Körfubolti

Kane hand­tekinn fyrir að skulda með­lag

Sindri Sverrisson skrifar
DeAndre Kane bíður nú eftir niðurstöðu fjölskyldudóms.
DeAndre Kane bíður nú eftir niðurstöðu fjölskyldudóms.

DeAndre Kane, lykilmaður Íslandsmeistaraliðs Grindavíkur í körfubolta, var handtekinn í gærkvöld við komuna heim til Pittsburgh.

Hinn 36 ára gamli Kane var handtekinn þegar hann lenti á alþjóðaflugvellinum í Pittsburgh eftir að hafa ferðast frá Íslandi.

Samkvæmt frétt CBS News skuldar Kane 100.000 Bandaríkjadali í meðlagsgreiðslur, eða um 12,3 milljónir króna.

Miðillinn hefur eftir embætti sýslumanns í Pittsburgh að Kane hafi verið eftirlýstur síðan árið 2023 þegar hann mætti ekki fyrir fjölskyldudómstól.

Þetta sama ár gekk Kane í raðir Grindavíkur og hóf að spila í Bónus-deildinni þar sem hann hefur verið afar áberandi sem einn besti leikmaður í sögu deildarinnar en jafnframt fyrir gagnrýniverða framkomu, nú síðast í úrslitaeinvíginu við Tindastól.

Samkvæmt frétt CBS News í dag er Kane nú haldið í Allegheny-sýslufangelsinu á meðan að hann bíður þess að koma fyrir fjölskyldudóm.

Kane, sem er frá Pittsburgh, hefur verið atvinnumaður í körfubolta í tólf ár, eftir að hann var ekki valinn í nýliðavali NBA-deildarinnar 2014. Hann hefur meðal annars spilað í EuroLeague, sterkustu félagsliðakeppni Evrópu, með ísraelska liðinu Maccabi Tel Aviv þar sem þeir Jeremy Pargo spiluðu saman en þeir endurnýjuðu svo kynni sín hjá Grindavík




Fleiri fréttir

Sjá meira


×