Heimabyggð, vertu velkomin heim Valborg Ösp Á. Warén og Adam Ingi Guðlaugsson skrifa 11. maí 2026 16:42 Alltof lengi hefur verið gengið út frá því að ungt fólk í Fjarðabyggð fari héðan að loknum grunn- eða framhaldsskóla. Oft er spurt: Hvert ætlar þú svo að flytja? Ungmenni á höfuðborgarsvæðinu þurfa sjaldnast að réttlæta það að vilja vera áfram heima. Þar er sjálfsagt að geta sótt nám, unnið, tekið þátt í félagslífi og byggt upp framtíð án þess að flytja burt. Af hverju ætti sama ekki að geta gilt í Fjarðabyggð? Við í Samfylkingunni og annað félagshyggjufólk í Fjarðabyggð viljum marka skýra stefnu um byggðafestu ungs fólks. Markmiðið á ekki aðeins að vera að „halda í fólkið“, heldur að skapa samfélag þar sem ungt fólk sér raunverulega framtíð í Fjarðabyggð, fyrir sér. Þar sem það finnur að það skiptir máli, rödd þess heyrist og tækifærin eru sýnileg. Það á ekki að vera sjálfsagt að menntun kalli á brottflutning. Við viljum að Fjarðabyggð eigi raunverulegt samtal við háskóla og menntastofnanir um fjölbreyttara fjarnám og betri stuðning við nemendur sem vilja mennta sig í heimabyggð. Við getum lært af verkefninu HeimaHöfn á Hornafirði, þar sem unnið er markvisst með ungu fólki, skólum, atvinnulífi og félagasamtökum að því að styrkja tengsl ungmenna við samfélagið og sýna þeim tækifæri til menntunar, atvinnu og þátttöku. Fjarðabyggð þarf slíka stefnu, en á okkar forsendum. Við höfum sterkan grunn. Hér er Verkmenntaskóli Austurlands, grunnskólar í byggðakjörnum, öflugt íþrótta- og félagsstarf, sterkt atvinnulíf og náttúra sem býður upp á einstök lífsgæði. En við þurfum að tengja þetta betur saman. Við viljum að Fjarðabyggð verði fyrsti valkostur unga fólksins okkar eftir nám, ekki varaáætlun. Til þess þarf að halda sambandi við þau sem fara annað í nám, kynna þeim störf og tækifæri hér í heimabyggð, bjóða upp á sumarstörf, starfsnám og verkefni sem tengjast raunverulegum áskorunum samfélagsins. Við þurfum líka að hlusta betur á unga fólkið og gefa því raunveruleg áhrif á ákvarðanir um framtíð sveitarfélagsins. Byggðafesta verður ekki til af sjálfu sér. Hún verður til þegar samfélag sýnir ungu fólki að það sé velkomið, mikilvægt og eftirsótt. Hún verður til þegar tækifærin eru sýnileg og þegar sveitarfélagið, skólarnir, atvinnulífið, menntastofnanir og félagasamtökin vinna saman. Það munu alltaf einhver fara, og það er eðlilegt. Það á hins vegar ekki að vera sjálfgefið að þau komi ekki aftur. Og það á ekki að vera sjálfgefið að þau sem vilja vera hér þurfi að velja á milli heimabyggðar og framtíðardrauma. Spurningin á ekki lengur að vera: Hvert ætlar þú svo að flytja? Hún á að vera:Hvernig getum við hjálpað þér að byggja framtíð þína hér í Fjarðabyggð? Höfundar eru í 3. og 4. sæti á lista Samfylkingarinnar og annars félagshyggjufólks í Fjarðabyggð. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Fjarðabyggð Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar