Um rekstur Reykjavíkurborgar 2025 Birgir Björn Sigurjónsson skrifar 8. maí 2026 12:03 Rekstrarniðurstaðan A-hluta Reykjavíkurborgar (borgarsjóðs) fyrir fjármagnsliði og afskriftir var jákvæð um 7,2 ma.kr. árið 2025. Rekstrarniðurstaða A-hluta í heild sinni var hins vegar neikvæð um 5,3 ma.kr. Ástæða neikvæðrar rekstrarniðurstöðu er sú að metin virðisbreyting lífeyrisskuldbindingar A-hluta er tekin í gegnum rekstrarreikning og hún er neikvæð um 9,9 ma.kr.(gjaldfærsla). Lífeyrisskuldbindingin endurspeglar uppsafnaða vanfjármögnun á lífeyrisréttindum í eldra lífeyrissjóðsfyrirkomulagi sem var lokað fyrir nýjum sjóðfélögum árið 1997. Árlegt endurmat á þessari skuldbindingu leiðir til gjaldfærslu ef skuldbindingin hækkar en til tekjufærslu ef virði hennar lækkar. Þetta er í eðli sínu eins konar leiðrétting á höfuðstól sem lætur vita hvort þessi skuldbinding sé að fara að þyngjast á næstu árum og áratugum eða léttast. Matið á þessari skuldbindingu er reiknað af tryggingastærðfræðingi lífeyrissjóðsins og byggir á reglum um uppgjör lífeyrissjóða. Stjórnendur borgarinnar hafa engin áhrif á þessa skuldbindingu eða mat á virðisbreytingu hennar öfugt við það sem gildir um rekstur A-hluta borgarsjóðs að öðru leyti. Á árinu 2024 var niðurstaða virðisbreytingar lífeyrisskuldbindingar jákvæð um 0,8 ma.kr. og breytingin á milli áranna 2024 og 2025 því neikvæð um 10,7 ma.kr. Útkoma matsins 2024 hafði ekkert með stjórn borgarinnar að gera þá fremur en nú. Í þessu samhengi má nefna að á síðustu tíu árum hefur gjaldfærsla lífeyrisskuldbindingar verið breytileg og oftast legið á bilinu 3–7 ma.kr en að meðaltali nálægt 4 ma.kr. á ári. Gjaldfærslan árið 2025 er því meira en tvöfalt hærri en í meðalári. Flestar fjölskyldur í landinu þekkja dæmigerð verðtryggð húsnæðislán (jafngreiðslulán) og vita að fyrstu árin bætist lunginn af verðtryggingunni við eftirstöðvar lánsins en meginhluti greiðslnanna fer í vaxtagreiðslur. Þrátt fyrir þungar greiðslur hækka eftirstöðvarnar vegna leiðréttinga á virði þeirra. Líta má á færslu virðisbreytinga lífeyrisskuldbindinga sem leið til að ferja þá breytingu inn á höfuðstól skuldbindingar í efnahag. Þannig nam virði lífeyrisskuldbindinga í A-hluta 1.1.2025 um 38,140 ma.kr en 45,940 ma.kr. í lok tímabils 31.12.2025. En fólk spyr hvort það verði ekki að draga saman önnur rekstrarútgjöld til að mæta strax 9,9 ma.kr. gjaldfærðri virðisbreytingueða 5,3 ma.kr. taprekstri. Svo er ekki. Þrátt fyrir að gjaldfærslan nemi 9,9 ma.kr. þá nemur greiðslan á árinu um 2,1 ma.kr. sem er í takt við fjárhagsáætlun. Í ársreikningi Reykjavíkurborgar kemur fram að áætluð greiðsla áranna 2026-2030 nemur alls tæpum 13,8 ma.kr. Eldra lífeyrissjóðskerfi ríkisstarfsmanna var lokað á sama tíma og hjá starfsmönnum sveitarfélaga. Þar eru líka miklar vanfjármagnaðar lífeyrisskuldbindingar en virðisbreytingar þeirra eru ekki færðar í rekstraruppgjöri A-hluta ríkissjóðs sem er í samræmi við lögbundnar reikningsskilareglur á þeim bæ. Mismunur á lögbundnum reikningsskilareglum ríkis og sveitarfélaga að þessu leyti leiðir til mismunandi ásýndar á stöðu skulda og skuldbindinga sveitarfélaga og ríksins. Þegar nánar er skoðað þá má sjá að rekstur, sjóðstreymi og fjárhagur A-hluta borgarinnar er traustur og borgin alls ekki komin í fjárhagserfiðleika þótt alltaf séu tækifæri til að gera betur. Þannig er grunnrekstur borgarinnar (A-hluti) að skila jákvæðri niðurstöðu (EBITDA) um 7,2 ma.kr. fyrir fjármagnsliði og afskriftir sem hlýtur að teljast harla góð niðurstaða. Málaflokkarnir eru mjög nálægt því í heildina að standast áætlun . Veltufé frá rekstri A-hluta sem hlutfall af rekstrartekjum, sem sýnir hve hátt hlutfall af rekstrartekjum er til ráðstöfunar, nam um 6,9% árið 2025 sem er hæst í Reykjavík af sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu. Veltufé frá rekstri er lykilstærð og nemur um14,3 ma.kr. árið 2025 en afborganir langtímalána og skuldbindinga að viðbættu framlagi vegna lífeyrisgreiðslna nema um 11,7 ma.kr. Veltufjárhlutfall A-hluta er yfir 1 sem dregur fram getu borgasjóðs til að standa undir skammtímaskuldum og skuldbindingum næstu 12 mánuði sem er betri staða en almennt hjá sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu. Staða á handbæru fé A-hluta í lok árs 2025 nam 15,1 ma.kr. sem sýnir sterka lausafjárstöðu. Þá er skuldaviðmið A-hluta, skuldir og skuldbindingar A-hluta sem hlutfall af rekstrartekjum, enn eitt styrkleikamerkið en það er 80%. Samantekinn rekstur A-hluta og fyrirtækja í B-hluta borgarinnar var jákvæður um tæpa 8 ma.kr á árinu 2025 sem er mjög vel viðunandi. Ársreikningur Reykjavíkurborgar bæði A-hluti og samstæðu A- og B-hluta sýnir að borgin stendur fjárhagslega sterk og í algerri sérstöðu meðal íslenskra sveitarfélaga. Merki um mögulega hækkun greiðslna í framtíðinni vegna lífeyrisskuldbindinga kalla ekki á neinar bráðaaðgerðir eins og stórfelldan niðurskurð í rekstri borgarinnar. En þetta minnir á að ýmsar áhættur eru í ytra umhverfi sveitarfélaga sem eru utan valdmarka þeirra en sem þau þurfa engu að síður að fylgjast með í áhættugreiningum sínum og taka tillit til. Höfundur er hagfræðingur og fyrrv. fjármálastjóri Reykjavíkurborgar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Reykjavík Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Trúum á enn stærra og sterkara Ísland Þórður Snær Júlíusson Skoðun Hollenska húsnæðislánið Arnór Ingi Finnbjörnsson Skoðun Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir Skoðun Óvissan í alþjóðamálum - Hvað ef Norðmenn verða á undan? Dagur B. Eggertsson Skoðun Sex ýkjur nei-sinna og já-sinna Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Þögnin rofin um þjóðartekjurnar Jón Gunnar Jónsson Skoðun Komið gott Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson Skoðun Já núna – til að geta sagt nei síðar Friðrik Björgvinsson Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Þegar ríkið tekur reikninginn Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þögnin rofin um þjóðartekjurnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Falleinkunn heima, en hugurinn í Brussel Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Tökum slaginn fyrir börnin Tótla I. Sæmundsdóttir,Þorbjörg Helga Þorgilsdóttir skrifar Skoðun Óvissan í alþjóðamálum - Hvað ef Norðmenn verða á undan? Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hollenska húsnæðislánið Arnór Ingi Finnbjörnsson skrifar Skoðun Borgin þarf ekki kjötexi — hún þarf mælikerfi Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Stríð ESB gegn jöfnuði og velferð Andri Sigurðsson skrifar Skoðun Já núna – til að geta sagt nei síðar Friðrik Björgvinsson skrifar Skoðun Þegar efinn verður þýðingarmeiri en sannleikurinn Guðjón Heiðar Pálsson skrifar Skoðun Sex ýkjur nei-sinna og já-sinna Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Komið gott Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns skrifar Skoðun Sjálfstæð þjóð tekur sér sæti við borðið Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Ræður Evrópusambandið hvort dánaraðstoð verði leyfð á Íslandi? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun 4.677 nýir vegfarendur á leið í skólann Lára Hrafnsdóttir,Gunnar Geir Gunnarsson skrifar Skoðun Evran lækkar ekki vextina Magnús B. Jóhannesson skrifar Skoðun Trúum á enn stærra og sterkara Ísland Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir skrifar Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir skrifar Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Er ég að bregðast börnunum mínum með því að segja NEI? Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar Skoðun Gamli sáttmálinn og sá nýi Aðalsteinn Már Þorsteinsson skrifar Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Gervigreind, gagnaver og tækifæri Íslands Eymundur Sigurðsson skrifar Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Skoðun Áður en lengra er haldið Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Börn læra ekki fyrir framtíð sem þau skynja ekki Helgi S. Karlsson skrifar Sjá meira