Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 4. júní 2026 06:03 Forsætisráðherra, fjármálaráðherra og formaður hagræðingarhóps ríkisstjórnarinnar kynnti tillögurnar á blaðamanafundi í mars 2025. Vísir/Anton Brink Af þeim tæplega sextíu hagræðingartillögum sem kynntar voru fyrir rúmu ári síðan hafa fimm komið til aðgerða. Ljúka átti rúmum tuttugu aðgerðum fyrir árslok 2025 og 2026 en er vinna að þeim ekki hafin. Þetta kemur fram í nýrri úttekt Viðskiptaráðs.
Þann 4. mars 2025 kynnti ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur 57 hagræðingartillögur á blaðamannafundi. Ráðgert var að tillögurnar myndu fela í sér sparnað upp á 71 milljarð króna á árunum 2026 til 2030. Óskað var eftir tillögum frá almenningi sem hagræðingarhópur ríkisstjórnarinnar fór yfir. Af þeim 57 hagræðingaraðgerðum sem starfshópur ríkisstjórnarinnar lagði til vorið 2025 hafa fimm komið til framkvæmda, tuttugu eru í vinnslu, sex eru áformaðar en ekki er hafin vinna við 26. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Viðskiptaráðs. Ekki snert á fjórtán af 27 Samkvæmt áætluninni á að ljúka 27 aðgerðum fyrir lok árs 2026. Tveimur þeirra er nú þegar lokið, fjórar áformaðar, sjö í vinnslu og fjórtán ekki hafnar. „Dæmi um aðgerðir sem ríkisstjórnin hefur lokið við eru lögleiðing stöðugleikareglu í ríkisfjármálum og aflétting á jafnlaunavottun, með því að hækka stærðarmörk fyrirtækja sem falla undir þá skyldu og innleiða skýrslugjöf í stað vottunar,“ segir í greiningu Viðskiptaráðs. Meðal aðgerða sem eru í vinnslu er sameining sjóða innan ráðuneyta, aðlögun starfsmannalaga, sameining fámennra stofnana og stofnsetning Þjónustumiðstöðvar ríkisins. Nú þegar hafa stjórnvöld byrjað að vinna að hinum þremur aðgerðunum án þess að þeim sé lokið. „Þar má t.d. nefna Þjónustumiðstöð ríkisins. Hún átti að verða til við sameiningu sýslumannaembættanna sem var samþykkt á Alþingi, en í framhaldi af því stóð til að sameina Þjóðskrá við stofnunina og skoða kosti þess að Útlendingastofnun yrði jafnframt sameinuð henni. Sá hluti er ókláraður,“ segir í úttektinni. 22 aðgerðir í vanskilum Ljúka átti 22 aðgerðum árin 2025 og 2026 en vinnan er ekki hafin, þar af eru átta aðgerðir sem átti að ljúka á síðasta ári. Meðal aðgerðanna sem ekki tókst að ljúka á liðnu ári er að skoða fjármagnsskipan Náttúruhamfaratryggingar Íslands, leggja niður nýsköpunarsjóðinn Kríu og sjá til þess að umsækjendur um opinber störf geti óskað nafnleyndar. Auk þess stóð til dæmis til að ljúka við stofnun Listamiðstöðvar Íslands, sameina Tryggingastofnun og Sjúkratryggingar og leggja niður ráðstöfunarfé ráðherra fyrir lok þessa árs. „Það er stöðugt verkefni að rýna, endurskoða og bæta rekstur ríkisins með bætta nýtingu skattfé fyrir augum. Jákvætt var að ríkisstjórnin skyldi í upphafi kjörtímabilsins kalla eftir tillögum að hagræðingu í rekstri hins opinbera. Hins vegar sýnir yfirferð Viðskiptaráðs að stór hluti þeirra hagræðingaraðgerða sem lagðar voru til hafa annaðhvort tafist eða ekki komist til framkvæmda,“ segir í úttektinni. „Það er mikilvægt að hagræðing verði ekki aðeins áform á blaði og framkvæmd þeirra takmarkist ekki við yfirlýsingar heldur skili raunverulegum breytingum í rekstri hins opinbera og betri nýtingu skattfjár.“ Sjö bíða afgreiðslu Að lokum eru sjö mál sem bíða afgreiðslu á Alþingi og teljast til hagræðingaraðgerða stjórnvalda. Þar á meðal er sameining MAST, Fiskistofu og Verðlagsstofu skiptaverðs, afnám áminningarskyldu opinberra starfsmanna og flutningur afgreiðslu atvinnuleyfa frá Vinnumálastofnun til Útlendingastofnunar.
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Rekstur hins opinbera Viðreisn Samfylkingin Flokkur fólksins Mest lesið „Biðin er dýrust“ Viðskipti innlent Kalla inn pylsur vegna prentvillu Neytendur Blæs á fullyrðingar um forsendubrest og segir kaupmátt hafa aukist Viðskipti innlent Fjórðungi minni hagnaður hjá Kviku Viðskipti innlent Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Viðskipti innlent Auglýsa grimmt en vörurnar berast ekki: Myndir þekktra Íslendinga notaðar Viðskipti innlent Ísfélagið eykur verulega við sig í fiskeldinu Viðskipti innlent Skúli Hrafn tekur við Íslandssjóðum Viðskipti innlent Íslandsbanki spáir 0,25 prósent hækkun stýrivaxta Viðskipti innlent Tollar kísilframleiðslu í Kína Viðskipti erlent Fleiri fréttir „Biðin er dýrust“ Fjórðungi minni hagnaður hjá Kviku Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Blæs á fullyrðingar um forsendubrest og segir kaupmátt hafa aukist Auglýsa grimmt en vörurnar berast ekki: Myndir þekktra Íslendinga notaðar Skúli Hrafn tekur við Íslandssjóðum Ísfélagið eykur verulega við sig í fiskeldinu Íslandsbanki spáir 0,25 prósent hækkun stýrivaxta Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Skordýr í dillinu Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Paellu-gerðarmenn kveðja Templarasund Sólmyrkvagleraugun víða uppseld Kaupendur yfirleitt með raunhæft mat og vel undirbúnir Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Farþegar elska lopapeysur Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Fer frá laxeldi í eldri borgara Farþegum fækkaði milli ára Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Von á hóflegum hagvexti næstu árin Ingibjörg og Tómas taka við af Þórunni hjá Úrval Útsýn Rikka hætt hjá Ólafi Ragnari Eykur strandveiðikvótann um 964 tonn Sjá meira