„Þetta small saman í kvöld“ Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 22. maí 2026 21:38 Anton Logi Lúðvíksson var frábær í liði Blika í kvöld. vísir / guðmundur „Þetta bara verður ekki betra,“ sagði Anton Logi Lúðvíksson, leikmaður Breiðabliks, eftir 6-3 sigur liðsins gegn KR í Bestu-deild karla í knattspyrnu í kvöld.
Anton var einn af fjölmörgum sem áttu glimrandi leik í liði Blika í kvöld, en hann skoraði eitt og lagði upp önnur tvö. „Við vorum bara með kveikt á okkur frá fyrstu mínútu. Við vissum hvaða orkustig KR-ingar myndu koma með inn í leikinn og það var bara mjög mikilvægt fyrir okkur að ná forystunni snemma. Þeir komast inn í leikinn, en við svörum alltaf um hæl og náum alltaf inn örðu marki. Við erum alltaf með þessa tveggja marka forystu í gegnum leikinn og svo byrjum við seinni hálfleikinn frábærlega. Við mættum með sama orkustig og þeir og það var það sem skóp sigurinn.“ Hann ítrekar mikilvægi þess að Blikar hafi náð að skora tvö mörk snemma í síðari hálfleik til að gera svo gott sem út um leikinn, sérstaklega í ljósi þess að KR-ingar minnkuðu muninn stuttu fyrir hlé. „Það var bara algjör lykill í dag. Við vissum að þeir myndu koma æstir út í seinni hálfleikinn verandi búnir að minnka muninn. Þeir hafa verið tveimur mörkum undir í hálfleik áður og við vitum alveg hvað þeir geta. Við þurftum að svara strax og við gerðum það bara í byrjun seinni. Þetta var bara gríðarlega góð frammistaða hjá öllu liðinu í dag.“ Blikar pressuðu maður á mann allan leikinn í kvöld og Anton segir að það sé ein af nokkrum leiðum til að vinna KR. „Það eru nokkrar leiðir til að mæta KR. Það er hægt að falla niður, það er hægt að pressa og það er líka hægt að pressa markmanninn. Við ákváðum að láta Dóra (Halldór Snær Georgsson, markmann KR) vera og ég held að það hafi bara gengið ágætlega. Þeir náðu lítið af þessu samspili inni á miðjunni sem þeir hafa verið að ná mikið í sumar. Þetta var bara vel útfærður leikur hjá okkur.“ Að lokum segir Anton að sigur sem þessi muni gefa liðinu vítamínsprautu inn í næstu leiki, eftir súr töpuð stig í síðustu tveimur deildarleikjum. „Algjörlega. Ef við bara horfum á töfluna sjáum við að ef við hefðum ekki unnið þá hefðum við verið komnir allt of lang á eftir KR og Víking. Við erum búnir að vera fínir í síðustu leikjum á móti FH og Val en úrslitin hafa ekki verið að koma. Þetta small saman í kvöld,“ sagði Anton að lokum.
Íslenski boltinn Breiðablik Besta deild karla KR Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Segir félagið í skítnum Enski boltinn Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sport Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 Fyrstur síðan David Robinson var og hét Körfubolti Fleiri fréttir Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Sjá meira