Hugleiðing um barnamenningu í Mosfellsbæ í aðdraganda kosninga Guðrún Rútsdóttir skrifar 8. maí 2026 11:32 Mér hefur lengi verið barnamenning hugleikin og þá sérstaklega í Mosfellsbæ. Hér ólst ég upp og hér er ég að ala börnin mín upp. Á uppvaxtarárum mínum stundaði ég fjölda íþrótta og var í tónlistarskólanum, Barnakór Varmárskóla og Skólahljómsveitinni. Ég á margar góðar minningar og mótandi upplifanir frá þessum árum og hef lagt mig fram við að gefa börnunum mínum möguleika á slíkum upplifunum líka. Í aðdraganda bæjarstjórnarkosninga hef ég fylgst vel með stefnum, loforðum og umræðum flokkanna sem bjóða sig fram í Mosfellsbæ. Margt áhugavert hefur komið fram og það er ljóst að öll sem eru í framboði hyggjast leggja sig fram við að sinna hag bæjabúa sem best, verði þau valin til starfsins. Hér er hvatning til ykkar allra sem eru í framboði: Gefum barnamenningu meira og mikilvægara pláss í samfélaginu okkar. Bæði í umræðu nú í aðdraganda kosninga en einnig alla daga ársins. Hugtakið (barna)menning er teygjanlegt og eftir allt of langa yfirlegu hef ég kosið að skipta barnamenningu upp í íþróttir, æskulýðsstarf og listgreinar. Ég ætla hér að einbeita mér að listum tengdum barnamenningu því það er sá angi sem ég þekki best og mér finnst vanta öflugri málsvara fyrir listir í Mosfellsbæ. Í Mosfellsbæ er rekinn Listaskóli með þremur deildum: tónlistardeild, skólahljómsveit og myndlistarskóli. Hér er öflugt leikfélag sem býður m.a. upp á sumarnámskeið fyrir börn. Auk þess er Danssporið, einkarekinn dansskóli, með fjölbreytta danstíma og í World Class geta börn einnig tekið dansnámskeið. Í skólunum er svokölluð „rúlla“ með list- og verkgreinum þar sem krakkarnir einbeita sér að einni list- eða verkgrein í ákveðin tíma og skipta svo. Úrvalið er misjafnt eftir framboði kennara, skólum og skólastigi. Ýmislegt er í boði eins og þið heyrið en gera má enn betur. Takið t.d. eftir að þrátt fyrir gróskumikið kórastarf fyrir fullorðna í bænum er enginn starfandi barnakór í grunnskólum bæjarins.. Þann 1. maí birtist frábær grein á Vísi frá barnamenningarfrömuðum á Suðurlandi undir yfirskriftinni Barnamenning – Mikilvægt samkenndarafl. Þar beina greinarhöfundar sjónum sínum að því hvernig barnamenning hefur áhrif á samfélagið í heild, í dag og til framtíðar þar sem hún leggur grunninn að því að börn verði virkir og ábyrgir þátttakendur síðar á lífsleiðinni. Ég ætla ekki að endurskrifa þá grein hér, en hún er hverju orði sannari og við getum svo sannarlega lært ýmislegt af þeim á Suðurlandi. Við tölum oft um forvarnargildi íþrótta. Listgreinar hafa ekki síðra forvarnagildi. Auk þess eru mörg börn finna sig ekki í íþróttum en fá að njóta sín í listgreinum. Við í Mosfellsbæ erum í sérstakri aðstöðu búandi í miðlungsstóru samfélagi í útjaðri höfuðborgarinnar. Stutt er fyrir okkur að sækja menningu til Reykjavíkur sem getur virkað letjandi á bæjarbúa að skapa eigin menningu. Okkur stendur hins vegar ekki til boða að nýta okkur ýmis menningartilboð í höfuðborginni, svo sem að vera þátttakendur í Barnamenningarhátíð, Skrekk og öðrum slíkum viðburðum (nema þá sem áhorfendur). Eða þá sækja tónlistarkennslu í reykvísku tónlistarskólunum. Fyrir utan hversu ópraktískt það er að þurfa að fara reglulega til Reykjavíkur að sækja tómstundir. Við ættum frekar að fá nærsveitarfélögin til að flykkjast til Mosfellsbæjar til að upplifa menningu! Þess vegna er mikilvægt að við höfum öflugt barnamenningarstarf í okkar samfélagi. Umhverfi listkennslu og menningarstarfs þarf að vera aðlaðandi svo við fáum öflugt fagfólk til starfa og skapandi fólk hafi rými til að láta hugmyndir sínar verða að veruleika. Mosfellsbær á að vera spennandi kostur fyrir listgreinakennara og listamenn sem vilja vinna með börnum. Til þess þarf bæði góða aðstöðu til kennslu og viðburði og skýran vilja til uppbyggingar. Þar vil ég enn og aftur leggja áherslu á að við eignumst hentugt húsnæði fyrir Listaskólann. Um það hefur verið rætt í nær tvo áratugi án þess að nægilega mikið hafi gerst. En húsnæði eitt og sér dugar ekki. Það þarf líka samtal, samstarf, metnað og fjármagn til að skapa spennandi verkefni og öflugt menningarlíf. Við verðum að fara að huga af alvöru að uppbyggingu barnamenningar og menningar í Mosfellsbæ. Endurheimt Hlégarðs var frábær byrjun, en við þurfum meira. Svona í anda kosningabaráttunnar þá enda ég á nokkrum hugmyndum af slagorðum, fyrir stjórnmálaflokka að nýta að vild: Nýtt húsnæði til listkennslu Aukið samstarf við barnamenningarstofnanir Aukið samstarf milli barnamenningarstofnana Vettvangur til samstarfs innan lista Samkeppnishæf aðstaða og kjör barnamenningarstofnana í Mosfellsbæ við önnur sveitafélög Aukið pláss fyrir (barna)menningu í Mosfellsbæ Barnakór í alla skóla bæjarins Meiri listkennslu í grunnskólana Listir og íþróttir fyrir börn á jafnháan stall Skapandi sumarstörf hjá vinnuskólanum Aukin þátttaka í menningarverkefnum á landsvísu Höfundur er lektor í lífefnafræði, básúnuleikari og stofnandi og framkvæmdastjóri Barnadjass í Mosó sem heldur barnadjasshátíð í fjórða sinn í sumar þar sem 70 tónlistarkrakkar víðsvegar að af landinu taka þátt. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mosfellsbær Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar