Aðdáunarverð þrautseigja Grindvíkinga Sigurður Helgi Pálmason skrifar 5. maí 2026 19:03 Aðstæður íbúa Grindavíkur hafa verið mér hugleiknar allt frá því jarðskjálftahrinur hófust fyrir alvöru á Reykjanesi og síðan hvert eldgosið á fætur öðru. Fyrir okkur sem búum ekki í bænum er erfitt að ímynda sér hvernig fólki líður sem gert hefur verið að rífa sig upp með rótum og yfirgefa bæinn sinn, húseignir, atvinnu og samfélag. Ég bý í Reykjanesbæ og hef horft á eldsumbrotin út um stofugluggann en það er auðvitað ekkert í samanburði við aðstæður íbúa Grindavíkur. Þessi nálægð við náttúruöflin hefur engu að síður áhrif og maður reynir eftir fremsta megni að skilja aðstæður Grindvíkinga. Það er aftur á móti ekki fyrr en maður kynnist fólkinu sem valdi að búa áfram í þessum aðstæðum að einhver skilningur vaknar á því hvað þetta ástand þýðir fyrir íbúana. Þegar rætt er við Grindvíkinga kemur fljótlega í ljós að í Grindavík er samfélag þar sem fólk stendur saman. Fólk sem lætur ekki erfiðleika skilgreina sig, heldur bregst við þeim með samstöðu og seiglu. Þetta kemur ekki á óvart þegar fólk hefur kynnt sér sögu Grindavíkur. Þar hefur alla tíð verið afskaplega samheldið samfélag. Ég hef oft spurt sjálfan mig hvort ég gæti höndlað þessar aðstæður. Tekið þá ákvörðun að halda áfram þrátt fyrir mikla óvissu og hættu. Svarið er ekki einfalt en ég ber mikla virðingu fyrir þeim sem hafa ákveðið að bjóða þessum erfiðu aðstæðum birginn. Að standa með samfélaginu Það er aðdáunarvert hvernig sum fyrirtæki í Grindavík hafa brugðist við. Fyrirtæki sem hefðu með réttu getað fært starfsemi sína annað, en ákvaðu að standa áfram með bænum. Það er á engann hallað þótt útgerðar- og fiskvinnslufyrirtækið Vísir sé nefnt sérstaklega í þessu samhengi. Undanfarin misseri hafa fjölmargar fréttir verið sagðar af því hvernig Vísir hefur tekist á við þær fordæmalausu aðstæður sem skapast hafa í Grindavík. Fyrirtækið hefur þurft að glíma við rýmingar, óvissu og truflanir á starfsemi. Þrátt fyrir það hafa stjórnendur fyrirtækisins lagt mikla áherslu á að halda rekstrinum í bænum gangandi og um leið tryggt afkomu starfsfólks. Jafnvel þótt fyrirtækið hafi neyðst til að flytja hluta starfseminnar tímabundið er áhersla lögð á að halda tengslunum við Grindavík. Sú ákvörðun endurspeglar skýra samfélagslega ábyrgð. Fyrirtækið tekur hlutverk sitt sem einn af burðarásum atvinnulífs í bænum alvarlega og það hefur uppörvandi áhrif á líf og velferð íbúanna. Vonandi bjartari tímar framundan Þegar ég heimsótti Vísi og ræddi meðal annarra við Pétur Hafstein Pálsson framkvæmdastjóra fyrirtækisins varð mér enn ljósara hversu mikið stjórnendur og starfsmenn hafa lagt á sig. Viljinn til að standa með samfélaginu er einbeittur og einlægur, bæði í orði og á borði. Staðan í Grindavík væri allt önnur í dag ef Vísir og önnur fyrirtæki í Grindavík hefðu ákveðið að flytja starfsemi sína úr bænum. Það hefðu flestir skilið slíka ákvörðun en staðfesta þessara fyrirtækja skiptir gríðarlegu máli fyrir samfélagið í bænum. Grindvíkingar eiga mikið hrós skilið fyrir staðfestu sína og trúnað við samfélagið. Þessi samstaða er ekki sjálfgefin en hún er dýrmæt og til fyrirmyndar. Að loknum sveitarstjórnarkosningum fær ný bæjarstjórn Grindavíkur vonandi skýrt umboð til að móta framtíð bæjarfélagsins. Það er mikilvægt skref. Framtíð bæjarins á að vera í höndum þeirra sem þar búa og þekkja bæinn og aðstæður best. Höfundur er þingmaður Flokks fólksins í Suðurkjördæmi Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Grindavík Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Flokkur fólksins Sigurður Helgi Pálmason Mest lesið Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? Jóhann Rúnar Pálsson Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? Jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar