Sjáðu öll mörkin: Hrafnhildur Ása og Sigríður í ham Sindri Sverrisson skrifar 21. maí 2026 11:00 FH-konur stöðvuðu sigurgöngu ÍBV og eru nú tveimur stigum á eftir Eyjakonum sem sitja í 2. sæti en fimm stigum á eftir toppliði Breiðabliks. vísir/Guðmundur Íslandsmeistarar Breiðabliks náðu þriggja stiga forskoti á toppi Bestu deildar kvenna í fótbolta þegar 5. umferðin fór fram í gær. Öll mörkin úr leikjunum fimm má sjá á Vísi. Einn leikjanna var þó markalaus en það var botnbaráttuslagur Vals og Fram á Hlíðarenda. Framkonur náðu þar í sitt fyrsta stig en eru enn þremur stigum á eftir Val og stigi á eftir Þór/KA. Standings provided by Sofascore Breiðablik vann Þór/KA 3-1 á Akureyri og þar var hin 19 ára Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir áfram í stuði en hún er komin með þrjú mörk á leiktíðinni. Hún fiskaði vítið sem fyrsta mark leiksins kom úr, skoraði annað markið og var svo einnig viðloðandi þriðja markið áður en Hulda Ósk Jónsdóttir náði að laga stöðuna í lokin. FH varð fyrsta liðið til að vinna ÍBV í sumar og það með stæl því liðið fagnaði 3-0 sigri í Kaplakrika í gær. Birna Kristín Björnsdóttir skoraði fyrsta markið snemma leiks og þær Ída Marín Hermannsdóttir, úr víti, og Helena Errington bættu við mörkum í seinni hálfleik. Þróttarinn Sigríður Theódóra Guðmundsdóttir skoraði svo tvö mörk gegn Víkingi, í 4-1 sigri, og er komin með fjögur mörk í síðustu þremur deildarleikjum auk þess að hafa komið inn á sem varamaður og skorað í bikarsigrinum gegn Breiðabliki á dögunum. Nýliðar Grindavíkur/Njarðvíkur hafa byrjað leiktíðina af krafti en urðu að sætta sig við 1-1 jafntefli gegn Stjörnunni eftir jöfnunarmark Ingibjargar Lúcíu Ragnarsdóttur á 90. mínútu. Lily Farkas hafði komið heimakonum yfir á 10. mínútu. Næsta umferð verður öll spiluð næsta mánudag, á öðrum í hvítasunnu.
Einn leikjanna var þó markalaus en það var botnbaráttuslagur Vals og Fram á Hlíðarenda. Framkonur náðu þar í sitt fyrsta stig en eru enn þremur stigum á eftir Val og stigi á eftir Þór/KA. Standings provided by Sofascore Breiðablik vann Þór/KA 3-1 á Akureyri og þar var hin 19 ára Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir áfram í stuði en hún er komin með þrjú mörk á leiktíðinni. Hún fiskaði vítið sem fyrsta mark leiksins kom úr, skoraði annað markið og var svo einnig viðloðandi þriðja markið áður en Hulda Ósk Jónsdóttir náði að laga stöðuna í lokin. FH varð fyrsta liðið til að vinna ÍBV í sumar og það með stæl því liðið fagnaði 3-0 sigri í Kaplakrika í gær. Birna Kristín Björnsdóttir skoraði fyrsta markið snemma leiks og þær Ída Marín Hermannsdóttir, úr víti, og Helena Errington bættu við mörkum í seinni hálfleik. Þróttarinn Sigríður Theódóra Guðmundsdóttir skoraði svo tvö mörk gegn Víkingi, í 4-1 sigri, og er komin með fjögur mörk í síðustu þremur deildarleikjum auk þess að hafa komið inn á sem varamaður og skorað í bikarsigrinum gegn Breiðabliki á dögunum. Nýliðar Grindavíkur/Njarðvíkur hafa byrjað leiktíðina af krafti en urðu að sætta sig við 1-1 jafntefli gegn Stjörnunni eftir jöfnunarmark Ingibjargar Lúcíu Ragnarsdóttur á 90. mínútu. Lily Farkas hafði komið heimakonum yfir á 10. mínútu. Næsta umferð verður öll spiluð næsta mánudag, á öðrum í hvítasunnu. SJÖTTA UMFERÐ Mánudagurinn 25. maí: 16.00 Fram - Þór/KA 16.00 ÍBV - Grindavík/Njarðvík 19.15 Þróttur - Stjarnan 19.15 Breiðablik - FH 19.15 Víkingur - Valur
SJÖTTA UMFERÐ Mánudagurinn 25. maí: 16.00 Fram - Þór/KA 16.00 ÍBV - Grindavík/Njarðvík 19.15 Þróttur - Stjarnan 19.15 Breiðablik - FH 19.15 Víkingur - Valur
Besta deild kvenna Víkingur Reykjavík Þróttur Reykjavík UMF Grindavík UMF Njarðvík Stjarnan Þór Akureyri KA Breiðablik FH ÍBV Tengdar fréttir Víkingur R. - Þróttur R. 1-4 | Sigríður á skotskónum í öruggum sigri Þróttur vann sannfærandi 4-1 sigur á Víkingi á Víkingsvelli í 5. umferð Bestu deildar kvenna í kvöld. Liðin komu jöfn til leiks með sex stig eftir fyrstu fjórar umferðirnar en Þróttur hafði betur í kvöld eftir öflugan seinni hálfleik. 20. maí 2026 18:31 Valur - Fram 0-0 | Bragðlaus leikur á Hlíðarenda Valur og Fram gerðu markalaust jafntefli í 5. umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta. 20. maí 2026 17:45 Þór/KA - Breiðablik 1-3 | Blikar styrktu stöðu sína á toppnum Breiðablik sótti 1-3 sigur gegn Þór/KA í 5. umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta. Blikarnir eru með þriggja stiga forystu á toppi deildarinnar eftir úrslit kvöldsins. 20. maí 2026 17:45 Grindavík/Njarðvík - Stjarnan 1-1 | Afmælisbarnið Ingibjörg bjargaði stigi fyrir Stjörnuna Hér fer fram textalýsing frá leik Grindavík/Njarðvík og Stjörnunnar í fimmtu umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta. Flautað verður til leiks á JBÓ vellinum klukkan 19:15. Leikurinn er sýndur í beinni útsendingu á Sýn Sport Ísland 4. 20. maí 2026 18:31 FH – ÍBV 3-0 | FH stöðvaði sigurgöngu nýliðanna FH fagnaði 3-0 sigri gegn ÍBV í 5. umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta. Birna Kristín Björnsdóttir, Ída Marín Hermannsdóttir og Helena Maree Errington skoruðu mörk Hafnfirðinga. 20. maí 2026 17:16 Mest lesið Klipptu Trump út af bikarmyndinni en Hvíta húsið bætti honum aftur inn Fótbolti Orðin hans Gavi gerðu Paredes alveg snaróðan eftir úrslitaleikinn Fótbolti Yamal sagði frá því hvað hann sagði við Messi Fótbolti Bossabissnessinn blómstrar samhliða boltanum Íslenski boltinn Mætti ekki á úrslitaleik HM til að mótmæla Fifa Sport Bjarni Guðjóns viðurkenndi að dæma átti víti á son hans Íslenski boltinn Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Enski boltinn Hituðu upp fyrir heimsleikana í CrossFit með því að trúlofa sig Sport Gaf mömmu sinni gullmedalíuna: Gekk ófrísk og berfætt yfir eyðimörkina Fótbolti Argentína nú þegar undir rannsókn Fótbolti Fleiri fréttir Sögulegur leikur fyrir Mosfellinga Pressuóðir Ísraelar í Víkinni Sjáðu draumainnkomu Söntu í íslenska boltann „Þetta lítur bara illa út“ Bossabissnessinn blómstrar samhliða boltanum Bjarni Guðjóns viðurkenndi að dæma átti víti á son hans Sjáðu langskotaveislu Keflvíkinga í stórsigri á Skagamönnum Uppgjörið: FH – Breiðablik 0-0 | Markalaust þrátt fyrir fjölda færa og umdeilanleg atvik Uppgjör: Keflavík – ÍA | Slátrun á Suðurnesjunum Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - Þróttur 4-2 | Ótrúleg endurkoma og nýliðaþrenna Sjáðu Fram og Þór/KA hrista vel upp í fallbaráttunni í Bestu kvenna Beið spenntur eftir því að Amin færi út Sjáðu Stjörnusnakksmáltíð KR-inga og markajafntefli í Eyjum „Vorum bara litlar í okkur og vorum bara hérna að grenja“ „Frábært að vera komnar á sigurbraut aftur“ Sjáðu mörkin þegar Þór vann meistarana og Fram sótti sigur á Hlíðarenda „Fannst mikilvægt að byrja þetta með krafti“ „Satt best að segja er mér drullusama“ Uppgjörið: Þór/KA - ÍBV 2-1 | Þriðji sigurinn í síðustu fjórum leikjum Uppgjörið: KR - Stjarnan 5-0 | Muldir mélinu smærra „Flengdir á beran bossann og þá þarf að skammast sín“ „Mér fannst þetta ekki víti“ „Ég þakkaði bara Guði“ „Erfitt að spila svona leiki á milli Evrópuleikja“ Uppgjörið: ÍBV - KA 2-2 | Fjörugt í Eyjum og sjö spjöld á loft Uppgjörið: Víkingur - Fram 1-2 | Upp úr fallsæti með þriðja sigrinum í röð Finnur til með leikmönnum: „Síðustu mánuðir verið erfiðir“ „Ég er bara í brjáluðu skapi“ Uppgjörið: Valur - Fram 2-3 | Framarar upp í annað sætið Uppgjörið: Þór - Víkingur 2-1 | Þórsarar fyrstir til að vinna Víkinga Sjá meira
Víkingur R. - Þróttur R. 1-4 | Sigríður á skotskónum í öruggum sigri Þróttur vann sannfærandi 4-1 sigur á Víkingi á Víkingsvelli í 5. umferð Bestu deildar kvenna í kvöld. Liðin komu jöfn til leiks með sex stig eftir fyrstu fjórar umferðirnar en Þróttur hafði betur í kvöld eftir öflugan seinni hálfleik. 20. maí 2026 18:31
Valur - Fram 0-0 | Bragðlaus leikur á Hlíðarenda Valur og Fram gerðu markalaust jafntefli í 5. umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta. 20. maí 2026 17:45
Þór/KA - Breiðablik 1-3 | Blikar styrktu stöðu sína á toppnum Breiðablik sótti 1-3 sigur gegn Þór/KA í 5. umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta. Blikarnir eru með þriggja stiga forystu á toppi deildarinnar eftir úrslit kvöldsins. 20. maí 2026 17:45
Grindavík/Njarðvík - Stjarnan 1-1 | Afmælisbarnið Ingibjörg bjargaði stigi fyrir Stjörnuna Hér fer fram textalýsing frá leik Grindavík/Njarðvík og Stjörnunnar í fimmtu umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta. Flautað verður til leiks á JBÓ vellinum klukkan 19:15. Leikurinn er sýndur í beinni útsendingu á Sýn Sport Ísland 4. 20. maí 2026 18:31
FH – ÍBV 3-0 | FH stöðvaði sigurgöngu nýliðanna FH fagnaði 3-0 sigri gegn ÍBV í 5. umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta. Birna Kristín Björnsdóttir, Ída Marín Hermannsdóttir og Helena Maree Errington skoruðu mörk Hafnfirðinga. 20. maí 2026 17:16