„Þetta er eins og aftanákeyrsla“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. júní 2026 08:32 Alda Ólafsdóttir liggur eftir í grasinu eftir að hafa fengið Natöshu Anasi í bakið í skallaeinvígi. Ásmundur Þór Sveinsson dómari dæmdi aukaspyrnu en lyfti ekki gula spjaldinu. Sýn Sport Jóhann Fjalar Skaptason og Bára Kristbjörg Rúnarsdóttir voru alls ekki sammála í Bestu mörkunum í gær og það hjálpaði lítið að fá sérfræðinginn Magnús Hauk Harðarson til að bregða sér í hlutverk sáttasemjara.
Ástæðan var refsing fyrir brot Natashu Anasi, fyrirliða liðs Grindavíkur og Njarðvíkur, á sóknarmanni Fram. Natasha var með gult spjald á bakinu þegar hún fór upp í skallaeinvígi við Framarann Öldu Ólafsdóttur og fékk dæmda á sig aukaspyrnu. Dómari leiksins gaf henni þó ekki gult spjald. Grindavík/Njarðvík vann leikinn 2-0 en það hefði verið slæmt fyrir liðið að missa lykilmann af velli með rautt spjald á 33. mínútu leiksins. „Við Bára erum ekki sammála um þetta. Maggi, þú þarft kannski að leggja dóm þinn á þetta,“ sagði Jóhann Fjalar og sýndi atvikið. „Sjáum hér, er þetta seinna gula?“ spurði Jóhann, „Af hverju talarðu um seinna gula? Þetta er bara gult. Já. Það skiptir engu máli hvað hún er með mörg. Það er alveg jafn gult seinna og fyrra,“ sagði Bára. „Mér finnst hún bara einhvern veginn hoppa upp en þetta er kannski dálítið harkalegt,“ sagði Jóhann. „Þetta er eins og aftanákeyrsla, Jói. Þetta er gult og afleiðingin er því miður rautt spjald,“ sagði Bára. Jóhann var ekki alveg tilbúinn að skrifa undir það en Bára gaf sig ekki. „Mér finnst þetta alveg svona þess eðlis að mér finnst þetta bara gult. Mér finnst hún bara keyra blindandi í bakið á leikmanni sem hún þarf ekki að keyra í. Mér finnst hún gera þetta allt of harkalega,“ sagði Bára. Það má horfa á alla umræðuna og sjá brotið hér fyrir neðan. Klippa: Bestu mörkin: Jóhann og Bára ekki sammála um mögulegt rautt spjald
Besta deild kvenna Grindavík UMF Njarðvík Bestu mörkin Fram Mest lesið Furðar sig á verðlaunafénu eftir úrslit bikarsins Íslenski boltinn Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Enski boltinn Harðvítugar deilur og tómur völlur hjá nýju liði Alberts Fótbolti Grindavík/Njarðvík - Þróttur R. 1-2 | Þróttur bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn „Öll tækifæri sem ég hef fengið eru frá Íslandi“ Sport Arsenal sótti þrjú stig í hitaleik Enski boltinn Bragðdauft og svekkelsi á Anfield Enski boltinn Valshjartað slær enn hjá hetju KR Íslenski boltinn Neitar að hafa tekið þátt í mannráni Enski boltinn Landsliðskona opnar sig um áfall: „Hefði geta farið mun verr“ Fótbolti Fleiri fréttir Stöðvaði leikinn og skutlaði sér á eftir gæs Grindavík/Njarðvík - Þróttur R. 1-2 | Þróttur bikarmeistari í fyrsta sinn Valshjartað slær enn hjá hetju KR KR upp í Bestu deildina MSK Zilina að kaupa Dag Orra frá Val Þetta verður spennuleikur í Laugardalnum KR með örlögin í sínum höndum og sæti í Bestu deildinni í boði Töpin sitja ekki í leikmönnunum fyrir úrslitaleikinn Alþjóðadómarinn verður yfirþjálfari Furðar sig á verðlaunafénu eftir úrslit bikarsins Myndasyrpa: Gleðin við völd í Laugardal „Ef ég hefði fengið að velja þá hefði ég alltaf valið eldinguna“ „Maður er í þessu til þess að vinna titla“ „Getur vel verið að ég sé bara með Aftureldingargleraugu“ „Við náðum einum af þessum stóru í ár“ „Maður skal brennimerkja þessa stund í hjarta sínu og sál“ Breiðablik - Afturelding 2-1 | Blikar bikarmeistarar í annað sinn Spenntur að sjá rauða hafið í stúkunni Meðvitaðir um pressuna „Hljóta allir að sjá á hverjum pressan er í þessum leik“ Ólafur skilur Magga en er ekki sammála „Vona að það verði enginn munur á vellinum“ Góðar og slæmar fréttir fyrir íslensku liðin sem ætla í Evrópudeildina Á ekki að snúast um karla gegn konum Pressa á Blikum og skipulagið gagnrýnt „Gríðarleg vonbrigði“ Víkinga en stór áfangi í augsýn Þessir dómarar dæma bikarúrslitin Dramatískt sigurmark lærisveina Heimis í umspilinu Með innanbúðarupplýsingar um gífurleg áhrif Eiðs Smára Þróttarar komnir yfir í einvígi sínu gegn Njarðvík Sjá meira