„Þetta eru bestu launin, hlýjan í hjartað“ Smári Jökull Jónsson skrifar 6. maí 2026 20:36 Bella var týnd í sex sólarhringa en fannst þar sem hún var föst við grjóthrúgu á iðnaðarsvæði í Hafnarfirði. Vísir/Lýður Valberg Eigandi hundsins Bellu átti erfitt með að trúa því þegar símtal barst um að tíkin hefði fundist, sex sólarhringum eftir að hún týndist í Hafnarfirði. Tvö hundruð sjálfboðaliðar á vegum Dýrfinnu leituðu sleitulaust á erfiðu leitarsvæði og segja bestu launin vera hlýjuna í hjartað.
Bella týndist í Hafnarfirði þann 23. apríl. Leitað var til Dýrfinnu sem sérhæfir sig í leit að týndum dýrum og í kjölfarið hófst leit sem um 200 manns tóku þátt í. „Við byrjum á að gera auglýsingu og með auglýsingunni þá fáum við sjálfboðaliða og köllum til hjálp og búum til spjall. Þar bætum við inn fólki sem býðst til að koma og hjálpa og það hrúgast inn fólk sem mætir svo á svæðið,“ segir Freyja Kjartansdóttir stjórnarkona hjá Dýrfinnu. Freyja Kjartansdóttir er stjórnarkona hjá Dýrfinnu.Vísir/Lýður Valberg Svæðið sem Bella týndist á er erfitt yfirferðar en leitin vel skipulögð. Eigandi Bellu segir röð óhappaatvika hafa orðið til þess að hún slapp. „Úff þetta var bara hræðilegt allan tímann og mikil örvænting hjá okkur eigendum. Maður fer bara helst ekki af svæðinu og leitar og leitar og leitar,“ segir Lilja Dóra Halldórsdóttir. Átti erfitt með að trúa fréttunum þegar símtalið barst Bella fannst í stórgrýti á iðnaðarsvæði á völlunum á Hafnarfirði. Taumur hennar hafði þá festst og ekkert sást til hennar frá veginum. Sex sólarhringar liðu frá því að hún týndist og þar til hún fannst. Svæðið þar sem Bella fannst er stórgrýtt og sást ekki til hennar frá vegarslóðanum sem liggur þar við. Bella fékk í kjölfarið aðhlynninugu á Dýraspítalanum í Víðidal en hefur það fínt núna að sögn Lilju Dóru. Hundaeigandinn Jón Símon og labradorinn Rex voru þeir sem fundu Bellu. Lilja Dóra segist hafa átt erfitt með að trúa að Bella hefði fundist þegar símtalið barst. „Hann spurði hvort hann væri ekki að hringja í rétta Lilju. Jú, sagði ég og hann sagði þá hafa fundið Bellu,“ segir Lilja meyr. „Þá náttúrulega gerði maður sér grein fyrir því að þetta var að gerast. Við vorum einhverjum hundrað metrum frá honum þannig að hann kom akandi með hana í fanginu, hún hafði ekki viljað sitja í farþegasætinu. Hún skreið upp í fangið á honum og úr hans fangi í mitt. Þetta var algjörlega stórkostlegt.“ Jón Símon og labradorinn Rex fundu Bellu. Lilja segir björgunarsveit dýra, sem Dýrfinna sé, algjörlega ómetanlega og hvetur fólk til að styðja samtökin sem rekin eru á styrkjum og sjálfboðavinnu.“ Svo er þetta kannski allt þess virði þegar það endar svona eins og hjá Bellu? „Þetta eru bestu launin, hlýjan í hjartað,“ svarar Freyja. Freyja er nú við góða heilsu eftir að hafa fengið aðhlynningu fyrst eftir að hún fannst.Vísir/Lýður Valberg
Hundar Dýr Gæludýr Mest lesið Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Kannast ekki við lýsingar Jóns Innlent Fleiri fréttir Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Sjá meira