Hugsum lengra en næstu kosningar Halldór Jörgen Olesen skrifar 3. maí 2026 12:32 Stjórnmálin vinna á fjögurra ára kjörtímabilum, en borgir, samgöngur og börnin okkar vinna á fjörutíu árum. Það er kominn tími til að brúa þessa gjá. Það er stundum hægt að mæla þroska samfélags í því hversu langt fram í tímann það nennir að hugsa. Um árabil hef ég unnið með fólki frá ólíkum löndum að verkefnum þar sem niðurstaðan kemur ekki í ljós á næsta ári, eða því þarnæsta, heldur einhvern tíma eftir að flest okkar eru komin annað. Það sem mér hefur orðið skýrast er þetta: bestu ákvarðanir samfélaga eru sjaldan teknar af þeim sem eiga að njóta þeirra. Þær eru gjafir frá einni kynslóð til annarrar. Þessi einfalda hugmynd virðist eiga erfitt uppdráttar í íslenskum stjórnmálum. Á árinu 2025 voru fullbúnar 3.371 íbúðir á öllu landinu eða átta prósent færri en árið áður. Sérfræðingar segja að við þurfum að byggja að minnsta kosti fimm þúsund íbúðir á ári næsta áratuginn til að halda í við fólksfjölgun. Á sama tíma rífumst við um sömu hundrað hektarana í Vatnsmýrinni, eins og við höfum gert mjög lengi. Aðalskipulag Reykjavíkur segir að flugvöllurinn fari þaðan árið 2032. Húsnæðisáætlun sömu borgar fyrir 2026–2035, kynnt í mars, gerir ráð fyrir að hann verði áfram. Þetta er ekki ágreiningur milli flokka. Þetta er borg sem talar í kross við sjálfa sig. Borgarlínan er annað dæmi. Hún var samþykkt árið 2019. Fyrstu skóflustungurnar teknar nú í vor, sjö árum síðar. Það er ekki vegna þess að verkfræðin sé flókin, Kaupmannahöfn, Helsinki og Bilbao hafa byggt sambærilegt á helmingi þess tíma. Það er vegna þess að við, sem samfélag, kunnum betur að ræða stuttu spurningarnar en þær löngu. Á hverri skóflustungu hangir kjörtímabil sem reynir að klára áður en næsta tekur við. Af hverju er þetta svona erfitt? Stjórnmál eru hönnuð fyrir stuttan tíma. Kjörtímabil er fjögur ár, fjárlög eitt ár, ríkisstjórnir lifa oft skemur en frumvarpið sem var flutt. Embættismenn eru aldir upp við að óttast pólitíska byltu meira en pólitíska kyrrstöðu. Fjölmiðlar verðlauna afmarkaða atburði eins og opnanir, mótmæli, þingmál, frekar en hægar breytingar sem aðeins sjást þegar maður stígur til baka. Þetta er ekki íslenskt vandamál eitt og sér. Þetta er vandamál lýðræðis á 21. öld. En önnur lönd eru farin að bregðast við. Wales setti á árinu 2015 lög um réttindi framtíðarkynslóða eða Well-being of Future Generations Act, sem gerir öllum opinberum stofnunum skylt að meta langtímaáhrif ákvarðana á fólk sem ekki er enn fætt. Finnska þingið hefur frá árinu 1993 starfrækt sérstaka framtíðarnefnd, Tulevaisuusvaliokunta, sem skoðar áratugaframtíðir áður en frumvörp eru lögð fram. Singapúr skipuleggur borgina sína 50 ár fram í tímann og endurskoðar áætlunina á tíu ára fresti. Ekkert af þessu er útópía. Þetta eru praktísk verkfæri sem segja: stundum þurfum við að hugsa lengra en til næstu kosninga, og við ætlum að gera þetta formfast en ekki láta það ráðast af því hvort einhver minnist á það í kosningabaráttu. Á Íslandi eigum við að geta þetta. Við erum lítil þjóð með mikinn sköpunarkraft og óvenjulegt aðgengi að okkar eigin kjörnu fulltrúum. Það ætti að vera kostur, ekki ókostur. En þá þarf samtal okkar að hætta að snúast eingöngu um næstu fjárlög og fara að snúast um næstu kynslóð. Sjávarþorpið Skerjafirði er heildstæð skipulagstillaga sem ég hef unnið að ásamt fjölda fólks, er ein tilraun til þess og dæmi um hvernig langtímahugsun gæti litið út. Hún spyr ekki bara hvar setja á íbúðir á næsta áratug, heldur hvernig á að færa Reykjavík fram um 30–40 ár í einu skrefi. Sumum mun þykja sú spurning óraunsæ. Mér finnst hún nákvæmlega það sem stjórnmál okkar þurfa að hafa hugrekki til að spyrja. Þetta vor verður kosið til borgarstjórnar. Það verður freistandi að ræða eingöngu um næstu fjögur ár. Við skulum ekki fara í þá gildru. Spyrjum frambjóðendur okkar einnar einfaldrar spurningar: Hvaða ákvörðun ert þú tilbúin að taka núna sem þú munt aldrei sjálf njóta vegna þess að hún er rétt fyrir þá sem á efir koma. Svarið við þeirri spurningu segir meira um hvern frambjóðanda en allan loforðakassann. Það er kominn tími til að hugsa lengra. Höfundur er sérfræðingur í samstarfi og einn af höfundum skipulagstillögunnar Sjávarþorpið Skerjafirði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Reykjavík Skipulag Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Þess vegna já Arnór Sighvatsson Skoðun Er Ísland Manchester City og ESB Sheffield United Gauti Eggertsson Skoðun Finnar elska ESB Halldór Jörgen Olesen Skoðun Kúnstin að naga blýanta Hrafnkell Tumi Kolbeinsson Skoðun Varanlegar undanþágur eru möguleiki Per Ekström Skoðun Það er ekki eftir neinu að bíða Trausti Hjálmarsson Skoðun Hverju erum við eiginlega að fórna fyrir „lægra atvinnuleysi“? Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Erlent vald er vesen Guðmundur Fertram Sigurjónsson Skoðun Er betra að vita en halda? Óli Rúnar Ástþórsson Skoðun Þjóðaratkvæðagreiðslan er lýðræðisleg aðferð og lærdómsferli Þorsteinn Gunnarsson Skoðun Skoðun Skoðun Þjóðaratkvæðagreiðslan er lýðræðisleg aðferð og lærdómsferli Þorsteinn Gunnarsson skrifar Skoðun Tími varanlegra undanþága er liðinn Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Málefnið liggur á götunni Steindór Þórarinsson skrifar Skoðun Finnska fordæmið – aðlögun að afnámi tollverndar eða umbreytingu stuðningskerfis? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Er betra að vita en halda? Óli Rúnar Ástþórsson skrifar Skoðun Eitt lítið og saklaust skref í einu í átt til Brussel Einar Geir Þorsteinsson skrifar Skoðun Það er ekki eftir neinu að bíða Trausti Hjálmarsson skrifar Skoðun Þess vegna já Arnór Sighvatsson skrifar Skoðun Smá standard, takk Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Erlent vald er vesen Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Hvernig getum við stöðvað innbrotaölduna í Reykjavík? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Finnar elska ESB Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Kúnstin að naga blýanta Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Hverju erum við eiginlega að fórna fyrir „lægra atvinnuleysi“? Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Upplýst lýðræði - Lærdómurinn af einni leiðréttingu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fullyrðingar utanríkisráðherra um samningssvigrúm Íslands Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þreifað á „pakkanum“ Hlín Leifsdóttir skrifar Skoðun Er Ísland Manchester City og ESB Sheffield United Gauti Eggertsson skrifar Skoðun Varanlegar undanþágur eru möguleiki Per Ekström skrifar Skoðun Hvernig lögum við vanstillt stjórnmál? Gunnar Már Gunnarsson skrifar Skoðun Gjaldþrotasaga flugfélaga er alvarleg áminning um skaða krónunnar Baldur Pétursson skrifar Skoðun Einfaldasta sagan er ekki alltaf sú sanna Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Það er ekki nóg að tala um geðheilbrigði. Það er kominn tími á aðgerðir Jóna Kristín Einarsdóttir skrifar Skoðun Hver fer í slíkar „samningaviðræður“? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sættum okkur ekki við atvinnuleysi Illugi Gunnarsson,Ragnhildur Björt Björnsdóttir skrifar Skoðun Íslenskir vefir á faraldsfæti Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Ég er ekki Evrópusinni Óðinn Freyr Baldursson skrifar Skoðun Hjarðarbólsoddi Oddur Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta snýst um aðild Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Standast orkufyrirtæki ríkisins grundvallargildi fjármálaráðherra? Embla Einarsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Þjóðaratkvæðagreiðslan er lýðræðisleg aðferð og lærdómsferli Þorsteinn Gunnarsson skrifar
Skoðun Finnska fordæmið – aðlögun að afnámi tollverndar eða umbreytingu stuðningskerfis? Erna Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Hverju erum við eiginlega að fórna fyrir „lægra atvinnuleysi“? Sveinn Atli Gunnarsson skrifar
Skoðun Gjaldþrotasaga flugfélaga er alvarleg áminning um skaða krónunnar Baldur Pétursson skrifar
Skoðun Það er ekki nóg að tala um geðheilbrigði. Það er kominn tími á aðgerðir Jóna Kristín Einarsdóttir skrifar
Skoðun Standast orkufyrirtæki ríkisins grundvallargildi fjármálaráðherra? Embla Einarsdóttir skrifar