Endurgreiddi eftir að fjölmiðlar spurðu út í innkaupakortið Árni Sæberg skrifar 8. maí 2026 16:29 Endurgreiðslur Heiðu Bjargar voru allar nema ein vegna leigubílaferða. Vísir Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri hefur endurgreitt borginni alls 28 þúsund krónur vegna óheimillar notkunar á innkaupakorti borgarstjóra. Þrjár af fjórum endurgreiðslum greiddi hún eftir að fjölmiðlar sendu fyrirspurnir vegna innkaupakortsins. 23 skriflegar athugasemdir hafa borist vegna notkunar hennar á kortinu, þar á meðal vegna greiðslu fyrir uppfærslu á fyrsta farrými.
Líkt og greint hefur verið frá hefur Heiða Björg notað innkaupakort borgarstjóra talsvert meira en forverar hennar í embætti. Hún sagði í samtali við fréttastofu í gær að hún hefði farið að settum reglum í einu og öllu varðandi notkun kortsins. „Það eru skýr fyrirmæli um þau. Maður notar þau til erindagjörða sem maður er í fyrir borgina. Það er mikið eftirlit og mikið utanumhald um þessi kort. Það hefur líka verið stefna borgarinnar að reyna að koma meira af innkaupum inn í rafrænt ferli og hætta beiðnum og reikningasendingum á pappír. Ég fékk góð skilaboð um þetta innkaupakort og hef nýtt það. Þetta er gagnsætt og öruggt ferli hjá borginni.“ Hún sagði að mikið eftirlit væri með notkun kortsins og hefði hún gerst sek um nokkuð misjafnt hefði það komist upp fyrir löngu. Raunar hefði hún í einhverjum tilfellum endurgreitt borginni vegna notkunar á kortinu, til dæmis vegna leigubílaferða sem hún hefði greitt fyrir erlendis. Hún hefði haldið að greiða ætti slíkar ferðir með kortinu en það hefði verið misskilningur. Fjöldi athugasemda Færslur sem skriflegar athugasemdir hafa verið gerðar við eru nánar tiltekið 23 talsins. Átta þeirra eru vegna þess að skýringu vantaði á því hvers vegna kortið var notað til greiðslu, meðal annars fyrir uppfærslu á Saga class hjá Icelandair, reikning á veitingastað á Heathrow-flugvelli í Lundúnum, reikninga á fjórum kaffihúsum og reikninga á veitingastöðum. Fréttastofa ræddi málið við Heiðu Björgu í löngu máli í gær og í spilaranum hér að neðan má sjá klippt viðtal við hana: Þá er fjöldi færslna sem athugasemdir eru gerðar við að kvittun hafi ekki fylgt. Endurgreiddi í vikunni Heiða Björg ritaði færslu á Facebook í dag þar sem hún fer yfir málið. Hún hafi leitast við að fylgja þeim leiðbeiningum sem henni voru veittar um notkun kortsins og treyst því eftirlits- og verklagi sem Reykjavíkurborg hefur komið sér upp. „Mér var í upphafi leiðbeint um að mikilvægt væri að öllum kvittunum og fylgigögnum væri skilað inn, að bókhald og starfsfólk færi yfir allar færslur og að gerðar yrðu athugasemdir eða óskað eftir frekari upplýsingum ef eitthvað þætti óskýrt eða ekki í samræmi við reglur. Þá var einnig skýrt að ef upplýsingar eða gögn reyndust ekki fullnægjandi bæri mér sjálfri að greiða viðkomandi kostnað. Fjórum sinnum hef ég gert það.“ Vísir óskaði eftir svörum borgarinnar varðandi þær fjórar endurgreiðslur sem Heiða Björg segist hafa greitt. Í svörunum kemur fram að hún hafi endurgreitt eina greiðslu til veitingastaðar í Nice og fjórar leigubílaferðir. Færslan í Nice er merkt í færsluyfirliti sem drykkur með borgarstjóra Nice en ekki er heimilt að nota innkaupakortið til áfengiskaupa nema að fenginni heimild til þeirra. Ein endurgreiðsla er vegna tveggja leigubílaferða í Genf í Sviss og tvær hér á landi. Önnur endurgreiðslan vegna leigubílferðar á Íslandi var framkvæmd þann 8. nóvember í fyrra. Hinar endurgreiðslurnar voru framkvæmdar í gær og í fyrradag. Fréttastofa sendi sína fyrstu fyrirspurn vegna málsins á mánudag. „Það gengur ekki upp“ Þá hefur Vísir undir höndum tölvubréf til Heiðu Bjargar, Róberts Marshall, aðstoðarmanns hennar, og Þorsteins Gunnarssonar borgarritara frá starfsmanni borgarinnar, hvers nafn hefur verið afmáð, undir yfirskriftinni Fyrirspurn um greiðslukort borgarstjóra, sem dagsett er á þriðjudag. „Að lokum er það kvöldverðurinn i Nuuk sem við erum í vandræðum með og ég var búin að ræða við Róbert. Þið fenguð öll dagpeninga vegna ferðarinnar til Nuuk sem á að standa straum m.a. af kvöldverði þannig að ef greitt var fyrir kvöldverð með innkaupakortinu er borgin að greiða 2x fyrir sama kvöldverð. Það gengur ekki upp og þarf því annaðhvort að endurgreiða þessa færslu eða að allir greiði til baka hluta af dagpeningunum. Þið megið endilega láta vita bæði hvað á að gera varðandi þær kvittanir sem vantar og kvöldverðinn í Nuuk,“ segir í bréfinu. Vert er að taka fram að borgarritari var ekki með í för til Grænlands. „Sendinefnd Reykjavíkur fór til Grænlands og við vorum þar ansi lengi, tókum langa og merka menningarreisu. Þetta er það eina sem kom út úr því, sem var greitt með innkaupakorti borgarstjóra. Við buðum út að borða þetta kvöld en okkur var boðið út að borða kvöldið áður,“ sagði Heiða Björg um færsluna í gær. Þá sagði hún að dregið væri af dagpeningum af borgin greiddi fyrir kvöldverð borgarstjóra. „Það er vel farið yfir þetta hjá Reykjavíkurborg, þú getur alveg verið öruggur með það.“
Reykjavík Samfylkingin Borgarstjórn Rekstur hins opinbera Mest lesið Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Innlent Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Innlent Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ Innlent Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Innlent Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Innlent Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Innlent Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Innlent Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Innlent Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Innlent Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Innlent Fleiri fréttir Ósammála um ágæti aðildarviðræðna: „Ég sé ekki fyrir mér að geta tekið húsnæðislán“ Heyrist í stelpunum þegar vatnið fer upp á miðja síðu Hnúfubakur á svamli skammt frá Reykjavík „Ég elska að vera hér“ Gestum komið fyrir á öðru hóteli Samfylkingin aftur stærst en ríkisstjórnin stendur í stað Kaup Icelandair og ný fylgiskönnun í kvöldfréttum Sýnar Bandbrjálaðist og hrækti á lögreglumann Bíll og mótorhjól skullu saman við Vaðlaheiðargöng Bandero kyrrsettur að kröfu Hvals hf. „Jafnvel betur undirbúin en margur hver“ „Breytist nánast ekki neitt ef við myndum ganga inn í ESB“ Bein útsending: Málþing um Biskupsmálið „Þetta er auðvitað snilldarmarkaðsbrella“ Bæta umferðaröryggi við gatnamót Miklubrautar og Grensásvegar „Andlitið á honum var skakkt“ Ari orðinn stjórnarformaður Rafleiðni aukist skarpt í Múlakvísl Ákærði hafði afskipti af vitnisburði í gegnum fjarfundarbúnað Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Kjartan Hreinn aftur aðstoðarmaður Ölmu Tekjulágir borga minna fyrir matinn og borgarfulltrúar meira Hvað ætti ungt fólk að kjósa 29. ágúst? Skóli hefst á ný í Grindavík og þingmenn efast um fullyrðingar Rússa Ókeypis strætó-skutlur á Menningarnótt og tæming frá Sólfarinu Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Ráðast í byltingarkenndar endurbætur í Kvosinni „Tengsl Íslands og Eistlands eiga sér sérstaka sögu“ Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Sjá meira