Gervigreind nýtist best með mannlegri þekkingu og reynslu Ásgeir Þorgeirsson skrifar 7. júní 2026 14:32 Hagræðing með gervigreind (AI) virðist ágætis hugmynd. Tæknin æðir áfram, vinnur hratt og kvartar ekki. Við setjum þetta upp í Excel, fækkum stöðugildum og kostnaðurinn fellur við hverja línu. Hundruð milljóna í áætlaðan sparnað er freistandi fyrir alla stjórnendur en tölur segja aðeins hálfa söguna. Erfitt er að mæla þekkingu, reynslu og dómgreind í Excel. Það er sá hluti rekstrarins sem er gjarnan ósýnilegur í skýrslum en verðmætur og jafnvel ómissandi í raunheimum. Kveikjan að þessum skrifum eru nýlegar fréttir um umfangsmiklar uppsagnir í fjármálageiranum. Þær endurspegla þróun sem hefur verið að magnast: trú á að hægt sé að hagræða með því að fækka reyndu fólki. Alþekkt er að ofurtrú skapast við upphaf hverrar tæknibyltingar, eins og Gartner hefur lýst í árlegum greiningum á þróun tækninýjunga. Reynsla mín og þekking á gervigreind gefur tilefni til að hefja nokkur varnaðarorð. Skoðum þetta aðeins. Óskráð- eða leynd þekking (e. tacit knowledge)er sú þekking sem býr í fólki, innsýn þess, reynslu og, hæfileikum og getu til að sjá samhengi og er nauðsynleg fyrir almenna yfirsýn og til að sjá og stýra málum í réttan farveg. Þegar reyndir starfsmenn hverfa á braut tapast þessi þekking og það tap getur engin sjálfvirkni eða gervigreind bætt upp, í það minnsta ekki enn sem komið er. Kostnaður við starfsmannaveltu (e. turnover cost) er alltaf einhver og þá gildir að skoða heildarmyndina. Nýju fólki fylgir óræður kraftur og einnig kostnaður til skemmri tíma, vegna ráðningar, þjálfunar, mistaka og þess tíma sem tekur að byggja upp færni. Þá má velta því upp hvort gervigreind geti komið í stað hugsandi starfsfólks og leyst flestar þrautir hratt og vel. En gervigreindin stendur ekki ein og sér. Gervigreind nýtist aðeins þegar hún vinnur með mannlegri dómgreind, reynslu og almennu samhengi. Þetta má kalla færniblöndun (e. skill complementarity) þar sem nýta má tækni til að margfalda mannlega hæfni og afköst. Ef mannlegi grunnurinn veikist, þá veikist líka hæfni fyrirtækisins til að nýta AI á ábyrgan og árangursríkan hátt. Það sem máli skiptir er að nýta gervigreindina til að örva afköst því það munu á endanum allir gera. Hugmyndin um að leysa fólk af hólmi með gervigreind myndi kannski ganga upp svona bara til að standa nokkurn veginn í stað en um leið og við gerum það er hætt við að öll hugsandi samkeppni þjóti fram úr okkur með reynslu, þekkingu og gervigreind að vopni. Góð nýting gervigreindar byggir á jafnvægi milli hugrænnar getu, hugmyndalegrar hæfni og verklegrar færni eða cognitive, conceptual og mechanical skills. Þetta jafnvægi verður ekki til með því að fækka þeim sem hafa dýpstu innsýnina. Þvert á móti má segja að þeir sem hafa unnið lengi í greininni skilji undantekningar og samhengi. Þeir skilja einnig það sem óljóst er og hvergi má finna í verklýsingum. Mannshugurinn er ótrúlega öflugur. Hvert og eitt okkar býr yfir mögnuðu afli, svo mögnuðu að það er erfitt að skilja hvernig það rúmast allt í hverjum haus. Gervigreind getur lesið hratt, unnið hratt og leyst ótrúlegustu hluti, skrifað kóða, spjallað, skapað og skáldað. En hún mun keyra okkur jafn hratt út í skurð ef hún nýtur ekki aðhalds og innsæis. Það er þessi samvinna gervigreindar og manns sem nýta þarf af skynsemi til framfara og sköpunar. Hæfnispírall niður á við (e. competency death spiral) getur skapast þegar fyrirtæki skera niður þekkingu og reynslu. Þekking tapast, mistökum fjölgar, þjónusta versnar, tekjur lækka og þá er skorið enn meira niður. Þetta er vítahringur sem hefur ekkert með raunverulega hagræðingu að gera. Efnahagslegt ójafnvægi getur skapast ef hart er skorið niður í ofurtrú á gervigreind. Það erum jú við mannfólkið sem kaupum vörur og þjónustu flestra fyrirtækja og greiðum vexti og kostnað. Þegar tekjur hverfa hverfur líka greiðslugeta samfélagsins. Fyrirtæki sem telja sig spara með því að fækka reyndu fólki eru í raun að veikja eigin grunn, bæði rekstrarlega og samfélagslega. Sparnaðinn má sjá í Excel, en reynslan sýnir að niðurstaðan verður oft önnur en til stóð. Hugsum til framtíðar. Höfundur er hugbúnaðarverkfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Gervigreind Tengdar fréttir Uppsagnir hjá Kviku banka Ellefu starfsmönnum hefur verið sagt upp hjá Kviku banka eftir að ráðist var í hagræðingaraðgerðir. Alls hefur stöðugildum fækkað um átján það sem af er ári. 4. júní 2026 12:34 Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Um fjörutíu manns hefur verið sagt upp hjá Rapyd á Íslandi. Ástæðan eru skipulagsbreytingar á alþjóðavísu en gervigreind á að leysa af hólmi fjölda starfsmanna, miðað við bréf forstjóra alþjóðasamsteypunnar til starfsmanna. 28. maí 2026 12:58 Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Sjá meira
Uppsagnir hjá Kviku banka Ellefu starfsmönnum hefur verið sagt upp hjá Kviku banka eftir að ráðist var í hagræðingaraðgerðir. Alls hefur stöðugildum fækkað um átján það sem af er ári. 4. júní 2026 12:34
Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Um fjörutíu manns hefur verið sagt upp hjá Rapyd á Íslandi. Ástæðan eru skipulagsbreytingar á alþjóðavísu en gervigreind á að leysa af hólmi fjölda starfsmanna, miðað við bréf forstjóra alþjóðasamsteypunnar til starfsmanna. 28. maí 2026 12:58
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar