Körfubolti

Baldur hættur í Garða­bænum

Valur Páll Eiríksson skrifar
Baldur Þór Ragnarsson er hættur sem þjálfari Stjörnunnar eftir tvö ár í starfi.
Baldur Þór Ragnarsson er hættur sem þjálfari Stjörnunnar eftir tvö ár í starfi. Vísir / Anton Brink

Baldur Þór Ragnarsson er óvænt hættur sem þjálfari karlaliðs Stjörnunnar í körfubolta. Stjarnan tilkynnti um tíðindin síðdegis.

Baldur óskaði eftir starfslokum við stjórn körfuknattleiksdeildar Stjörnunnar, eftir því sem kemur fram í yfirlýsingu félagsins. Hann hefur þjálfað liðið í tvö tímabil og átti eitt ár eftir af þriggja ára samningi sem hann skrifaði undir sumarið 2024.

Stjarnan varð Íslandsmeistari á hans fyrsta ári, síðasta vor, og féll svo út í undanúrslitum fyrir Tindastóli á dögunum í úrslitakeppni Bónus-deildarinnar.

Mikil meiðsli hrjáðu Stjörnuna í ár þar sem liðið lék án Orra Gunnarssonar í úrslitakeppninni. Þegar í hana var komið urðu bæði Ægir Þór Steinarsson og Seth Leday fyrir slæmum meiðslum.

Stjarnan lenti þá í öðru sæti í VÍS-bikarnum í ár eftir tap fyrir KR í úrslitaleik.

Ekki er ljóst hvað tekur við hjá Baldri. Í yfirlýsingu Stjörnunnar segir að leit að nýjum þjálfara sé þegar hafin.

Yfirlýsing Stjörnunnar

Baldur Þór Ragnarsson hefur ákveðið að segja upp samningi sínum við Stjörnuna. Gerður var þriggja ára samning við Baldur fyrir um tveimur árum og að loknu úrslitaeinvígi við Tindastól nýtti Baldur sér uppsagnarákvæði og hefur nú þegar lokið störfum hjá okkur. Stjarnan þakkar Baldri fyrir gott samstarf síðustu tvö árin.

Þá mun annar af aðstoðarþjálfurum Baldurs, Ilija Omercen, ljúka störfum þann 1. júní næstkomandi. Honum eru jafnframt þökkuð vel unnin störf. Leit er hafin að nýjum þjálfara meistaraflokks karla í 100% starf, þar sem æskilegt er að viðkomandi taki virkan þátt í mótun yngri flokka starfsins með okkur.

Við sjáum fyrir okkur styrkingar á leikmannahópnum, samhliða ráðningu nýs þjálfara og endurskoðun samninga við núverandi leikmenn. Það er hinsvegar ljóst að við ætlum okkur áfram að vera í fremstu röð og byggja á öflugum íslenskum kjarna í bland í erlenda atvinnumenn.

Skíni Stjarnan

Einar Karl Birgisson

Formaður körfuknattleiksdeildar Stjörnunnar




Fleiri fréttir

Sjá meira


×