandi hafi um langt skeið trónað á toppi alþjóðlegra mælikvarða um kynjafnrétti. „Allt er það sjóðum ESB að þakka“ Ræddu Jose Manuel Albares, utanríkisráðherra Spánar, og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra Íslands, þau mál á fundinum í dag sem og Evrópumálin í ljósi fyrirhugaðrar þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna Íslands við Evrópusambandið. Albares segir þjóðaratkvæðagreiðsluna vera innanríkismál Íslendinga en að reynsla Spánverja af ESB sé góð en á þessu ári eru fjörtíu ár síðan Spánn gekk í sambandið. „Það varð stórkostleg umbreyting í landinu með háhraðalestum, hraðbrautum, brúum og göngum. Allt er það sjóðum ESB að þakka,“ sagði Albares að fundinum loknum í dag. Íslendingar þurfi ekki að hafa áhyggjur Spánverjar eru ein mesta fiskveiðiþjóð Evrópu ásamt Íslandi og Noregi. Fiskveiðistjórnunarmálin verða stærsta hagsmunamál Íslands verði af aðildarviðræðum. Albares segir viðræður um aðild alltaf vera samningaviðræður. „Það er ekki verið að þröngva neinu upp á neinn. Þetta eru samningaviðræður og þú kemur að borðinu með sértæk mál þíns lands. Síðan eru alltaf mál sem eru sérstaklega mikilvæg fyrir hvert land en almenni ávinningurinn er alltaf meiri fyrir land sem gengur í sambandið.“ Albares segist ekki vera inni í viðræðum Íslendinga og geti því lítið sagt til um möguleika Íslands á varanlegum undanþágum hvað varðar fiskveiðistjórnun. „Þetta eru samningaviðræður og það er nóg af sjóðum sem koma til móts við sérþarfir hvers lands.“ Ættu Íslendingar að hafa áhyggjur af því að spænsk fiskveiðiskip komi til veiða í íslenskri lögsögu? „Alls ekki. Við erum eitt þeirra landa sem skilja fiskveiðarnar einna best, þarfirnar og mögulegan ávinning. Ef þið ákveðið að lokum að ganga í sambandið þá verðum við samstarfsaðilar, sérstaklega hvað fiskveiðarnar varðar.“
Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Spánn Evrópusambandið Utanríkismál Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Erlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Sjá meira