Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 30. apríl 2026 11:21 Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra kynnti landsáætlunina á fundi í morgun. Vísir/Vilhelm Meðal þess sem lagt verður upp með í landsáætlun dómsmálaráðuneytisins gegn kyndbundnu ofbeldi er að skoða hvort hægt verði að nafngreina vændiskaupendur þegar mál þeirra fara fyrir dómstóla. Auk þess verður unnið að því að þyngja refsingu þannig að lágmarksrefsing fyrir vændiskaup verði fangelsi en ekki sekt.
Landsáætlun gegn kyndbundnu ofbeldi gagnvart konum 2026 til 2030 var kynnt í morgun. Um er að ræða fyrsta skiptið sem slík áætlun er sett fram og er markmiðið að vinna með heildstæðum hætti að aðgerðum gegn kynbundnu ofbeldi gegn konum á Íslandi. Samanstendur áætlunin af 25 aðgerðum sem flokkaðar eru í sjö málaflokka til að tryggja að Ísland uppfylli skilyrði Istanbúlsamningsins sem fullgiltur var á Íslandi árið 2018. Fram kemur í áætluninni að samningurinn njóti sérstöðu að því leyti að hann aðgreini ofbeldi gegn konum frá öðrum tegundum ofbeldis. Landsáætlunina má nálgast hér fyrir neðan. Landsáætlun_gegn_kynbundnu_ofbeldi_gegn_konum-300426PDF834KBSækja skjal 25 aðgerðir í sjö málaflokkum Aðgerirnar 25 eru flokkaðar í sjö málaflokka: Skilgreiningar, vernd og stuðning, forvarnir, rannsókn brota, saksókn, réttarfarsreglur og verndarráðstafanir, samhæfða stefnu og gagnaöflun, efnislegan rétt og eftirfylgni og innleiðingu landsáætlunarinnar. Fram kemur að til að tryggja markvissa framkvæmd og innleiðingu aðgerða landsáætlunarinnar og Istanbúlsamningsins verði skipaður stýrihópur undir forystu dómsmálaráðuneytisins með fulltrúum viðeigandi ábyrgðaraðila. Áætluninni verði fylgt eftir með stafrænu mælaborði sem uppfært verði reglulega um stöðu aðgerða. Þá muni ráðuneytið verja tíu milljónum árlega, samtals fimmtíu af fjárlögum, sem fari í framkvæmdasjóð landsáætlunar um aðgerðir við kynbundnu ofbeldi gegn konum. Dómsmálaráðuneytið muni auglýsa eftir umsóknum frá ráðuneytum og úthluti styrkjum til innleiðinga aðgerða. Þá kemur fram í landsáætluninni að reglur um greiðslur bóta úr ríkissjóði til þolenda verði endurskoðaðar með hagsmuni þolenda kyndbundins ofbeldis að leiðarljósi. Eðlilegt sé að minnka þær kröfur sem gerðar séu til afbrota svo ríkissjóður ábyrgist greiðslu bóta og eru nefndar í landsáætluninni dæmi líkt og brot gegn nálgunarbanni og brottvísun af heimili, umsáturseinelti og hótunarbrot sem gjarnan eigi sér stað í nánu sambandi og beinast í ríkari mæli gegn konum. Slík brot í dag skapi ekki rétt til greiðslu bóta úr ríkissjóði. Sambærilegar breytingar á vændislöggjöf og í Svíþjóð 2022 Fram kemur í áætlunnini að þrátt fyrir að hin svokallaða sænska leið hafi verið lögfest árið 2009 hafi ekki tekist að uppræta vændi. Vændiskaup varði sektum í framkvæmd nema um ítrekuð brot sé að ræða. „Komi vændiskaupamál til kasta dómstóla hafa dómarar ákveðið á grundvelli laga um meðferð sakamála að þinghald skuli vera lokað. Nafn ákærða er því hvergi birt opinberlega og kaupendur vændis njóta þ.a.l. nafnleyndar. Refsiákvæði 1. og 2. mgr. 206. gr. hegningarlaganna þjóna því illa þeim tilgangi sínum að draga úr eftirspurn eftir vændi. Aðgerðinni er því ætlað að draga frekar úr eftirspurn eftir vændi og vernda þar með konur, einkum þær sem tilheyra jaðarsettum hópum, s.s. konur í neyslu, fyrir ofbeldi.“ Segir að samskonar breyting hafi verið gerð á sænskum hegningarlögum árið 2022 og skilað góðum árangri. Fram hafi komið á Jafnréttisþingi 2025 að sænska leiðin með áorðnum breytingum virðist hafa haft kælandi áhrif á mansal í kynferðislegum tilgangi. Rannsóknir sýni að hlutfall sænskra karla sem keypt hafi vændi sé umtalsvert lægra en í öðrum ríkjum. „Samhliða því að skoðað verður hvort rétt sé að gera breytingar á lögum um meðferð sakamála nr. 88/2008 til að koma í veg fyrir að vændiskaupendur njóti nafnleyndar verður skoðað hvort gera megi breytingar til að treysta betur réttarstöðu seljenda vændis, einkum m.t.t. mála þar sem seljandi auglýsir vændi.“
Kynbundið ofbeldi Viðreisn Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Vændi Mansal Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Verði stjórnað af „róttækustu og öfgafyllstu vinstrimönnum bandarískrar sögu“ Erlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent Fleiri fréttir Fjórtán fá styrk frá Eyjólfi Karlmaður um þrítugt játar rúðubrot á Seltjarnarnesi Þriðjungur undir áhrifum í rafskútuslysum Bein útsending: 18 ára og hvað svo? Viðreisn í Kópavogi vill fresta nýjum einkunnakvarða Daði svarar fyrir Landsvirkjunarmálið Stjórnin láti hendur standa fram úr ermum við brottvísanir Mörgum þyki netspjall þægilegra en símtal Tíu tonna grjóthnullungur fór í gegnum nýja varnarvegginn Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Sjá meira