Báðir segjast hættir, í bili Samúel Karl Ólason skrifar 8. júní 2026 13:34 Ísraelskur maður virðir fyrir sér brak úr íranskri eldflaug nærri Jericho á Vesturbakkanum. AP/Mahmoud Illean Útlit er fyrir að átökunum milli Ísrael og Íran, sem blossuðu upp á nýjan leik í gærkvöldi, sé lokið eða í það minnsta í bili. Ráðamenn í báðum ríkjum segjast hættir árásum en halda möguleikanum á því að hefja þær að nýju opnum.
Íranir lýstu því yfir í morgun að þeir myndu hætta árásum á Ísrael en ef gerðar yrðu frekari árásir á Íran eða gegn Hezbollah í Líbanon myndu Íranir hefja árásir á nýjan leik og það umfangsmeiri árásir en áður. Þá segja fjölmiðlar í Ísrael að Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísrael, hafi verið búinn að samþykkja beiðni Donalds Trump, forseta Bandaríkjanna, um að hætta árásum á Íran. Forsetinn hafði þá áður krafist þess á samfélagsmiðlum. Átökin sem hófust í gær, eftir árásir Ísraela á Hezbollah í Líbanon um helgina, leiddu til hækkunar á olíumörkuðum og komu niður á margra vikna tilraunum Trumps til að semja um frið við Írani. Trump talaði við Netanjahú í síma í gær og er sagður hafa beðið hann um að halda að sér höndum. Það samþykkti Netanjahú ekki og svöruðu Ísraelar fyrir sig. Sjá einnig: Ísraelar og Íranir skiptast á skotum en Trump segist við stjórnvölinn Í heildina munu Íranir hafa skotið í það minnsta 24 skotflaugum að Ísrael, sem voru allar skotnar niður eða eru sagðar hafa fallið til jarðar á opnum svæðum án þess að valda tjóni. Hútar skutu einnig tveimur eldflaugum frá Jemen en önnur þeirra var skotin niður og hin féll til jarðar vegna væntanlegrar bilunar. Ísraelar segjast hafa varpað sprengjum á að minnsta kosti níu loftvarnarkerfi í Íran og gert árásir á þrjú skotmörk í eldsneytisvinnslu í suðurhluta Íran. Talsmenn hersins sögðust í morgun búast við því að átökin myndu standa yfir í nokkra daga eða jafnvel að stríðið myndi hefjast að fullu á nýjan leik. Ríkismiðlar í Íran hafa lýst yfir sigri í þessari átakalotu milli ríkjanna. Ætla ekki að hætta í Líbanon Talsmenn ísraelska hersins segja að síðan báðar fylkingar samþykktu að hætta árásum hafi þremur sprengjum verið skotið að ísraelskum hermönnum í suðurhluta Líbanon. Þar hafa Ísraelar lagt undir sig stórt landsvæði. Times of Israel, sem vísar í aðra ísraelska miðla, hefur eftir embættismönnum í Ísrael að þeir muni ekki hætta hernaði sínum gegn Hezbollah í suðurhluta Líbanon. Fjölmiðlar í Líbanon hafa í dag sagt frá loftárásum í suðurhluta landsins. Lebanese media reports several Israeli strikes in southern Lebanon. pic.twitter.com/iRiukyYLPp— Emanuel (Mannie) Fabian (@manniefabian) June 8, 2026
Ísrael Íran Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Bandaríkin Donald Trump Líbanon Jemen Hernaður Tengdar fréttir Íranir skjóta á Ísrael Íranir gerðu í kvöld loftárás á Ísrael í kjölfar þess að Ísraelsmenn gerðu árásir í höfuðborg Líbanon fyrr í dag þrátt fyrir að vopnahlé eigi að vera í gildi þar. Þetta er fyrsta árás Írana á Ísrael í tæpan mánuð. Ísraelsmenn heita hefndum. 7. júní 2026 19:23 Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Innlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent Skafið og saltað Veður „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Innlent Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Innlent Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Innlent Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Erlent Fleiri fréttir Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Sjá meira
Íranir skjóta á Ísrael Íranir gerðu í kvöld loftárás á Ísrael í kjölfar þess að Ísraelsmenn gerðu árásir í höfuðborg Líbanon fyrr í dag þrátt fyrir að vopnahlé eigi að vera í gildi þar. Þetta er fyrsta árás Írana á Ísrael í tæpan mánuð. Ísraelsmenn heita hefndum. 7. júní 2026 19:23