Vel fór á með Hildi og oddvitunum þremur í Hannesarholti Oddur Ævar Gunnarsson og Tómas Arnar Þorláksson skrifa 20. maí 2026 14:27 Hildur Björnsdóttir að loknum fundi. Vísir/Bjarni Vel fór á með oddvitum Sjálfstæðisflokks, Framsóknar, Miðflokks og Viðreisnar á tveggja tíma hádegisfundi að sögn Hildar Björnsdóttur oddvita Sjálfstæðisflokksins. Hún segir þó enga sérstaka niðurstöðu liggja fyrir hvað varðar myndun meirihluta og segist þurfa að ráða ráðum sínum hvað varðar næstu skref. „
Það fór bara vel á með okkur oddvitunum. Þetta eru oddvitar þeirra flokka sem við köllum borgaralegu öflin í Reykjavík og ég hafði lýst því yfir að mér fyndist rétt að við settumst niður saman,“ segir Hildur Björnsdóttir oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík að loknum fundi. Fundurinn var tveggja tíma langur. Hinir oddvitarnir báðust undan viðtölum við fréttastofu og sögðu rétt að Hildur væri málsvari hópsins. Hildur segir gott að hafa sest niður með þeim Ara Edwald oddvita Miðflokksins, Björgu Magnúsdóttur oddvita Viðreisnar og Einari Þorsteinssyni oddvita Framsóknar. Þeim hafi tekist að ræða sameiginlega fleti á stefnumálum sínum og finna núningspunkta. Engin sérstök niðurstaða liggi hinsvegar fyrir að loknum fundi en hún segist fara nestuð inn í framhaldið. Ljóst sé að hún horfi ekki til samstarfs við aðra flokka. Hvert verður framhaldið? „Ég ætla bara að fá að ráða ráðum mínum. Það kemur allt saman í ljós.“ Hvaða núningspunktar komu í ljós? „Það er ekkert sérstakt sem ég vil greina frá,“ segir Hildur. Hún segir þó samhljóm á milli flokkanna í ýmsu, meðal annars þegar komi að niðurskurði í rekstri borgarinnar, fara í nýjar leiðir í leikskólamálum og blása til sóknar í skólamálum.“ Hvernig fór á á milli Ara og Bjargar? „Það var bara hlegið og það var bara gaman. Við vorum að ræða þung mál og létt mál og mál líðandi stundar. Hvernig sem þetta endar mun fara vel með á okkur í borgarstjórn,“ segir Hildur. Fundurinn hafi verið góður og bauð Hildur að eigin sögn upp á fisk dagsins, þorsk sem allir hafi fengið sér, utan Einars sem fékk sér afgangspasta í hádegismat og mætti saddur. Hildur bauð oddvitunum á Hannesarholt.Vísir/Bjarni Vill tryggja breytingar en líka stöðugleika Hildur segir ekki komna lendingu í það hvernig meirihluti verði stofnaður. Málefnin ráði för. „Borgarbúar hafa kallað eftir breytingum. En ég held þeir vilji líka stöðugleika, við erum að koma úr kjörtímabili með þrjá borgarstjóra, við viljum ná stöðugleika en líka blása til sóknar.“ Hver verða næstu skref, muntu boða oddvita í formleg samtöl? „Ég hef ekki ákveðið næstu skref. Ég ætla að vanda mig í þessu, það er mikilvægt að Reykjavík fái öflugan meirihluta.“
Sveitarstjórnarkosningar 2026 Reykjavík Sjálfstæðisflokkurinn Viðreisn Framsóknarflokkurinn Miðflokkurinn Borgarstjórn Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira