Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars Ágúst Orri Arnarson skrifar 7. júní 2026 15:05 Rúnar Sigtryggsson var látinn fara frá Leipzig í fyrra en fyrrum lærisveinar hans komu liðinu sem hann stýrir í dag, Wetzlar, til bjargar. Getty/Alex Grimm Þrátt fyrir að vera fallið úr þýsku úrvalsdeildinni í handbolta tók Leipzig sig til og vann Minden í lokaumferðinni. Það þýðir að Minden fellur með Leipzig niður um deild en Wetzlar heldur sínu sæti.
Lokaumferð þýsku deildarinnar fór fram í dag og spennan var hvað mest í fallbaráttunni. Nýkrýndir meistarar frá Magdeburg mættu Wetzlar, lærisveinum Rúnars Sigtryggssonar, og unnu 30-31 sigur á útivelli. Gísli Þorgeir Kristjánsson og Ómar Ingi Magnússon skoruðu sitt hvor 5 mörk fyrir Magdeburg. Elvar Örn Jónsson skoraði eitt mark fyrir meistarana. Wetzlar sá því ekki sjálft um að bjarga sér frá falli. Leipzig kom liðinu til bjargar með því að vinna Minden með einu marki, 26-25. Ef stangarskot Jakub Sterba, leikmanns Minden, á lokasekúndum leiksins hefði ratað í netið hefði Wetzlar fallið. Rúnar Sigtryggsson er þjálfari Wetzlar og þakkar Leipzig væntanlega fyrir þetta, þó hann hafi verið rekinn frá félaginu í fyrra. Blær Hinriksson skoraði tvö mörk í sigri Leipzig á leiðinni niður um deild. Sviptingar urðu svo á stöðutöflunni þegar Kiel tapaði 31-34 fyrir Lemgo. Með sigrinum tókst Lemgo að taka síðasta lausa Evrópudeildarsætið og skilja þýska stórveldið eftir í sárum.
Þýski handboltinn Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Körfubolti Vinirnir deila heimsmetinu en hvorugur er sigurvegari Sport Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Sex handtekin vegna hrikalegs hneykslis í grískum körfubolta Körfubolti Fleiri fréttir KA - Afturelding | Þurfa sigur til að halda í við toppliðið Reynir Þór með fimm marka leik í Meistaradeildinni Íslensku stelpurnar unnu Pólverja eftir flotta endurkomu Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför Sjá meira