Húsnæðisvandinn er mannanna verk Guðbjörg Ingunn Magnúsdóttir skrifar 15. maí 2026 06:41 Húsnæði er allt of dýrt, og það er mannanna verk. Undanfarna tvo áratugi hefur fólki fjölgað til muna á landinu, en á sama tíma hefur fjölskyldustærðin minnkað. Dýrkeypt mistök Reykjavíkurborgar Reykjavíkurborg var allt of sein að átta sig á þessum breytingum og byggði allt of lítið af húsnæði, einblíndi um of á þéttingu og byggði allt of mikið af stórum íbúðum. Vegna þessara mistaka hefur íbúðaverð tvöfaldast á 10 árum. Ef við svörum ekki uppsafnaðri íbúðaþörf og einblínum bara á dýra þéttingarreiti þá mun íbúðaverð halda áfram að hækka og stéttaskipting mun aukast, þar sem til verða stéttir eigenda og leigjenda. 5.000 íbúðir á leiðinni Við í Flokki fólksins viljum snúa þessari þróun við, byggja meira og ná niður íbúðaverði svo ungt fólk eigi möguleika á að eignast íbúð. Við leggjum áherslu á byggingu nýrra hverfa í jaðri borgarinnar, eins og í Úlfarsárdal og Keldnalandi. Þegar Sundabraut kemur opnast ný tækifæri til uppbyggingar á Geldinganesi og Gunnunesi. Við í Flokki fólksins höfum sýnt það í verki að við viljum byggja ný hverfi og styðja við fyrstu kaupendur. Það höfum við gert með því að koma af stað skipulagsvinnu fyrir stórfellda uppbyggingu í Höllum í Úlfarsárdal ásamt uppbyggingu á ríkislóðum í Reykjavíkurborg. Brátt munu rísa 5.000 íbúðir vegna þess að Flokkur fólksins stóð við gefin loforð. Hlutdeildarlán og óhagnaðardrifið húsnæði til bjargar Til að hjálpa næstu kynslóð að eignast íbúð höfum við gert miklar breytingar á hlutdeildarlánakerfinu. Nú geta fyrstu kaupendur fengið vaxta- og afborgunarlaust lán frá HMS, sem er svo gert upp við sölu íbúðarinnar og kallast hlutdeildarlán. Almenn hlutdeildarlán fara úr 20% í 25% af kaupverði. Fólk þarf því aðeins að safna 5% af kaupverði í útborgun, fær 25% hlutdeildarlán og 70% lán frá banka eða lífeyrissjóði. Hlutdeildarlán fyrir fólk undir lægri tekjumörkum hækkar úr 30% í allt að 35%. Þetta hefur í för með sér að greiðslubyrði fólks lækkar. Til að hjálpa þeim sem eru að safna fyrir útborgun leggjum við áherslu á að efla uppbyggingu óhagnaðardrifins leiguhúsnæðis, en þar er leigan allt að 40% ódýrari en á almennum leigumarkaði. Framtíðin ræðst á laugardaginn Íbúðaverð tvöfaldaðist á síðustu 10 árum og ef við byggjum ekki ný hverfi þá mun það tvöfaldast á næstu tíu árum. Flokkur fólksins vill brjóta land og byggja íbúðir. Setjum x við F, 16. maí. Höfundur skipar 3. sæti á lista Flokk fólksins í Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Flokkur fólksins Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Reykjavík Mest lesið Trúum á enn stærra og sterkara Ísland Þórður Snær Júlíusson Skoðun Hollenska húsnæðislánið Arnór Ingi Finnbjörnsson Skoðun Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir Skoðun Óvissan í alþjóðamálum - Hvað ef Norðmenn verða á undan? Dagur B. Eggertsson Skoðun Þögnin rofin um þjóðartekjurnar Jón Gunnar Jónsson Skoðun Sex ýkjur nei-sinna og já-sinna Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Komið gott Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson Skoðun Já núna – til að geta sagt nei síðar Friðrik Björgvinsson Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Þegar ríkið tekur reikninginn Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þögnin rofin um þjóðartekjurnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Falleinkunn heima, en hugurinn í Brussel Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Tökum slaginn fyrir börnin Tótla I. Sæmundsdóttir,Þorbjörg Helga Þorgilsdóttir skrifar Skoðun Óvissan í alþjóðamálum - Hvað ef Norðmenn verða á undan? Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hollenska húsnæðislánið Arnór Ingi Finnbjörnsson skrifar Skoðun Borgin þarf ekki kjötexi — hún þarf mælikerfi Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Stríð ESB gegn jöfnuði og velferð Andri Sigurðsson skrifar Skoðun Já núna – til að geta sagt nei síðar Friðrik Björgvinsson skrifar Skoðun Þegar efinn verður þýðingarmeiri en sannleikurinn Guðjón Heiðar Pálsson skrifar Skoðun Sex ýkjur nei-sinna og já-sinna Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Komið gott Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns skrifar Skoðun Sjálfstæð þjóð tekur sér sæti við borðið Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Ræður Evrópusambandið hvort dánaraðstoð verði leyfð á Íslandi? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun 4.677 nýir vegfarendur á leið í skólann Lára Hrafnsdóttir,Gunnar Geir Gunnarsson skrifar Skoðun Evran lækkar ekki vextina Magnús B. Jóhannesson skrifar Skoðun Trúum á enn stærra og sterkara Ísland Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir skrifar Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir skrifar Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Er ég að bregðast börnunum mínum með því að segja NEI? Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar Skoðun Gamli sáttmálinn og sá nýi Aðalsteinn Már Þorsteinsson skrifar Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Gervigreind, gagnaver og tækifæri Íslands Eymundur Sigurðsson skrifar Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Skoðun Áður en lengra er haldið Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Börn læra ekki fyrir framtíð sem þau skynja ekki Helgi S. Karlsson skrifar Sjá meira