Símarnir í frí í skólum Reykjavíkur frá haustinu Árni Sæberg skrifar 16. júní 2026 13:14 Grunnskólabörn í Reykjavík munu ekki mega nota síma sína í skólanum frá og með haustinu. Vísir/Vilhelm Símafrí verður innleitt í grunnskólum Reykjavíkur í haust og áhrif þess á fagumhverfi, námsárangur og líðan barna mæld í samstarfi við háskólasamfélagið. Þetta var samþykkt á fundi borgarstjórnar í dag.
Í fréttatilkynningu þess efnis frá Reykjavíkurborg segir að borgarstjórn hafi samþykkt að fela skóla- og frístundasviði að innleiða símafrí í grunnskólum Reykjavíkur haustið 2026. Snjallsímar mikilvægir en spurningar hafi vaknað „Með símafríi er átt við að nemendur noti ekki farsíma eða sambærileg snjalltæki á skólatíma, þar með talið í frímínútum og hádegishléum, nema með sérstöku leyfi starfsfólks eða vegna skilgreindra undantekninga. Skólarnir þurfa að hafa viðeigandi aðstöðu og skýrt verklag til að geyma síma á öruggan hátt frá upphafi til loka skóladags, en hver skóli mótar sér reglur um útfærslu þess.“ Lagt sé til að áhrif símafrís verði metin með skipulegum hætti í samstarfi við háskólasamfélagið á tveggja ára tímabili. Við matið verði meðal annars horft til námsárangurs, líðanar nemenda og starfsumhverfis kennara og annars starfsfólks. Notkun snjallsíma sé stór þáttur í daglegu lífi barna og ungmenna en mikilvægar spurningar hafi vaknað um áhrif símanotkunar á skólastarf, einbeitingu, samskipti nemenda og líðan þeirra. Mikilvægur áfangi Haft er eftir Hildi Björnsdóttur borgarstjóra að símafríið sé mikilvægur áfangi. „Skólinn á að vera griðastaður þar sem börnin geta einbeitt sér að námi, þjálfað félagsfærni sína og tekið virkan þátt í skólasamfélaginu án stöðugs utanaðkomandi áreitis frá snjalltækjum,” segir Hildur. „Símafrí í grunnskólum snýst fyrst og fremst um að skapa börnum betra rými til að læra, leika og eiga samskipti sín á milli. Við viljum byggja ákvarðanir á þekkingu og því verður fylgst vel með áhrifum þessarar breytingar á líðan nemenda, námsárangur og starfsumhverfi skólanna. Markmiðið er ekki að hafna tækninni heldur að skapa heilbrigt umhverfi sem styður við velferð barna og farsælt skólastarf.“ Netið magni upp neteinelti Menntamálaráðuneytið hafi birt drög að reglugerð um símafrí í grunnskólum í samráðsgátt stjórnvalda 10. júní síðastliðinn og lagt sé upp með að innleiðing borgarinnar verði í samræmi við áform ráðuneytisins. Mennta-, vísinda- og menningarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna, UNESCO, fjalli um notkun tækni í skólastarfi í alþjóðlegri menntamálaskýrslu frá 2023. Þar sé lögð áhersla á að tækni eigi aðeins að nota í kennslu þegar hún styðji með skýrum hætti við námsmarkmið og námsárangur. Tækni geti verið gagnlegt verkfæri, en óhófleg notkun eða á ófullnægjandi hátt geti haft neikvæð áhrif. Þá hafi UNESCO bent á að nettengd tæki geti magnað upp neteinelti í skólaumhverfinu og samfélagsmiðlanotkun haft áhrif á líðan og sjálfsmynd barna og ungmenna. Snúist fyrst og fremst um velferð Loks segir að símafrí í skólum snúist fyrst og fremst um velferð barna, til dæmis að skapa raunveruleg tækifæri til samskipta og samveru, enda byggi félagsfærni á þjálfun og daglegum samskiptum. Þá megi nefna að reynsla íslenskra skóla bendi til þess að takmörkun símanotkunar geti bætt skólabrag. „Í tillögu meirihlutaflokkanna í borginni er tekið fram að reglur um símanotkun eigi að taka mið af velferð barna, tilgangur reglnanna þurfi að vera skýr og þær settar á í samráði við nemendur, foreldra og starfsfólk. Gera þurfi ráð fyrir málefnalegum undantekningum, svo sem vegna fötlunar, heilsufars eða námsþarfa auk þess sem horfi þurfi til afþreyingargildis síma og tryggja fjölbreytta afþreygingu, einkum fyrir nemendur á unglingastigi. Betri aðstaða til samveru, spila, útileikja og íþróttaiðkunar geti stuðlað að aukinni þátttöku, samveru og félagsfærni.“
Grunnskólar Borgarstjórn Reykjavík Símanotkun barna Börn og uppeldi Skóla- og menntamál Mest lesið Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Innlent Fleiri fréttir Hellisheiði lokuð í báðar áttir vegna umferðarslyss Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Vantar sex milljónir til að halda Edduna Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fæti Sjá meira