Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Sindri Sverrisson skrifar 30. maí 2026 17:08 DeAndre Kane bíður nú eftir niðurstöðu fjölskyldudóms. DeAndre Kane, lykilmaður Íslandsmeistaraliðs Grindavíkur í körfubolta, var handtekinn í gærkvöld við komuna heim til Pittsburgh.
Hinn 36 ára gamli Kane var handtekinn þegar hann lenti á alþjóðaflugvellinum í Pittsburgh eftir að hafa ferðast frá Íslandi. Samkvæmt frétt CBS News skuldar Kane 100.000 Bandaríkjadali í meðlagsgreiðslur, eða um 12,3 milljónir króna. Miðillinn hefur eftir embætti sýslumanns í Pittsburgh að Kane hafi verið eftirlýstur síðan árið 2023 þegar hann mætti ekki fyrir fjölskyldudómstól. Þetta sama ár gekk Kane í raðir Grindavíkur og hóf að spila í Bónus-deildinni þar sem hann hefur verið afar áberandi sem einn besti leikmaður í sögu deildarinnar en jafnframt fyrir gagnrýniverða framkomu, nú síðast í úrslitaeinvíginu við Tindastól. Samkvæmt frétt CBS News í dag er Kane nú haldið í Allegheny-sýslufangelsinu á meðan að hann bíður þess að koma fyrir fjölskyldudóm. Kane, sem er frá Pittsburgh, hefur verið atvinnumaður í körfubolta í tólf ár, eftir að hann var ekki valinn í nýliðavali NBA-deildarinnar 2014. Hann hefur meðal annars spilað í EuroLeague, sterkustu félagsliðakeppni Evrópu, með ísraelska liðinu Maccabi Tel Aviv þar sem þeir Jeremy Pargo spiluðu saman en þeir endurnýjuðu svo kynni sín hjá Grindavík
UMF Grindavík Bónus-deild karla Mest lesið Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Fótbolti Systir Ronaldos tók til varna og hraunaði yfir portúgölsku þjóðina Fótbolti Yfirmenn Heimis teknir á teppið Fótbolti Jesus sveik lærisveininn Fótbolti Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Enski boltinn „Alla vikuna höfum við verið afskrifuð af ykkur fjölmiðlum“ Sport Berar konur í FC 27 en EA lofar bót og betrun Fótbolti Tók boltann með höndum og kostaði Arsenal tvö stig Fótbolti Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Enski boltinn Ronaldo tilkynnir að hann sé á förum frá landsliðinu Fótbolti Fleiri fréttir Uppgjörið: Valur - Njarðvík 77-64| Valur skellti Íslandsmeisturunum Haukar létu Fjölni bíða eftir fyrstu stigum tímabilsins Sigurganga Tindastóls í Evrópu heldur áfram Setti silfurliðið í sjötta sæti: Nýr þjálfari og þynnri hópur „Ég hef miklar áhyggjur af Valsstelpunum“ „Þurfum að bæta varnarleikinn umtalsvert“ „Baráttan góð en margt sem við þurfum að gera betur“ Grindavík hóf tímabilið á stórsigri Uppgjörið: KR - Stjarnan 94-87 | KR-ingar höfðu betur í sveiflukenndum leik Grænn Rúnar dró Grindavík Meiri pressa á sterkara KR-liði Lebron talaði hreint út Tröllvaxinn Tryggvi hóf tímabilið af krafti Tindastóll með fullt hús stiga í Evrópu eftir spennutrylli Uppgjörið: Njarðvík - Keflavík 83-78| Njarðvíkingar eru meistarar meistaranna Njarðvík spáð toppsætinu og nýliðarnir verma botninn Martin frábær í sigurleik Stólarnir unnu fyrsta leik sannfærandi Martin byrjar nýtt tímabil eins og hann endaði síðasta Kjartan snýr aftur á Álftanes: „Baldur bara bað mig um að koma“ Beinið brotnaði í tvennt og Ólafur fer varlega Losa Leonard eftir refsinguna Bandaríkin unnu fimmta heimsmeistaratitilinn í röð Bandaríkin og Frakkland mætast í úrslitum heimsmeistaramótsins Pargo verður áfram hjá Grindavík Þrjár Evrópuþjóðir í undanúrslitum Stærsta körfuboltakona heims gnæfir yfir mótherja sína Lakers á undan Bulls að reisa styttu af Phil Jackson Falko farinn frá ÍR Hætti er liðið sótti rússneskan leikmann Sjá meira