„Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ Eiður Þór Árnason og Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifa 29. apríl 2026 22:13 Rúnar Gunnarsson, yfirhafnarvörður við Seyðisfjarðarhöfn. Vísir/Bjarni Samdráttur er í komum skemmtiferðaskipa á Austurlandi eftir að aukin gjaldtaka tók gildi. Breytingin hefur meiri áhrif á minni bæjarfélög, að sögn yfirhafnarvarðar. „
Sumarið leggst bara mjög vel í okkur. Við erum bjartsýn. Það hefur orðið örlítil fækkun vitaskuld eins og í öðrum höfnum á landinu. En bókunarstaðan er býsna góð miðað við ástandið. Þannig við erum bjartsýn hér á Seyðisfirði. En það er svona aðeins dekkra yfir á Borgarfirði og Djúpavogi,“ sagði Rúnar Gunnarsson, yfirhafnarvörður við Seyðisfjarðarhöfn, í kvöldfréttum Sýnar. Svokallað innviðagjald hefur verið lagt á skipin sem miðast við fjölda farþega um borð og daga í höfn. „Þetta er tvenns lags. Annars vegar er það innviðagjaldið og hins vegar eru það breytingar á virðisaukaskatti og öðru slíku. Þetta hefur fælt dálítið frá. Til dæmis á Borgarfirði þá vorum við með 22 bókanir fyrir 2026. Þær eru 12 núna. Þannig að það er 45% fækkun,“ segir Rúnar. Þá standi um 57 bókanir eftir á Djúpavogi af tæplega 70. „Þannig að þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög. Við erum heppin hér því við getum tekið við stærri skipum. Þannig að þetta hefur ekki verið eins mikið högg fyrir okkur. En sumarið hins vegar er ég mjög bjartsýnn á,“ segir hann um stöðuna á Seyðisfirði. Norræna mikill vorboði Ferjan Norræna kom til hafnar á Seyðisfirði í morgun og voru um 530 farþegar um borð. Hún byrjaði að sigla aftur til landsins fyrir rúmum mánuði. „Það er vissulega vorboðinn ljúfi eins og krían og lóan þegar ferjan kemur.“ Farþegafjöldinn helst gjarnan í kringum 500 manns fram undir júní en fer svo að aukast þegar sumaráætlun tekur gildi, að sögn Rúnars. „Þá erum við að fá svona allt að 1.000 manns á viku inn og út og svona 400 til 500 bíla.“
Múlaþing Norræna Skemmtiferðaskip á Íslandi Skattar, tollar og gjöld Ferðaþjónusta Hafnarmál Mest lesið Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Erlent Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Innlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Innlent Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Erlent Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Innlent Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur Innlent Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Innlent Fleiri fréttir Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Sjá meira