
Norræna

Tveir teknir með þýfi á leið í Norrænu
Þrír sitja nú í gæsluvarðhaldi í þágu rannsóknar Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á innbrotum í verslanir Elko í byrjun síðustu viku. Tveir þeirra voru handteknir þegar þeir voru á leið í Norrænu með hluta þýfisins. Þremur hefur þegar verið sleppt úr haldi.

Öfugþróun að minni verðmæti komi af hverjum ferðamanni
Ferðaþjónustan er að stefna í öfuga átt miðað við það markmið að hver ferðamaður skili meiri verðmætum í stað stöðugrar fjölgunar ferðamanna. Framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar segir aukna markaðssetningu einu leiðina til að snúa þessari öfugþróun við.

Svarta sviðsmyndin blasir við ferðaþjónustunni í ár
Horfur í ferðaþjónustu hafa snarversnað. Gistinóttum frá áramótum fækkaði um sex prósent og bókanir á hótelum fyrir sumarið eru tíu til fimmtán prósentum færri en á sama tíma í fyrra.

Færeyingar draga í land með ferðamannaskatt
Lögþing Færeyja hefur fallið frá áformum um að leggja á 4.500 króna aðgangseyri, 225 danskar krónur, á alla erlenda ferðamenn sem heimsækja eyjarnar. Í staðinn verður tekið upp gistináttagjald, 20 krónur danskar, um 400 krónur íslenskar, fyrir hverja nótt, þó að hámarki tíu nætur, eða um 4.000 krónur.

Færeyingar áforma 4.500 króna aðgangseyri á alla ferðamenn
Færeyskir bændur efndu til mótmælaaksturs á traktorum til Þórshafnar þegar mælt var fyrir frumvarpi landsstjórnarinnar um að leggja háan aðgangseyri á erlenda ferðamenn. Bændur og landeigendur telja frumvarpið ganga gegn stjórnarskrárvörðum rétti þeirra til að stýra sjálfir aðgengi að eigin landi.

Hálft prósent færeysku þjóðarinnar strandaglópar á Seyðisfirði
Um það bil þrjú hundruð Færeyingar ásamt fleiri farþegum ferjunnar Norrænu eru nú strandaglópar á Seyðisfirði vegna óveðurs á Fjarðarheiði. Ferjan siglir aftur úr höfn annað kvöld.

Taldi sig vera að flytja peninga í töskum sem reyndust fullar af kókaíni
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt konu í átján mánaða fangelsi fyrir að hafa reynt að smygla rúmlega tveimur kílóum af kókaíni og um sjötíu grömmum af metamfetamíni í ferð sinni með Norrænu til Íslands í september síðastliðinn.

Færeyska skipaútgerðin með átján starfsmenn í Þorlákshöfn
Færeyska skipaútgerðin Smyril Line er komin með átján starfsmenn í Þorlákshöfn. Þar segja menn að lesa megi æðaslátt efnahagslífsins úr flutningunum. Ráðmenn sveitarfélagsins vonast til að það styttist í farþegaferju til Evrópu.

Norræna hættir að sigla til Íslands yfir háveturinn
Norræna mun hætta siglingum til Íslands yfir háveturinn frá og með næsta ári.

Fundu tvö kíló af fíkniefnum í töskum móður og sextán ára sonar
Liðlega tvö kíló af amfetamíni og kókaíni fundust falin í ferðatöskum mæðgina er komu til Seyðisfjarðar með Norrænu að morgni þriðjudagsins 13. september síðastliðinn. Þetta kemur í tilkynningu frá lögreglunni á Austurlandi.

Vildu ekki sprengja upp risavaxið dópmál heldur fylgdust þolinmóð með
Héraðssaksóknari hefur gefið út ákæru á hendur fimm íslenskum karlmönnum, fyrir stórfelld fíkniefnalagabrot og skipulagða brotastarfsemi. Um er að ræða nokkur mál, sem lögregla segir sum með þeim stærstu sinnar tegundar hér á landi. Meðal þess sem greinir í ákæru er innflutningur á tugum lítra af amfetamínbasa, sem faldir voru í saltdreifara sem kom til landsins með Norrænu.

Talsvert magn fíkniefna haldlagt í Norrænu
Lögreglan á Austurlandi hefur nú til rannsóknar mál þar sem lagt var hald á talsvert magn fíkniefna í bíl í Norrænu.

Fjögurra ára fangelsi fyrir stórfellt fíkniefnasmygl með Norrænu
Karlmaður hefur verið dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyrir stórfellt fíkniefnasmygl með Norrænu. Maðurinn faldi rúma ellefu lítra af amfetamínbasa í plastflöskum í bensíntanki bifreiðar og var gripinn ásamt samverkamanni við tollskoðun.

Stórfellt fíkniefnasmygl með Smyril Line: Fjórum kílóum af kókaíni skipt út fyrir gerviefni
Karl og kona á þrítugs- og fertugsaldri hafa verið ákærð fyrir að hafa flutt inn fjögur kíló af kókaíni hingað til lands með flutningaskipinu Mistral, í eigu Smyril Line, í október á síðasta ári. Fíkniefnin fundust vandlega falin í gólfi bifreiðar við tollskoðun hér á landi.

Sætti sig ekki við fimmfalda ofrukkun og hafði betur
Viðskiptavinur ferjuflutningafélagsins Smyril Line hafði betur gegn fyrirtækinu eftir að hann sætti sig ekki við að þurfa að borga fimmtíu þúsund krónur vegna farmbréfs. Smyril Line þarf að endurgreiða manninum fjörutíu þúsund krónur.

Fjögur kíló af kókaíni í leynihólfi bíls í Norrænu
Karl og kona á þrítugs- og fertugsaldri hafa setið í gæsluvarðhaldi í þrjár vikur grunuð um stórtækt fíkniefnasmygl hingað til landsins með Norrænu. Fjögur kíló af kókaíni fundust í sérútbúnu hólfi í bíl.

Eldur um borð í Norrænu við bryggju á Seyðisfirði
Eldur kviknaði um borð í vélarrúmi Norrænu sem liggur við bryggju á Seyðisfirði á fjórða tímanum í dag. Áhöfnin í Norrænu slökktil eldinn áður en slökkviliðið á Seyðisfirði mætti á vettvang.

Hætta að skima bólusetta og börn um mánaðamótin
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur ákveðið í samræmi við tillögu sóttvarnarlæknis að halda óbreyttu fyrirkomulagi sóttvarnaraðgerða á landamærum til 1. júlí næstkomandi.

Þrír smitaðir til viðbótar í 25 manna hóp
Fimm greindust með kórónuveiruna á landamærunum á Seyðisfirði við komu Norrænu á þriðjudag. Tveir þeirra greindust er þeir komu um borð í Norrænu í Hirtshals en þrír greindust til viðbótar við komuna til Íslands. Allir fimm eru hluti af tuttugu og fimm manna hóp sem kom saman í ferjuna.

Tveir smitaðir farþegar um borð í Norrænu
Tveir farþegar í Norrænu greindust með kórónuveiruna er þeir komu um borð í ferjuna í Hirtshals í Danmörku. Farþegarnir höfðu báðir framvísað neikvæðu PCR-prófi í samræmi við reglur. Kannað verður við komuna til landsins hvort smitin eru gömul.

Mál ferðafélagans fer aftur fyrir Landsrétt
Hæstiréttur hefur ómerkt fimm ára dóm yfir Jerzy Wlodzimierz Lubaszka sem féll í Landsrétti í desember 2019.

Milljón fyrir hvern mánuð í gæsluvarðhaldi
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag íslenska ríkið til að greiða karlmanni sjö milljónir króna í bætur vegna sjö mánaða varðhalds sem hann sætti eftir að hann var handtekinn grunaður um aðild að stórfelldum fíkniefnainnflutningi árið 2017.

Tveir af tuttugu og sjö farþegum Norrænu með smit
Ekki er talin ástæða til að ætla að smit hafi borist í aðra um borð.

Smitaðir í Norrænu fóru frá borði í Færeyjum
Tveir í áhöfn Norrænu, sem von er á til Seyðisfjarðar í fyrramálið, greindust smitaðir skömmu eftir að ferjan lagði úr höfn frá Hirtshals í Danmörku á laugardag.

Sjö ára fangelsi staðfest í einu stærsta fíkniefnamáli Íslandssögunnar
Landsréttur staðfesti í dag sjö ára fangelsisdóm yfir Þjóðverjanum Heinz Bernhard Sommer fyrir smygl á tæpum fjörutíu kílóum á amfetamíni og fimm kílóum af kókaíni.

Á ekki von á grundvallarbreytingum á landamærum
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir á ekki von á því að hann leggi til einhvers konar grundvallarbreytingar á fyrirkomulagi landamæraskimuna og sóttvarna í tengslum við það

Tveir COVID smitaðir um borð í Norrænu
Áætlað er að Norræna komi til hafnar í Seyðisfirði á morgun í sinni fyrstu ferð samkvæmt vetraráætlun. Um borð eru 162 farþegar sem munu gangast undir sýnatöku vegna COVID-19 við komuna til Seyðisfjarðar.

Farþegar Norrænu brutu sóttvarnareglur og fóru í búð strax eftir komu til landsins
Nokkrir farþegar sem komu í land með Norrænu í morgun á Seyðisfirði voru ávítaðir af lögreglu eftir að þeir fóru í kjörbúð eftir komu sína til landsins og brutu þar með sóttvarnareglur

Afbókuðu ferðir eftir breyttar reglur á landamærunum
Nokkur fjöldi farþega Norrænu afbókaði ferðir sínar í gær þegar breyttar reglur varðandi komur ferðamanna til landsins voru kynntar fyrir þeim.

Bíða eftir niðurstöðu í vinnubúðum á hálendinu
Sex einstaklingar sem komu með Norrænu til landsins fóru í mótefnapróf vegna kórónuveirunnar í morgun.