Verður Aron þjálfari FH? Valur Páll Eiríksson skrifar 25. maí 2026 22:45 Aron Pálmarsson er tekinn við nýju hlutverki hjá FH. vísir Handkastið greinir frá því að Aron Pálmarsson muni taka við þjálfun karlaliðs FH í handbolta. Sigursteinn Arndal verði aðstoðarþjálfari.
Svo segir í frétt Handkastsins frá því í morgun. Aron kom inn í þjálfarateymi FH í febrúar síðastliðnum og tók að sér að stýra sóknarleik liðsins. Áður var hann sérstakur ráðgjafi handknattleiksdeildar félagsins. Það er staða sem hann tók við sumarið 2025. Síðasta haust sagðist Aron ekki hafa áhuga á þjálfun en sú skoðun virðist hafa breyst síðan. Hann var áberandi í úrslitakeppninni þar sem hann stýrði flestum leikhléum liðsins og stillti sóknarleikinn af. FH tapaði fyrir Val í oddaleik um Íslandsmeistaratitilinn. Sigursteinn Arndal hefur verið þjálfari FH frá árinu 2019 og stýrði liðinu til Íslandsmeistaratitils árið 2024. Þá var Aron leikmaður liðsins. Samkvæmt Handkastinu muni Sigursteinn ekki hætta í Krikanum en taka að sér að vera aðstoðarþjálfari Arons. Aron lauk ferli sínum sem leikmaður á síðasta ári þar sem hann spilaði eina leiktíð með Veszprem í Ungverjalandi eftir að hafa komið heim í FH og unnið Íslandsmeistaratitilinn vorið 2024. Hann er einn allra besti handboltamaður sögunnar og raðaði inn titlum með Kiel, Barcelona, Veszprem og Álaborg í Danmörku. Hann vann þýsku úrvalsdeildina fimm sinnum, þá spænsku fjórum sinnum og þá ungversku tvisvar. Þá vann hann Meistaradeild Evrópu þrisvar, einu sinni með Barcelona og tvisvar með Kiel. Aron skoraði 576 mörk í 148 landsleikjum fyrir Ísland og vann með liðinu brons á EM 2010.
FH Olís-deild karla Mest lesið Neitar að hafa tekið þátt í mannráni Enski boltinn „Getur vel verið að ég sé bara með Aftureldingargleraugu“ Fótbolti FIFA dæmir tvo í lífstíðarbann Fótbolti Myndasyrpa: Gleðin við völd í Laugardal Íslenski boltinn Sautján mörk Gunnars dugðu skammt Handbolti „Ef ég hefði fengið að velja þá hefði ég alltaf valið eldinguna“ Sport Viktor skoraði í fjórða sigrinum í röð Fótbolti „Maður skal brennimerkja þessa stund í hjarta sínu og sál“ Íslenski boltinn „Maður er í þessu til þess að vinna titla“ Fótbolti Haukur leiddi endurkomu Löwen Handbolti Fleiri fréttir Haukar á flugi Sautján mörk Gunnars dugðu skammt Fram á toppinn og flautumark á Selfossi Haukur leiddi endurkomu Löwen Danskt stórlið búið að klófesta Elínu Klöru ÍBV samdi við bandarískan hermann „Pirraðastur er ég yfir þessum tíu lokamínútum“ Uppgjörið: Afturelding - FH 33-33 | Allt jafnt eftir háspennuleik Þórsarar komnir á blað Sextán íslensk mörk í Meistaradeildinni Kanalausir Eyjamenn unnu Suðurlandsslaginn Reynir að skáka og máta „einn efnilegasta þjálfara í heimi“ ÍBV fær bandarískan liðsauka Íslendingaliðin ekki í vandræðum í Meistaradeildinni Fullkomin skotnýting Bjarka Más í spennutrylli Meistaradeildin spiluð með nýju fyrirkomulagi Guðjón Valur með augastað á landsliðsmanni Íslands ÍBV hreppir Magnús Dag frá KA „Eru og voru ekki mínir bestu vinir“ Aron og Kúveit redda strákunum okkar eftir svik Egypta Tveir nýliðar í landsliðshópnum Hættur hjá danska landsliðinu eftir samskipti við unga leikmenn Freyr frábær í stórsigri á ÍBV Varamaður Ómars hetja Magdeburgar Skoraði fimmtán mörk Díana og Elín Rósa töpuðu í Meistaradeildinni Afturelding vann síðari hálfleikinn sem var leikinn tveimur dögum eftir þann fyrri Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Arnar Freyr og félagar í Flensburg áfram með fullt hús Selfoss þakkaði sæti í Olís-deildinni með því að vinna meistarana í fyrsta leik Sjá meira