Eins og að vera í bakaraofni í hitabylgjunni: „Raunveruleg hætta á að fólk geti fengið hitaslag“ Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 23. júní 2026 12:44 Sjálfur er Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur hjá Bliku staddur í Róm og þar er hitinn á bilinu 33-35 stig. Vísir/Vilhelm Nýliðin nótt var sú heitasta frá upphafi mælinga í Frakklandi og Lundúnum er lýst sem bakaraofni. Hitabylgjan í Evrópu hefur reynst banvæn en veðurfræðingur sem talar frá Róm segir að miðja hitahvelfingarinnar sé að færast norður yfir Bretlandseyjar.
Meðalhiti liðinnar nætur í Frakklandi reyndist tuttugu og ein komma sex gráður og var hún hlýjasta nótt Frakklands frá upphafi mælinga 1947. Svo gott sem allur Spánn er undirlagður hitaviðvörunum en rauðar viðvaranir gilda fyrir hluta norður og suður Spánar. Þá er Lundúnum líkt við bakaraofn í Gardian. Heitt eins og í bakaraofni Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðingur Bliku, er staddur í Róm en hitabylgjunni hefur í erlendum fjölmiðlum verið líkt við eins konar hitahvelfingu. „Já, það er ágætis lýsing að segja það. Það liggur svona, það er svona heit blaðra í loftinu og það er niðurstreymi lofts og það kemur að ofan og hlýnar við það að streyma niður og verður svona ofboðslega heitt, bara eins og í bakaraofni.“ „Miðjan á þessari hitahvelfingu hefur verið undanfarna daga yfir Frakklandi og Vestur-Frakklandi, og sérstaklega á Bordeaux-svæðinu. Þar mældist nú hiti yfir 40 gráður í gær sem er einsdæmi í júnímánuði, samfara rauðum viðvörunum sem þar hafa verið. Síðan er miðja þessarar hitahvelfingar eða hitahjálms að teygja sig norður yfir Bretlandseyjar og yfir Suður-England og ég sé að í London er verið að spá 36 stiga hita á föstudaginn og þar er búið að gefa út appelsínugular og rauðar viðvaranir, þannig að þetta er nú svona alvöru hitabylgja, það er ekki hægt að segja annað.“ Brýnt að fara að ráðleggingum Fjölmargir Íslendingar eru á ferð og flugi um Evrópu þessar vikurnar og sumir hverjir á viðvörunarsvæðum. „Almenna ráðleggingin, ef það eru rauðar viðvaranir, er að halda sig bara inni í loftkældu rými og vera ekkert að fara út því það er raunveruleg hætta á að fólk geti fengið hitaslag,“ segir Einar. Einar sjálfur er staddur í Róm á Ítalíu. „Hér er brækjuhiti þótt hér sé bara gul viðvörun en ekki rauð. Hér er 33–35 stiga hiti. Það er þannig að þessar borgir draga til sín hita og þessar mælingar sem mest er af eru úr sveitum en það er alltaf aðeins hlýrra í borgunum. Það er ofboðslega heitt og erfitt að vera inni í þessum borgum.“
Spánn Frakkland Bretland Veður Hitabylgja í Evrópu í júní 2026 Tengdar fréttir Rauðar viðvaranir í Bretlandi vegna hita Veðurstofan í Bretlandi telur líklegt að í dag verði heitasti dagur júnímánaðar frá upphafi mælinga þar í landi. Spáð er því að hitinn fari yfir 35 stig. 23. júní 2026 07:55 Fjölskylduferð í skemmtigarð tók óvænta stefnu í hitabylgjunni Mikil hitabylgja geisar í Evrópu og eru rauðar veðurviðvaranir í gildi á stórum svæðum vegna hita. Áhrif hitabylgjunnar hafa verið gríðarlega mikil í Frakklandi. Í suðausturhluta landsins fundust tvö börn, tveggja og fjögurra ára, látin í bifreið í dag. Hitastig á svæðinu mældist 39 gráður á hádegi. 22. júní 2026 21:36 Spá allt að fjörutíu stiga hita Búist er við að hitabylgja muni ganga yfir sunnanverða Evrópu næstu daga. Helsta orsökin er heitt loft sem berst norður til Evrópu frá Sahara. 17. júní 2026 20:22 Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Erlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Sjá meira
Rauðar viðvaranir í Bretlandi vegna hita Veðurstofan í Bretlandi telur líklegt að í dag verði heitasti dagur júnímánaðar frá upphafi mælinga þar í landi. Spáð er því að hitinn fari yfir 35 stig. 23. júní 2026 07:55
Fjölskylduferð í skemmtigarð tók óvænta stefnu í hitabylgjunni Mikil hitabylgja geisar í Evrópu og eru rauðar veðurviðvaranir í gildi á stórum svæðum vegna hita. Áhrif hitabylgjunnar hafa verið gríðarlega mikil í Frakklandi. Í suðausturhluta landsins fundust tvö börn, tveggja og fjögurra ára, látin í bifreið í dag. Hitastig á svæðinu mældist 39 gráður á hádegi. 22. júní 2026 21:36
Spá allt að fjörutíu stiga hita Búist er við að hitabylgja muni ganga yfir sunnanverða Evrópu næstu daga. Helsta orsökin er heitt loft sem berst norður til Evrópu frá Sahara. 17. júní 2026 20:22