Átján ára sótti áfengissendingu Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 19. maí 2026 16:45 Myndin tengist fréttinni ekki beint. Vísir/Vilhelm Aldurseftirlit hjá netverslunum sem selja áfengi er oft ábótavant að mati embættis landlæknis. Í aðeins sjö prósent tilvika var beðið um skilríki við afhendingu áfengis í úttekt þeirra.
Þetta kemur fram í nýrri úttekt embættis landlæknis. Tveir útsendarar á vegum embættisins, sem voru báðir tuttugu ára, voru sendir að sækja áfengi sem keypt var hjá fjórtán netverslunum. Við kaupin voru fjórar verslanir sem hvorki báðu um rafræn skilríki né einhvers konar staðfestingu á að viðkomandi hefði aldur til að kaupa áfengi. Einungis fimm verslanir báðu um rafræn skilríki en níu báðu um annars konar staðfestingu. Þegar kom að því að sækja áfengið var í einungis sjö prósent tilfella beðið um skilríki, eða í tveimur tilvikum af þrjátíu. Sextán sinnum var áfengið sótt á lager seljanda og var einu sinni beðið um skilríki. Í þau sex skipti sem áfengið var sent heim var einu sinni beðið um skilríki. Sérstök tilraun var gerð á lager einnar verslunarinnar þar sem einn kom að sækja, sagði fyrst sitt nafn en ekkert hafði verið pantað á nafni viðkomandi. Þá spurði sá sem sótti hvort áfengið væri á nafni kaupandans sem svo reyndist vera og var varan afhent án skilríkjaeftirlits. Heimsent í bílakjallara Þegar áfengið var sótt í póstbox eða á póstafhendingarstað var ekki beðið um skilríki. Í tuttugu prósent tilfella var afhendingin með þeim hætti að einstaklingur kom ekki nærri afhendingu. Taka má fram að við aðra afhendingu en á lager er í mörgum tilvikum þeim sem sækir skylt að skrá sig inn með rafrænum skilríkjum til að fá afhendingarkóða. Vegna þessa var gerð sérstök tilraun þar sem einstaklingur yfir tvítugu keypti áfengi og lét senda í útibú Pikkoló. Sá áframsendi afhendingarkóðann á átján ára einstakling sem fór, með verkefnastjóra, á staðinn til að sækja vöruna. Óskað var eftir rafrænum skilríkjum við afhendingu, beiðni sem sá fullorðni samþykkti heiman frá. Þegar áfengið var heimsent var hægt að velja hvaða staðsetningu sem er, til að mynda bílakjallara, og þar var varan afhent án skilríkjaeftirlits „með mjög skjótum hætti“ líkt og segir í niðurstöðum embættisins. ÁTVR var ekki ein verslananna en þau senda sjálf ungmenni á aldrinum 20 til 23 ára til að athuga hvort starfsmennirnir biðji um skilríki. Samkvæmt vefsíðu þeirra var árangurinn níutíu prósent.
Áfengi Embætti landlæknis Netverslun með áfengi Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent „Sorglegt að þetta sé staðan“ Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Fleiri fréttir Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Sjá meira