Nýr golfvöllur í Hafnarfirði Örn Geirsson skrifar 30. apríl 2026 11:50 Golfíþróttin nýtur sífellt vaxandi vinsælda, biðlistar í golfklúbba á höfuðborgarsvæðinu eru langir og dæmi um allt að 7 ára bið eftir aðild. Til að bregðast við þessu var skrifað í málefnasamning Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins í Hafnarfirði 2022-2026 „Unnið verði að skipulagi nýs golfvallar“ Bæjarráð skipaði starfshóp um nýjan golfvöll í Hafnarfirði. Meginverkefni starfshópsins var að kanna mögulegar staðsetningar fyrir nýjan golfvöll í landi Hafnarfjarðar og koma með tillögu að staðsetningu svo og að móta tillögur um gerð vallar og fyrirkomulag rekstrar á nýjum golfvelli. Eftir ítarlega greiningarvinnu starfshópsins á fjórum valkostum á staðsetningu nýs golfvallar var niðurstaðan að nýtt rúmlega 200 ha svæði sunnan og vestan Stórhöfða og austan við Krýsuvíkurveg væri besti kosturinn fyrir sameiginlegan golfvöll ætlaður Golfklúbbnum Keili og Golfklúbbnum Setbergi þar sem lagt var til að golfíþróttin í Hafnarfirði yrði rekin undir einum hatti með bestu nýtingu mannauðs, reynslu og þekkingu. Í framhaldinu var skipaður framkvæmdahópur um uppbyggingu á nýjum golfvelli í landi Hafnarfjarðar. Framkvæmdahópurinn er skipaður sex aðilum, fjórum frá Hafnarfjarðarbæ, einum frá Golfklúbbnum Keili og einum frá Golfklúbbi Setbergs. Aðalskipulag Hafnarfjarðar Forsenda þess að nýr 36 holu golfvöllur ásamt æfingarsvæði, byggingum og öðrum innviðum verði að veruleika er að gert sé ráð fyrir slíku í aðalskipulagi Hafnarfjarðar. Þetta kjörtímabil hefur verið unnið öruggum höndum undir forystu Orra Björnssonar, formanns skipulags- og byggingarráð og oddvita Sjálfstæðisflokksins að nýju aðalskipulagi fyrir Hafnarfjörð. Á síðasta fundi bæjarstjórnar Hafnarfjarðar var nýtt glæsilegt aðalskipulag samþykkt í auglýsingu. Í greinargerð með aðalskipulagstillögunni er svæðið sem nefnist „Golfvöllurinn í Snókalöndum“ 260 ha. 36 holu golfvöllur. Gert er ráð fyrir mannvirkjum, allt að 15000m2 sem tengjast starfseminni og að mögulegt verði að samnýta aðstöðu fyrir aðra útivist og íþróttir t.d. göngur, hjólreiðar, frísbígolf o.fl. Keilir – Setberg - lýðheilsa Mikil fjölgun hefur verið í golfklúbbunum Keili og Setbergi. Í Keili eru félagar 2200 og 500 á biðlista, í Setbergi eru félagar 950 og 300 á biðlista. Mikil ásókn er í rástíma og komast færri að en vilja. Báðir golfklúbbarnir eru aðilar að Íþróttabandalagi Hafnarfjaðar og hafa þeir átt stóran þátt í glæsilegri íþróttasögu Hafnarfjarðar. Rannsóknir gefa sterkar vísbendingar um að golfíþróttin stuðli að betri heilsu og vellíðan. Golfíþróttin er því sannarlega mikilvægur þáttur í að bæta lýðheilsu almennings. Golfið er almenningsíþrótt. Golfið er ekki íþrótt fárra, heldur fjöldans. Því er það afar jákvætt að ákvæðið í málaefnasamningi Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks um að unnið verði að skipulagi nýs golfvallar sé að raungerast og fleiri Hafnfirðingar fái notið þess að spila golf. Höfundur er á lista Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Hafnarfjörður Golfvellir Mest lesið Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar