Bensínverð hefur lækkað Lovísa Arnardóttir skrifar 2. maí 2026 07:50 Ódýrasta verðið er hjá Costoco en þar þarf þó meðlimakort. Vísir/Vilhelm Bensínverð lækkaði í gær þegar lækkun virðisaukaskatts tók gildi. Lækkunin er ein af tímabundnum aðgerðum ríkisstjórnarinnar sem eiga að mæta óvissuástandi og verðhækkunum á olíu á heimsvísu.
Virðisaukaskattur var lækkaður úr 24 prósentum í 11 prósent og verður það út sumarið eða til 31. ágúst samkvæmt tímabundinni heimild sem gefin var í lögum sem samþykkt voru á Alþingi. Samkeppniseftirlitinu hefur verið falið að fylgjast með því að lækkunin skili sér að fullu til neytenda. Fjallað var um það fyrir helgi að Samkeppniseftirlitið muni senda olíufélögum bréf eftir helgi og móta framkvæmd eftirlitsins í framhaldinu. 20 til 30 króna lækkun Á síðunni gasvaktin.is, sem sækir verð á eldsneyti hjá flestum olíufélögum, má sjá að verð hefur lækkað eftir virðisaukaskattsbreytinguna um 26 til 27 krónur lítrinn á bensíni og dísil um 30 til 32 krónur. Samkvæmt heimasíðunni er ódýrasti lítrinn af bensíni hjá Costco þar sem hann kostar 198,3 krónur en þar þarf meðlimakort til að kaupa bensín. Á almennum bensínstöðvum er ódýrasti lítrinn hjá Orkunni þar sem hann kostar 202,3 krónur. Hjá Atlantsolíu er hann á 202,4 krónur. Ódýrasti lítrinn af dísilolíu er einnig hjá Costco á 240,6 krónur en á almennum bensínstöðvum er ódýrasti lítrinn hjá Orkunni þar sem hann kostar 244,6 krónur. Ekki munar miklu hjá Atlantsolíu þar sem hann kostar 244,7 krónur. Hægt er að skoða verðið betur hér. Lækkaði um áramót en hækkaði svo Bensínverð lækkaði verulega um áramótin þegar innleiðing kílómetragjaldsins tók gildi. Í frétt sem skrifuð var á nýársdag kom fram að á stöð Orkunnar við Laugaveg í Reykjavík hafi verð á bensíni verið 308,5 krónur á næstsíðasta degi nýliðins árs en lítraverðið var komið í 212 krónur eftir miðnætti á nýju ári. Lækkunin nam um 31 prósentum. Að sama skapi fór verð á dísillítranum úr 314,2 krónum í 226,9 krónur sem var um 28 prósenta lækkun. Eftir að stríð hófst í Íran hækkaði það þó fljótt aftur. Í verðlagseftirliti ASÍ var til dæmis greint frá því í upphafi mánaðar að bensínverð hefði hækkað um 13 prósent frá áramótum eða um 24 krónur. Þar kom fram að mestar hækkanir höfðu þá verið á bensínlítranum hjá Costco sem var þó með lægsta eldsneytisverðið. Þar hækkaði lítrinn um 39 krónur á sama tíma og lægsta verð hækkaði um 27 til þrjátíu krónur hjá söluaðilum með fleiri en eina dælustöð í mars.
Bensín og olía Verðlag Fjármál heimilisins Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Bandaríkin Kílómetragjald Jarðefnaeldsneyti Neytendur Samkeppnismál Skattar, tollar og gjöld Mest lesið „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Viðskipti innlent Náðu að halda kaupunum leyndum Viðskipti innlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Live verður Lifa Viðskipti innlent Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira