Sættust um bikbreiðuna Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 4. júní 2026 14:54 Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur og Höfði malbik deilir um losun á biki. Vísir/Vilhelm Fulltrúar Heilbrigðiseftirlitsins og Malbikunarstöðvarinnar Höfða náðu sátt um hvað skyldi gera við stóra bikbreiðu á svæði sem var áður starfssvæði stöðvarinnar. Til stóð að endurnýta efnið en því verður fargað.
Rúv greindi frá stórum mengunarpolli á svæði við Sævarhöfða þar sem starfsemi Malbikunarstöðvarinnar Höfða var áður á lóð í eigu Reykjavíkurborgar. Árið 2022 ákvað borgin að þar skyldi byggja íbúðablokkir og festi fyrirtækið kaup á lóð við Álhellu í Hafnarfirði. Síðan þá hafa flutningar og tiltekt staðið yfir. Um er að ræða stóra bikbreiðu en er fréttastofu bar að garði voru þar fulltrúar Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur og Malbikunarstöðvarinnar. Malbikunarstöðin vinnur að því að flytja alla starfsemi sína í Hafnarfjörð.Vísir/Vilhelm „Við fáum ábendingu um það að það sé óviðeigandi meðhöndlun úrgangs á þessu svæði og við fórum og könnuðum hvernig aðstæður væru. Við teljum þetta ekki vera fullnægjandi meðhöndlun á þessu efni og úrgangi sem er hérna á svæðinu og við höfum óskað eftir að farið verði í hreinsun og þetta efni flutt á stað sem hefur leyfi til að taka við því,“ segir Svava Svanborg Steinarsdóttir, verkefnastjóri og heilbrigðisfulltrúi hjá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur. Svava mætti á svæðið eftir að Heilbrigðiseftirlitinu barst tilkynning.Vísir/Vilhelm Fyrirætlanir Malbikunarstöðvarinnar voru að flytja efnið yfir á Álhellu og endurnýta það í annars konar verkefni. Svava vísar í starfsleyfi fyrirtækisins sem veitt er af Umhverfis- og Orkustofnun en þar segir að fyrirtækið megi ekki taka við slíkum úrgangi á nýjum stað. „Við munum fara í það núna að gera úttekt á svæðinu og skoða meðhöndlun á úrganginum sem er hér í gangi, það er stórt niðurrifsverkefni í gangi. Þá munum við láta hreinsa ef um mengun er að ræða og ganga frá öllum efnum og úrgangi á fullnægjandi hátt.“ Ákveðið hefur verið að farga bikinu.Vísir/Vilhelm Hlýða Heilbrigðiseftirlitinu Í kjölfar þess að starfsmenn Heilbrigðiseftirlitsins og Malbikunarstöðvarinnar tóku út svæðið funduðu þau með Birki Hrafni Jóakimssyni, framkvæmdastjóra Malbikunarstöðvarinnar. Er þau stigu út af fundinum hafði verið ákveðið að farga ætti efninu. „Við töldum okkur geta endurnýtt þetta en það er ekki skilningur heilbrigðisyfirvalda þannig að við förum með þetta í urðun fyrir mengaðan jarðveg og það er bara endirinn á því máli,“ segir Birkir Hrafn. Birkir Hrafn var hress eftir fundinn.Vísir/Vilhelm „Við ætluðum að reyna að endurnýta þetta og litum á þetta sem ákveðin verðmæti en heilbrigðiseftirlitið lítur öðruvísi á og við heyrum undir það og hlýðum því sem það segir.“
Umhverfismál Heilbrigðiseftirlit Reykjavík Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Fleiri fréttir „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Sjá meira