Ekki hafi tekist að sanna að brotið hafi verið á friðhelgi Páls Lovísa Arnardóttir skrifar 6. maí 2026 21:03 Páll Steingrímsson, Þóra Arnórsdóttir og Stefán Eiríksson útvarpsstjóri. Vísir Dómari í máli Páls Steingrímssonar gegn Ríkisútvarpinu og Þóru Arnórsdóttur, fyrrverandi starfsmanni RÚV, segir í niðurstöðu dómsins að ekki hafi tekist að sanna að Þóra og aðrir starfsmenn RÚV hafi brotið á friðhelgi einkalífs hans. Þau voru í dag sýknuð af öllum kröfum Páls en hann krafðist milljóna í miskabætur vegna ætlaðra brota þeirra gegn friðhelgi einkalífs hans.
Dæmt var í málinu í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Í dómi segir að eftir að hafa skoðað öll gögn málsins heildstætt hafi Páli ekki tekist að sanna að Þóra og aðrir starfsmenn RÚV hafi sýnt af sér þá háttsemi sem liggur til grundvallar miskabótakröfum hans og eru þau því sýknuð af kröfum hans. Páli er að auki gert að greiða 700 þúsund í málskostnað þeirra beggja. Páll hefur ekki tekið ákvörðun um það hvort hann áfrýjar niðurstöðu héraðsdóms. „Niðurstaðan kom mér ekki á óvart,“ segir Páll í samtali við Vísi. Það hafi yfirleitt verið þannig að hann hafi tapað sínum málum í héraðsdómi en hafi svo, sem dæmi, haft betur í Landsrétti í máli sínu gegn Aðalsteini Kjartanssyni, aðstoðarritstjóra Heimildarinnar. Þóra Arnórsdóttir segir lítið hægt að segja um dóminn í raun. „Um þennan dóm er fátt að segja því þetta mál gat aldrei farið öðruvísi. Eins og má sjá í dómsniðurstöðum þá eru þetta vangaveltur eins manns og getgátur, byggðar á bókstaflega engu. Ég held að íslensk stjórnvöld mættu íhuga innleiðingu SLAPP-laga (e. Strategic Lawsuits Against Public Participation) en ESB samþykkti nýja anti-SLAPP tilskipun fyrir um tveimur árum, sem á að verja meðal annars blaðamenn gegn misnotkun dómskerfisins. Þá væri mögulega hægt að vísa svona tilhæfulausum málum frá strax,“ segir Þóra. Krafðist fjögurra milljóna Líkt og Vísir fjallaði um á sínum tíma krafðist Páll fjögurra milljóna króna vegna meintrar byrlunar fyrrverandi eiginkonu Páls, veikinda hans í kjölfarið og meints stuldar á síma hans. Starfsmenn Ríkisútvarpsins hefðu tekið við símanum, skoðað og afritað gögn úr honum og komið þeim til blaðamanna Heimildarinnar og Kjarnans, sem hafi í framhaldinu unnið fréttir upp úr gögnunum, á meðan hann lá veikur á Landspítalanum. Í stefnu Páls sagði að á því væri byggt að um væri að ræða refsiverð og skaðabótaskyld hegningarlagabrot sem brytu gegn rétti Páls til friðhelgi einkalífs og sem ekki yrði réttlætt með heimildum blaðamanna til gagnaöflunar. Lögreglan á Norðurlandi eystra rannsakaði málið til að byrja með en rannsókn málsins var hætt í september árið 2024 eftir um þriggja ára rannsókn. Sex blaðamenn fengu réttarstöðu sakbornings í málinu auk fyrrverandi eiginkonu Páls. Ríkissaksóknari staðfesti síðar þá niðurstöðu og kom fram í afstöðu hans að rannsókn lögreglu hefði ekki leitt í ljós hver tók við síma stefnanda, mögulega afritaði hann og afhenti öðrum upplýsingar um einkamálefni stefnanda sem voru í símanum. Í dómi er nokkuð ítarlega farið yfir bæði rannsókn Lögreglunnar á Norðurlandi eystra og svo í kjölfarið skaðabótamál Páls. Í niðurstöðu dómsins segir að óumdeilt sé að Páll hafi skyndilega veikst á heimili sínu þann 4. maí 2021 og í kjölfarið verið fluttur með sjúkraflugi til Reykjavíkur. Hann hafi svo verið inniliggjandi í um viku og meðvitundarlaus í um tvo daga. Fljótlega eftir að veikindin hófust hafi fjölmiðlar svo hafið umfjöllun sem var byggð á gögnum og upplýsingum úr síma hans. Ekki sannað að síminn hafi verið í húsakynnum RÚV Í dómi er fjallað um það sem kom fram í máli fyrrverandi eiginkonu Páls og Páls sjálfs um það hvernig síminn komst þangað og hver tók við honum en líkt og kemur fram í niðurstöðu ríkissaksóknara var engin ein niðurstaða í rannsókninni um það hverjum hún afhenti símann eða hvaða fjölmiðli. Í niðurstöðu segir svo að önnur gögn málsins sem Páll hafi lagt til sönnunar styðji heldur ekki málsatvikalýsingu hans. Til dæmis verði með engum hætti ráðið af upplýsingum um þau fjarskiptamöstur sem sími hans tengdist dagana 4. til 6. maí 2021 að síminn hafi þá verið í húsakynnum stefnda RÚV. Þá segir að skeytasendingar og símtöl fyrrverandi eiginkonu hans og Þóru í ágúst til september 2021, tölvupóstsamskipti þeirra og skeytasendingar fyrrverandi eiginkonu hans við símanúmer Kveiks styðji heldur ekki atvikalýsingu hans og að þannig verði engar ályktanir dregnar af umræddum samskiptum um að Þóra eða aðrir starfsmenn RÚV hafi tekið við síma Páls, brotist inn í hann, afritað hann og sent gögn úr honum á aðra fjölmiðla. „Raunar verður ekki ráðið af gögnum málsins hvort farsíminn hafi verið afritaður í heild á umræddum tíma þótt fjölmiðlarnir […] og […] hafi birt upplýsingar úr honum á tímabilinu sem hér um ræðir,“ segir í dómi og að þegar gögn málsins séu skoðuð heildsætt hafi Páli þannig ekki tekist að sanna að Þóra eða RÚV hafi sýnt af sé þá háttsemi sem liggi til grundvallar kröfu hans til miskabóta.
Byrlunar- og símastuldarmálið Dómsmál Fjölmiðlar Samherjaskjölin Lögreglumál Mest lesið Símaupptökur úr Reykholtsmálinu: „Ekki fokking hreyfa þig eða ég mun sparka meira í þig“ Innlent Með stöðu sakbornings vegna banaslyss á Miklubraut Innlent Ekkert út á Dorriti að setja en frásögn eigenda ekki á rökum reist Innlent Skilti í setrinu á ensku: „Hjartanlega sammála því að við eigum ekki að hafa þetta svona“ Innlent Lúsmýið yrði alltaf verra en moskítóflugan Innlent Yfirheyra bandamenn sína í NATO Erlent Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Erlent Lögreglumál: Sátu fastir eftir að slökkt var á parísarhjólinu Innlent Hugmyndin góð enda hvalkjöt mun járnríkara en nautakjöt Innlent Hætta sölu til Japan: Hvalkjötið nýtt í framleiðslu bætiefnis Innlent Fleiri fréttir Fólk hélt í sér á meðan sólmyrkvinn gekk yfir Hljóðupptökur, ný vínbúð og færri sturtuðu niður yfir almyrkva Ekkert út á Dorriti að setja en frásögn eigenda ekki á rökum reist Allt gert til að stöðva birtinguna Skilti í setrinu á ensku: „Hjartanlega sammála því að við eigum ekki að hafa þetta svona“ Hjón skildu fimm ára dreng eftir í bíl: Málið á borði breskra yfirvalda Með stöðu sakbornings vegna banaslyss á Miklubraut Loka brúnni yfir Borgarfjörð í tvær nætur Um sextán þúsund greitt atkvæði utan kjörfundar Símaupptökur úr Reykholtsmálinu: „Ekki fokking hreyfa þig eða ég mun sparka meira í þig“ Hugmyndin góð enda hvalkjöt mun járnríkara en nautakjöt Ákafir þátttakendur beggja fylkinga rugli fólk viljandi í ríminu E. coli fannst í neysluvatni á Borgarfirði eystra Popúlismi í aðdraganda þjóðaratkvæðis og hvalkjöt í töfluformi Tekur við viðskiptadeild Bifrastar eftir átakavetur Engir gallar á kosningu til heimastjórnar Seyðisfjarðar Evrópuvaktin 2026: Þjóðin gengur að kjörborðinu Handtekinn vegna kannabisræktunar í Króksfjarðarnesi Bogi Ísak Nilsson er látinn Fyrsta skrefið í að kenna Íslendingum að nota fánann við fleiri tilefni Brotist inn í garnverslun í Árbæ Aðalmeðferð hefst í Reykholtsmálinu Hætta sölu til Japan: Hvalkjötið nýtt í framleiðslu bætiefnis Lögreglumál: Sátu fastir eftir að slökkt var á parísarhjólinu Lúsmýið yrði alltaf verra en moskítóflugan Viðreisn fjarlægir bænina af Facebook: „Við viljum ekki særa fólk“ Gerir upp hús hannað af Guðjóni Samúelssyni Á sjötta tug björgunarsveitarfólks kom að björguninni Ekki fleiri tilkynnt innbrot síðan 2022 „Þá er verið að hugsa um mögulegt viðbragð í neyðarástandi“ Sjá meira