Maður varð fyrir flugvél á flugbraut og lést Tómas Arnar Þorláksson skrifar 9. maí 2026 15:32 Flugvél flugfélagsins Frontier á flugvellinum í Denver. Mynd úr safni. AP/David Zalubowski Maður varð fyrir flugvél á flugbraut alþjóðaflugvallarins í Denver í Bandaríkjunum í gær þegar flugvélin ætlaði að taka á loft. Maðurinn lést samstundis þegar að atvikið átti sér stað seint í gærkvöldi.
Eldur kom upp í einum hreyfli vélarinnar við áreksturinn og var slökkvilið kallað á vettvang sem náði tökum á eldsvoðanum. Fréttastofa Breska ríkisútvarpsins greinir frá þessu. Maðurinn sem lést hafði klifrað yfir grindverkið við flugbrautina og lést tveimur mínútum síðar þegar hann gekk þvert yfir flugbraut í veg fyrir flugvélina sem ók þar til að taka á loft. Maðurinn lést um klukkan ellefu í gærkvöld á staðartíma. Í frétt ABC um málið kemur fram að maðurinn hafi að hluta sogist inn í hreyfil vélarinnar og þannig mætt endalokum sínum. Þar kemur einnig fram að tólf hafi slasast við áreksturinn. Þar af voru fimm færðir á slysadeild. Allir 224 farþegar vélarinnar yfirgáfu vélina um uppblásanlegar neyðarrennibrautir vélarinnar. Í yfirlýsingu frá Frontier segir að flugfélagið sé harmi slegið vegna atviksins. „Við þurfum að stöðva á flugbrautinni. Við lentum á einhverjum. Það er eldur í hreyflinum,“ sagði flugmaður vélarinnar í samtali við flugumferðarstjórn. Flugvélin var komin á þó nokkurn hraða þegar maðurinn gekk í veg fyrir hana.
Bandaríkin Flug Mest lesið Hringvegurinn lokaður og viðvaranir í gildi Innlent Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Innlent „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Innlent Styður Repúblikana með tugum milljarða Erlent Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Innlent Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Innlent Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Innlent Fleiri fréttir Yfir hálf milljón án rafmagns í Kænugarði eftir árásir Rússa í nótt Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Styður Repúblikana með tugum milljarða Páfinn greindist með lungnakrabbamein Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Aðgerð páfa gekk vel Staðfestir að Rússar höfðu afskipti af Brexit Sendiherrann beðinn um að segja af sér „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Atkvæðagreiðsla boðuð í þrátefli eftir sænsku kosningarnar Þingkona segist fórnarlamb pólitískra ógnana Trump eftir húsleit Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Úkraínsku skipi sökkt við strendur Búlgaríu Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Hafa gert árásir á sex orkumannvirki eftir yfirlýsingu Trump Gull að leysa kókaín af hólmi Stolnu málverkin fundust á bak við vegg Henda mat eftir tölvuárás hitaði kæla upp í fimmtíu gráður Gerðu húsleit hjá þingkonu sem Trump á sökótt við Verðlaunaðir fyrir að smíða hagstjórnartæki samtímans Skaut konu sína, börn og barnabörn Sektaður fyrir að geyma lík foreldranna í frysti í áratugi Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Tígrisdýrið verður ekki aflífað Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfirlýsingu Trumps Fær aukadag til stjórnarmyndunar Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Leó páfi á leið í aðgerð eftir að hnútur fannst á lunga Sjá meira