Öll börn eiga rétt á öryggi Arna Magnea Danks skrifar 7. maí 2026 19:32 Við erum öll sammála um að leik- og grunnskólar eigi að vera öruggt umhverfi fyrir öll börn, þar sem öll börn eru boðin velkomin á sínum eigin forsendum. Og við vitum að í skólanum læra börnin okkar svo miklu meira en stærðfræði og málfræði; í skólanum læra þau líka að vera hluti af samfélagi. Þau læra samvinnu og að tileinka sér samkennd. Þau fá fræðslu um jafnréttindi, mannréttindi og lýðræði og öðlast virðingu og skilning á því að við erum öll ólík - að hvert og eitt okkar er einstakt og hvert og eitt okkar er mikilvægt. Fordómar skapa óöryggi Reykjavíkurborg gerði í september síðastliðnum þriggja ára samning við Samtökin 78 um hinseginfræðslu. Fræðslan er í höndum fagfólks sem hefur sérhæft sig í að uppræta ótta og fáfræði með upplýsingum og samtali, fagfólks sem hefur sumt hvert kynnst því á eigin skinni að fordómar geta verið lífshættulegir þeim sem fyrir þeim verða. Fólks sem velur þá leið að fræða og miðla í stað þess að svara í sömu mynt. Samtökin munu annars vegar sjá um fræðslu fyrir nemendur 3., 6. og 9. bekkja grunnskóla borgarinnar en einnig fyrir starfsfólk skóla- og frístundastarfs. Samningurinn er til þriggja ára og hljóðar upp á 15 milljónir árlega. Skólinn gegnir mikilvægu hlutverki í að undirbúa börnin okkar fyrir þátttöku í samfélaginu og samningurinn gerir leik- og grunnskólum kleift að undirbúa börnin okkar fyrir ábyrga þátttöku í fjölbreyttu samfélagi; þar sem hvert og eitt okkar skiptir máli og við eigum öll rétt á að vera við sjálf. Öll börn eru okkar eigin börn Félagshyggja byggir á þeirri grundvallarhugmynd að samfélagið beri sameiginlega ábyrgð á velferð allra, sérstaklega þeirra hópa sem einhverra hluta vegna eiga erfitt með að tryggja eigin velferð. Það á ekki bara við um börnin okkar, heldur öll þau sem tilheyra minnihlutahópum, upplifa sig á jaðrinum eða eiga fjölskyldumeðlimi sem tilheyra minnihlutahópi, svo dæmi séu tekin. Ég fagna því að Reykjavíkurborg fjárfesti í félagslegri velferð barna og forvörnum gegn fordómum og ég fagna því að borgin stígi skref í að skapa öruggt umhverfi fyrir börnin okkar, öruggara umhverfi fyrir okkur öll. Við í Vinstrinu erum skýr: Skólinn á að vera fyrir öll börn. Vinstrið velur samkennd, samvinnu og kærleik. Vinstrið velur upplýsingar í stað ótta. Höfundur skipar 5. sæti Vinstrisins og er leikkona, áhættu leikstýra, kennari og fyrirlesari. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Börn og uppeldi Skóla- og menntamál Vinstrið Reykjavík Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Arna Magnea Danks Mest lesið Trúum á enn stærra og sterkara Ísland Þórður Snær Júlíusson Skoðun Hollenska húsnæðislánið Arnór Ingi Finnbjörnsson Skoðun Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir Skoðun Óvissan í alþjóðamálum - Hvað ef Norðmenn verða á undan? Dagur B. Eggertsson Skoðun Þögnin rofin um þjóðartekjurnar Jón Gunnar Jónsson Skoðun Komið gott Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns Skoðun Sex ýkjur nei-sinna og já-sinna Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson Skoðun Tökum slaginn fyrir börnin Tótla I. Sæmundsdóttir,Þorbjörg Helga Þorgilsdóttir Skoðun Já núna – til að geta sagt nei síðar Friðrik Björgvinsson Skoðun Skoðun Skoðun Traust er ekki sjálfgefið Hilmar Freyr Gunnarsson skrifar Skoðun Evrópusambandið, skjól frá Bandaríkjunum? Guttormur Þorsteinsson skrifar Skoðun Þegar ríkið tekur reikninginn Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þögnin rofin um þjóðartekjurnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Falleinkunn heima, en hugurinn í Brussel Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Tökum slaginn fyrir börnin Tótla I. Sæmundsdóttir,Þorbjörg Helga Þorgilsdóttir skrifar Skoðun Óvissan í alþjóðamálum - Hvað ef Norðmenn verða á undan? Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hollenska húsnæðislánið Arnór Ingi Finnbjörnsson skrifar Skoðun Borgin þarf ekki kjötexi — hún þarf mælikerfi Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Stríð ESB gegn jöfnuði og velferð Andri Sigurðsson skrifar Skoðun Já núna – til að geta sagt nei síðar Friðrik Björgvinsson skrifar Skoðun Þegar efinn verður þýðingarmeiri en sannleikurinn Guðjón Heiðar Pálsson skrifar Skoðun Sex ýkjur nei-sinna og já-sinna Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Komið gott Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns skrifar Skoðun Sjálfstæð þjóð tekur sér sæti við borðið Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Ræður Evrópusambandið hvort dánaraðstoð verði leyfð á Íslandi? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun 4.677 nýir vegfarendur á leið í skólann Lára Hrafnsdóttir,Gunnar Geir Gunnarsson skrifar Skoðun Evran lækkar ekki vextina Magnús B. Jóhannesson skrifar Skoðun Trúum á enn stærra og sterkara Ísland Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir skrifar Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir skrifar Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Er ég að bregðast börnunum mínum með því að segja NEI? Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar Skoðun Gamli sáttmálinn og sá nýi Aðalsteinn Már Þorsteinsson skrifar Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Gervigreind, gagnaver og tækifæri Íslands Eymundur Sigurðsson skrifar Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Skoðun Áður en lengra er haldið Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Sjá meira