Skýrslan um krónuna sýni að valkostirnir séu tveir Oddur Ævar Gunnarsson og Smári Jökull Jónsson skrifa 29. maí 2026 14:25 Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra. Vísir/Anton Brink Kostnaður við íslensku krónuna er verulegur og líklega að jafnaði meiri en sá ábati sem fylgir sjálfstæðum gjaldmiðli, að mati erlends sérfræðingahóps sem fjármála-og efnahagsráðuneytið fól að vinna skýrslu um valkosti Íslands í gjaldmiðlamálum. Fjármálaráðherra segir skýrsluna sýna að valkostir Íslands séu bara tveir, áframhaldandi ástand eða upptaka evru í gegnum aðild að Evrópusambandinu.
Í tilkynningu frá stjórnarráðinu kemur fram að skýrslunni sé ætlað að leggja grunn að upplýstri umræðu um framtíðarfyrirkomulag gjaldmiðlamála á Íslandi. Fjármálaráðuneytið muni efna til ráðstefnu um efni skýrslunnar í Hörpu þann 2. júní. Skýrslan er skrifuð af hópi erlendra sérfræðinga undir stjórn Catherine L. Mann, fyrrum aðalhagfræðings OECD, sem situr í peningastefnunefnd seðlabanka Evrópu. Einnig voru í hópnum Hilde Christiane Bjørnland, prófessor við Norska viðskiptaháskólann, Steinar Holden, prófessor við Háskólann í Osló, og Stijn Claessens, fyrrverandi aðstoðarframkvæmdastjóri hagfræðisviðs Alþjóðagreiðslubankans, BIS, sem nú starfar við Yale-háskóla. Telja umbætur á vinnumarkaði nauðsynlegar óháð öðru „Höfundar telja að gengi krónunnar sé ekki til þess fallið að stuðla að efnahagslegum stöðugleika, nema í stóráföllum og að gengissveiflur hafi oft fremur magnað en dregið úr áhrifum efnahagsskella. Þá er bent á að upptaka evru gæti haft í för með sér lægri vexti, minni viðskiptakostnað, aukinn stöðugleika og betri aðgang að fjármálamörkuðum,“ segir í tilkynningu stjórnarráðsins. Skýrsla_um_valkosti_Íslands_í_gjaldmiðlamálum_-_001PDF15.2MBSækja skjal „Á móti bendir skýrslan á að upptaka evru myndi fela í sér að Ísland gæfi upp sjálfstæða peningastefnu. Þá myndi aukin ábyrgð færast yfir á ríkisfjármál, vinnumarkað og aðra hagstjórn til að tryggja stöðugleika. Umbætur á vinnumarkaði eru taldar nauðsynlegar óháð fyrirkomulagi gengismála. Slíkar umbætur væru þó forsenda farsællar aðildar að myntbandalagi, að mati skýrsluhöfunda.“ Mikilvægt að kostir og gallar ólíkra leiða séu ræddir „Þetta er semsagt skýrsla sem hefur verið unnin af ytri sérfræðingum, þá vinnu hefur leitt hagfræðingurinn Catherine Mann sem var áður aðalhagfræðingur OECD og niðurstaðan er skýr hvað varðar valkosti Íslands. Þeir eru í sjálfu sér bara tveir, það er áframhaldandi óbreytt ástand eða upptaka evru í gegnum aðild að Evrópusambandinu,“ segir Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra í samtali við fréttastofu. Hann segir niðurstöðuna líka sýna að kostirnir við krónuna og kostnaður séu að mati skýrsluhöfunda ekki réttlætanlegur. Umræðan sé svo hvað gert verði við skýrsluna sem Daði segir að sé mun meira afgerandi en úttekt sem gerð hafi verið af Seðlabankanum árið 2012. Hvernig meturðu þessa skýrslu sem innlegg í þessa umræðu í tengslum við þjóðaratkvæðagreiðsluna í ágúst? „Ég held það sé bara mjög mikilvægt að við ræðum alla þessa hluti og kosti og gallra ólíkra leiða. Það er líka mikilvægt að hafa í huga að umræða um þessi málefni hefur verið í nágrannalöndunum eins og í Svíþjóð. Þar er niðurstaðan sú sama jafnvel þó að kostnaður Íslands af því að vera með sjálfstæðan gjaldmiðil sé umtalsverð meiri heldur en Svíþjóðar, er það mat sænskra sérfræðinga að upptaka evru væri mjög vænlegur kostur fyrir sænskt hagkerfi til lengri tíma litið.“ Fjallað verður um efni skýrslunnar á opinni ráðstefnu í Hörpu þann 2. júní næstkomandi. Catherine L. Mann, sem fer fyrir hópi skýrsluhöfunda, mun gera grein fyrir helstu niðurstöðum og taka þátt í pallborði. Þá munu Daði Már Kristófersson fjármála- og efnahagsráðherra og Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri flytja ávarp. Einnig verður ávarp frá ECB seðlabanka Evrópu. Að loknum ávörpum fara fram pallborðsumræður.
Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Íslenska krónan Efnahagsmál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Innlent Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Innlent Fleiri fréttir „Hrokinn í þessum fjármálaráðherra er með þvílíkum ólíkindum“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Sjá meira