Hætt við sýningarflug Airbus-þotu yfir Reykjavík Kristján Már Unnarsson skrifar 7. júní 2026 16:48 Þessi Airbus-þota Icelandair, Hofsjökull, kom til landsins í lok marsmánaðar. Þotan sem kemur í kvöld er hvítmáluð en með merki Icelandair á stélinu og nafni félagsins á skrokknum. Icelandair/Ágúst Sigurjónsson Nýjasta viðbótin í flugflota Icelandair, þota af gerðinni Airbus A320, er væntanleg til landsins um kvöldmatarleytið. Flugstjórinn Kári Kárason, flotastjóri Airbus-véla Icelandair, hafði áformað að fljúga henni yfir Reykjavík en núna hefur verið fallið frá þeim áformum.
Flugvélin fór í loftið frá Ostrava í Tékklandi klukkan 15:34 að íslenskum tíma. Kári áætlaði að vera yfir Reykjavík milli klukkan 19:15 og 19:30. Hann gerði ráð fyrir að taka aðflug yfir Reykjavíkurflugvöll og bjóst við að fara niður í 500 feta hæð yfir flugbrautinni. Guðni Sigurðsson, upplýsingafulltrúi Icelandair, hefur núna tjáð fréttastofu að ekkert verði af yfirfluginu yfir Reykjavík. Flugvélin myndi fljúga beint til Keflavíkur. Flugvélin var smíðuð árið 2015 og var áður hjá Wizz Air. Sætaskipan hefur verið breytt og vélin fengið íslenska skráningu, TF-IAT, að sögn Guðna Sigurðssonar, upplýsingafulltrúa Icelandair. 154 sæti eru í vélinni, þar af 16 á Saga premium. Ekki hafa verið settir skjáir í sætisbök en boðið verður upp á afþreyingarkerfi í streymi þar sem farþegar nota eigið tæki. Icelandair ákvað að leigja þessa vél vegna seinkunar á afhendingu nýrrar Airbus A321-þotu, sem átti að vera sú sjöunda í nýja Airbus-flotanum en kemur ekki fyrr en í haust. Tafir urðu á afhendingu vélarinnar, sem átti að hlaupa í skarðið, og því þurfti félagið að taka inn aðra flugvél í blautleigu í nokkra daga í byrjun mánaðar frá flugfélaginu Heston Airlines í Litháen. Þeirri vél verður núna skilað. Nýjasta Airbus A321-þota Icelandair, TF-IAE, Hofsjökull, við komuna til landsins þann 28. mars. Flugvélin sem kemur í kvöld er 6,9 metrum styttri, af gerðinni Airbus A320.Icelandair/Lukas Mach
Icelandair Airbus Reykjavíkurflugvöllur Lágflug Icelandair yfir Vestmannaeyjum Tengdar fréttir Segir ekkert eiga að koma í veg fyrir að Airbus noti Reykjavík Framkvæmdastjóri Isavia Innanlandsflugvalla, Sigrún Björk Jakobsdóttir, telur Reykjavíkurflugvöll hæfan til að taka á móti Airbus-þotum og segir burðarþol flugvallarins nægilegt til að taka við þeim. Hún segir það mat Isavia innanlands að ekkert í regluverkinu eigi að koma í veg fyrir notkun Airbus-véla Icelandair á Reykjavíkurflugvelli til vara. 4. júní 2026 17:17 Icelandair tekur litáíska vél á leigu Icelandair hefur erlenda flugvél í leigu frá litháíska leiguflugfélaginu Heston Airlines. Er um svokallaða blautleigu að ræða og fylgir erlend áhöfn með vélinni. 6. júní 2026 12:49 Engin Icelandair-þota sást á flugsýningunni Flugáhugamenn sem lögðu leið sína á hina árlegu flugsýningu Flugmálafélags Íslands á Reykjavíkurflugvelli í gær undruðust margir að sjá enga af þotum Icelandair birtast, hvorki á flugvellinum sjálfum né í yfirflugi yfir hann. Sumir spurðu sig jafnvel hvort samskipti félagsins og flugmanna þess væru í slíku frosti að ekki væri einu sinni hægt að taka þátt í flughátíð. 31. maí 2026 20:30 Mest lesið Dæmdur fyrir tvær nauðganir: Kom steinmunum fyrir í kynfærum konu Innlent Eitt er það sem Tómas vissi og gerði, annað hvað honum gekk til Innlent Bregðast við skammarbréfi Þorgerðar og félaga Erlent Stór rafmagnsflugvél reynd fyrir fyrsta flug Erlent „Þetta er bara alveg svívirðilegt“ Innlent Braut kynferðislega á stúlku sem lá með skerta meðvitund á bráðamóttökunni Innlent Hætt við sýningarflug Airbus-þotu yfir Reykjavík Innlent Óttaslegnir íbúar binda vonir við nýjan meirihluta Innlent Harður árekstur á Reykjanesbraut Innlent Leigubílstjóri jók hraðann á rauðu ljósi og ók á eldri konu Innlent Fleiri fréttir Óumflýjanlegt að atvinnuleysi aukist Óttaslegnir íbúar binda vonir við nýjan meirihluta Hætt við sýningarflug Airbus-þotu yfir Reykjavík Braut kynferðislega á stúlku sem lá með skerta meðvitund á bráðamóttökunni Aðstoðuðu ferðamenn að Fjallabaki „Það er prjónabylting í gangi á Íslandi“ Frábær árangur Teits í alþjóðlegri keppni Eitt er það sem Tómas vissi og gerði, annað hvað honum gekk til Rýnt í stöðu Icelandair og prjónagarn selst upp Gæslan fylgist grannt með rússnesku skipi Dæmdur fyrir tvær nauðganir: Kom steinmunum fyrir í kynfærum konu „Þetta er bara alveg svívirðilegt“ Tilkynnt í annarlegu ástandi og reyndist vera á stolnum bíl Kærðir fyrir að aka á nagladekkjum Harður árekstur á Reykjanesbraut Fjármálastjórinn verður sveitarstjóri Bjóða bæjarbúum á bakgarðstónleika Segir hægrið sækja fram gegn náttúruvernd og mannréttindum Leigubílstjóri jók hraðann á rauðu ljósi og ók á eldri konu Ásta endurráðin í Bláskógabyggð Þyrlan kölluð út vegna bílveltu Sjálfstæðisflokkur tekur Framsókn með sér í meirihluta Sögðust ekki ætla að setja börn í lokað búsetuúrræði en nú er tónninn annar Áhyggjur Barnaheilla, veikindi prinsessu og sjómannadagur Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Grunaður um fíkniefnabrot á reynslulausn og neitaði að gefa upp nafn Önnur stúlka grunuð um að hafa sparkað ítrekað í hana Kveður eftir ævilangt starf Styrkja fjarskiptainnviði vegna almyrkvans en ítreka forgang 112 Nærbuxur í sundi landlægt vandamál Sjá meira
Segir ekkert eiga að koma í veg fyrir að Airbus noti Reykjavík Framkvæmdastjóri Isavia Innanlandsflugvalla, Sigrún Björk Jakobsdóttir, telur Reykjavíkurflugvöll hæfan til að taka á móti Airbus-þotum og segir burðarþol flugvallarins nægilegt til að taka við þeim. Hún segir það mat Isavia innanlands að ekkert í regluverkinu eigi að koma í veg fyrir notkun Airbus-véla Icelandair á Reykjavíkurflugvelli til vara. 4. júní 2026 17:17
Icelandair tekur litáíska vél á leigu Icelandair hefur erlenda flugvél í leigu frá litháíska leiguflugfélaginu Heston Airlines. Er um svokallaða blautleigu að ræða og fylgir erlend áhöfn með vélinni. 6. júní 2026 12:49
Engin Icelandair-þota sást á flugsýningunni Flugáhugamenn sem lögðu leið sína á hina árlegu flugsýningu Flugmálafélags Íslands á Reykjavíkurflugvelli í gær undruðust margir að sjá enga af þotum Icelandair birtast, hvorki á flugvellinum sjálfum né í yfirflugi yfir hann. Sumir spurðu sig jafnvel hvort samskipti félagsins og flugmanna þess væru í slíku frosti að ekki væri einu sinni hægt að taka þátt í flughátíð. 31. maí 2026 20:30