Argentínskar landsliðskonur á Krókinn og önnur var valin í WNBA Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. júní 2026 10:31 Florencia Chagas er lykilmaður í argentínska landsliðinu og var valin leikmaður mótsins þegar þær argentínsku unnu Suður-Ameríkukeppnina árið 2024. Getty/Naeime Mastizade Það verða argentínsk áhrif innan kvennaliðs Tindastóls í Bónusdeildinni á næsta tímabili.
Körfuknattleiksdeild Tindastóls hefur samið við argentínsku landsliðskonurnar Florenciu Chagas og Macarena D’Urso fyrir komandi tímabil. Florencia er 24 ára bakvörður með mikla alþjóðlega reynslu, en Macarena er reynslumikill leikstjórnandi sem kemur síðast frá Spáni þar sem hún lék á háu stigi. „Flor er ung en kemur samt með mikla alþjóðlega reynslu. Hún var valin í WNBA-nýliðavalinu og er mjög öflugur leikmaður sem getur skorað á marga ólíka vegu,“ sagði Isreal Martin, þjálfari Tindastóls, á miðlum félagsins. Florencia var valin af Indiana Fever í nýliðavalinu 2021 en fékk aldrei samning hjá félaginu. Hún lék síðast með Obras Basket í Argentínu en hefur spilað í Evrópu frá því að hún var sautján ára, með spænskum, ítölskum og frönskum félögum. „Ég tel að hún muni hafa mikil áhrif á deildina og við hlökkum mikið til að sjá hana spila fyrir Tindastól,“ sagði Martin. „Macarena kláraði síðasta tímabil á Spáni á mjög háu stigi. Hún er kraftmikill leikmaður sem passar vel inn í íslenska körfuboltann, fljót og sterk í vörn á boltann, góð skytta fyrir utan þriggja stiga línuna og getur bæði skorað sjálf og skapað færi fyrir liðsfélaga sína,“ sagði Martin. Macarena D’Urso er 34 ára gömul en hún hefur verið landsliðskona frá árinu 2017, tók þátt í HM 2018 og varð Suður-Ameríkumeistari með Argentínu 2024. Í því móti spilaði einnig Florencia Chagas og hún var valin besti leikmaður mótsins. „Flor og Maca þekkjast vel úr argentínska landsliðinu og það er mikill styrkur fyrir okkur að fá þær báðar inn í hópinn,“ sagði Martin. Saman voru þær með 18 stig og 3 stoðsendingar í fyrrnefndum úrslitaleik en Chagas var með 16,2 stig og 2,3 stoðsendingar að meðaltali á mótinu. View this post on Instagram A post shared by Tindastóll Körfubolti (@tindastollkarfa)
Tindastóll Bónus-deild kvenna Mest lesið Stuðningsmenn Blika og Víkinga spyrja fyrir hverja leikurinn sé Íslenski boltinn UEFA lofar að hafa engin drykkjarhlé Fótbolti Bauluðu á verðandi US Open meistara Golf Birta hjartnæma mynd af Martin eftir afrekið mikla Körfubolti Karlar sem skulda meðlag í Argentínu mega ekki horfa á Messi á HM Fótbolti Sonur Mark Hughes lést aðeins 38 ára gamall Enski boltinn Real Madrid græddi milljarða á kaupum Liverpool Enski boltinn Bröndby-bullur ráðast ekki bara á Víkinga heldur einnig á konur í hjólastól Fótbolti Grænhöfðaeyjar komu aftur á óvart og sögulegt hjá Mo Salah og félögum Fótbolti Einum mánuði yngri en Eiður Smári Íslenski boltinn Fleiri fréttir Argentínskar landsliðskonur á Krókinn og önnur var valin í WNBA Birta hjartnæma mynd af Martin eftir afrekið mikla Martin þýskur meistari eftir lygilega endurkomu Martin og félagar tryggðu sér oddaleik um titilinn Ben Stiller vinnur að heimildarþáttaröð um Knicks Martin lentur undir í úrslitaviðureigninni Ólafur Ólafs fékk fálkaorðuna Kristófer og Guðrún eignuðust son Íslandsmeistararnir bæta við sig tveimur sterkum leikmönnum Voru risinn fyrir áratug síðan en munu nú ekki senda lið til leiks Besti ungi leikmaður síðasta tímabils í Ármann Viktor tekur við Haukum Ásta Júlía kveður Val Hilmar Smári áfram í Stjörnunni Hermaðurinn Haukur í Stólana Basile yfirgefur Stólana og semur við Álftanes Martin með mikilvæg stig í sigri Alba Berlin Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Sjá meira