Handbolti

Magnaður Haukur með tíu marka leik í mikil­vægum sigri

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Haukur Þrastarson hefur átt frábært fyrsta tímabil í Þýskalandi. 
Haukur Þrastarson hefur átt frábært fyrsta tímabil í Þýskalandi.  Getty/Uwe Anspach

Haukur Þrastarson var hreint ótrúlegur í 26-32 sigri Rhein-Neckar Löwen á útivelli gegn TVG Stuttgart í 31. umferð þýsku úrvalsdeildarinnar í handbolta.

Haukur skoraði 10 mörk úr 14 skotum og gaf að auki 5 stoðsendingar.

Haukur er lang stoðsendingahæstur í þýsku deildinni, nú kominn með 177 stoðsendingar en Gísli Þorgeir Kristjánsson er næstur á eftir honum með 131 stoðsendingu.

Markmaðurinn David Spath átti líka stórleik fyrir Rhein-Neckar Löwen og varði heil 19 skot.

Með sigrinum tók RN Löwen gott skref í átt að Evrópusæti en liðið er enn fimm stigum frá Kiel.

Á sama tíma þurfti Wetzlar, liðið sem Rúnar Sigtryggsson þjálfar, að sætta sig við sárt 31-30 tap gegn Göppingen. Ýmir Örn Gíslason er að glíma við meiðsli og tók ekki þátt í leiknum með liði Göppingen.

Wetzlar er einu stigi frá fallsæti en bæði lið í fallsætunum, Minden og Leipzig, eiga leiki til góða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×