Handbolti

Haukur mikil­vægari en Gidsel

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Mathias Gidsel er besti handboltamaður heims en Haukur Þrastarson er stoðsendingahæsti leikmaður þýsku deildarinnar.
Mathias Gidsel er besti handboltamaður heims en Haukur Þrastarson er stoðsendingahæsti leikmaður þýsku deildarinnar. getty

Haukur Þrastarson er sá mikilvægasti fyrir sitt lið af öllum leikmönnum þýsku úrvalsdeildarinnar í handbolta.

Enginn leikmaður hefur komið að hærra hlutfalli af mörkum hjá sínu liði en Haukur hefur gert hjá Rhein-Neckar Löwen á tímabilinu.

Haukur hefur skorað 190 mörk og gefið 177 stoðsendingar fyrir RN Löwen (8. sæti), sem þýðir að hann hefur komið að 39 prósent allra marka liðsins.

Aðeins einn leikmaður hefur komið að fleiri mörkum en Haukur og það er sjálfur Mathias Gidsel, besti handboltamaður heims, sem hefur skorað 269 mörk og gefið 124 stoðsendingar fyrir Fuchse Berlin (2. sæti). Gidsel hefur komið að 37 prósent allra marka Fuchse Berlin.

Hlutfallslega er Haukur því mikilvægasti leikmaður deildarinnar fyrir sitt lið.

Hann verður krýndur stoðsendingakóngur þýsku deildarinnar og gæti enn bætt við markaframlögum því þrjár umferðir eru eftir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×