Kveður eftir ævilangt starf Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 5. júní 2026 22:03 Hundurinn Skotta fékk að mæta með á síðasta degi Birnu. Vísir/Ívar Fannar Nýir eigendur húsgagnafyrirtækis vilja alls ekki sleppa alveg hendinni af einhverjum dýrmætasta starfsmanni sínum sem hefur starfað þar í um 60 ár. Hún segir sjálf að nú sé komið að tímamótum.
Birna Ragnarsdóttir hefur starfað hjá íslenska framleiðendanum RB Rúm alla ævi en Ragnar Björnsson, faðir hennar heitinn, stofnaði fyrirtækið árið 1943. Er það því eitt elsta fyrirtæki Hafnarfjarðar. „Ég hef verið hér eiginlega bara frá því ég man eftir mér. Ég hef verið hér í rétt sextíu ár,“ segir Birna. „Á fermingaraldri byrjaði ég að vinna hér um jól, páska og sumarfrí en ég hef verið alveg föst síðan 1981.“ Eftir að nýir eigendur tóku við hefur Birna ákveðið að láta af störfum. „Það eru tímamót, komnir nýir eigendur og kominn tími til að ég láti mig hverfa,“ segir hún. „Ég á eftir að fylgjast með, athuga hvort þetta sé ekki í lagi hjá þeim,“ segir Birna létt í bragði. Hún ætlar núna að nýta tímann í ferðalög auk þess sem hún festi kaup á sumarbústað. Bera virðingu fyrir sögunni Nýir eigendur hafa þó ekki alveg sagt skilið við Birnu. „Hún hefur reynst okkur gríðarlega dýrmæt í þessu ferli. Við erum ekkert alveg búnir að sleppa tökunum á henni,“ segir Þorvaldur Ingimundarson, einn eigenda hjá RB Rúm. „Ætli við gefum henni ekki sumarið allavega, leyfa henni að njóta sumarsins og svo erum við með símann hjá henni,“ segir hann léttur í bragði. Það sé örlítið taugatrekkjandi á köflum að taka við rekstri sem hefur svo langa sögu. „RB rúm er búið að framleiða rúm, íslensk gæðarúm, síðan 1943, og hérna inni erum við að smíða botna og annars staðar erum við að setja saman dýnurnar og sauma áklæði,“ segir Þorvaldur. „Maður ber mikla virðingu fyrir sögunni og maður vill halda henni á lofti. Það er ákveðin virðing sem maður ber fyrir þessu sem er skemmtilegt og spennandi.“
Tímamót Hafnarfjörður Mest lesið Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent Hafi verið beggja vegna borðsins Innlent „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Innlent Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Erlent Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Erlent Fleiri fréttir Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Sjá meira