Að eiga eða leigja? Hjalti Helgason skrifar 11. maí 2026 14:41 Á kjörtímabilinu stóð bæjarstjórn frammi fyrir því að fjölga þurfti leikskólarýmum í Hveragerði. Fyrir lágu hugmyndir um uppbyggingu nýs leikskóla í Kambalandi. Þegar kemur að fjölgun leikskólaplássa er mikilvægt að greina þá kosti sem standa til boða en hægt er að velja mismunandi leiðir sem hafa mismunandi áhrif á fjárhagsstöðu sveitarfélagsins. Þar má nefna nýbyggingu með mismunandi fjármögnunarleiðum eða viðbyggingu við leikskóla sem fyrir er. Niðurstaðan í þessu tilfelli var að byggja við Óskaland. Viðbygging við leikskólann Óskaland hefur nú verið tekin í notkun. Þegar ákvörðun var tekin um viðbygginguna valdi núverandi meirihluti þá leið að semja við fasteignafélag um leigu á mannvirkinu í stað þess að Hveragerðisbær byggði sjálfur og ætti eignina frá upphafi. Bæjarfulltrúar D-listans voru frá upphafi andvígir þessari leið. Stefna þeirra var skýr: Að byggja bæri nýjan leikskóla í Kambalandi og að bærinn stæði sjálfur að þeirri uppbyggingu og fjármögnun sem henni fylgdu með langtímahagsmuni bæjarbúa að leiðarljósi. Ágreiningurinn hefur aldrei snúist um það hvort fjölga þurfi leikskólaplássum, enda er mikilvægt að tryggja íbúum bæjarins góða þjónustu og öryggi. Ágreiningurinn snýst um leiðina sem var farin. Við höfum talið að eigin uppbygging sveitarfélagsins sé bæði skynsamlegri og hagkvæmari fyrir sveitarfélagið en að fara í langtímaleigu. Dýrari leiðin valin Í minnisblaði frá 1. desember 2025 kemur fram að kaupréttur verði fyrst virkur árið 2035 og að gera hafi þurft viðauka við fjárhagsáætlun vegna hækkunar á leigueign og leiguskuld um 374 milljónir króna. Jafnframt lá fyrir hækkun vegna breytinga á vísitölu. Þetta er því nú þegar farið að kosta sveitarfélagið háar fjárhæðir. Þegar kaupréttur verður loks virkur að 10 árum liðnum hefur bærinn greitt leigu, fyrir þrjár auka deildir, sem jafngildir byggingu nýs leikskóla. Þetta þýðir að sé kauprétturinn ekki nýttur fyrr en eftir 40 ár jafngildir það byggingu fjögurra nýrra leikskóla. Einnig er gott að hafa í huga að ætli bærinn að nýta kaupréttinn þá bætist kaupverð byggingarinnar ofan á þegar greidda leigu. Því er alveg ljóst að hvaða leið sem farið væri við kaup á viðbyggingunni myndu bæjarbúar greiða margfalt verð fyrir hana. Leiguleið er oft réttlætt með því að hún eigi að færa áhættu frá leigutaka, en í þessu máli er niðurstaðan sú gagnstæða. Eignarhald færðist fjær í tíma og hluti kostnaðar við aukaverk féll á bæjarsjóð. Það eitt og sér gefur fullt tilefni til gagnrýninnar umræðu. Ársreikningur Hveragerðisbæjar fyrir árið 2025 sýnir einnig að hér er um verulega fjárhagslega skuldbindingu að ræða. Þar kemur fram að nýjar leiguskuldir á árinu nema 1.087,9 milljónum króna. Hagkvæmari kostir stóðu til boða Það er ljóst að hagkvæmara hefði verið að Hveragerðisbær byggði sjálfur og fjármagnaði framkvæmdina með hefðbundnum hætti, til dæmis með þeim lánaleiðum sem sveitarfélög hafa almennt aðgang að í gegnum Lánasjóð sveitarfélaga. Það er líka eðlilegt að halda því til haga að þegar sveitarfélag velur að setja stórt fasteignafélag á milli sín og nauðsynlegrar grunnþjónustu, þá felur það í sér að hluti kostnaðarins fer óhjákvæmilega í fjármögnun, álagningu og arðsemi þess félags. Þegar sveitarfélag byggir sjálft verða verðmætin hins vegar eftir hjá samfélaginu. Það er grundvallarmunur sem skiptir máli, ekki aðeins í dag heldur til lengri tíma. Vissulega skiptir máli að viðhaldskostnaður fellur á leigusala. En ef rétt og faglega er staðið að framkvæmdum, þá ætti ekki að reikna með miklu viðhaldi á fyrstu 10 árunum og að hluta til eru tryggingar byggingarstjóra virkar fyrstu 5 árin. Lærum af mistökunum D-listinn leggur áherslu á að Hveragerðisbær byggi sjálfur sínar lykileignir og eigi þær. Við teljum að það sé betri nýting á skattfé íbúa að fjárfesta í eigin innviðum en að binda bæinn í dýra og langa leigusamninga. Þessu til stuðnings er rétt að minna á að sveitarfélög sem fóru leiguleiðina fyrir hrun lögðu síðar mikið á sig til að losna undan slíku fyrirkomulagi. Spor sveitarfélaga í þessum efnum ættu því að gefa tilefni til varfærni. Dæmin voru þegar til staðar áður en ákvörðun varðandi langtímaleigu var tekin og því skýrt frá upphafi hvaða afleiðingar slíkur samningur hefur á fjárhag og framtíð Hveragerðis. Einnig hefur komið fram í áætlanagerð bæjarins að horft sé til leigufyrirkomulags við frekari uppbyggingu leikskólamannvirkja. Ef svo er, þá er enn mikilvægara að þessi reynsla af Óskalandi verði dregin skýrt fram og metin á faglegan og hlutlausan hátt. Við viljum leggja áherslu á það að sveitarfélagið fjármagni sín eigin verkefni, til þess þarf ábyrgð í uppbyggingu og ábyrgð í fjármálum, þannig fyrst bætum við þjónustu og aukum lífsgæði. Höfundur skipar 4. sæti D listans í Hveragerði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Hveragerði Mest lesið Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? Jóhann Rúnar Pálsson Skoðun Skoðun Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? Jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar