„Hún er skrifuð af mér“ Tómas Arnar Þorláksson skrifar 29. apríl 2026 18:56 Orri Björnsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði, og Ásdís Kristjánsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi. Vísir/Lýður/Vilhelm Gervigreindin hefur gert vart við sig í umræðunni fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar og oft erfitt að greina hvenær frambjóðendur nota mállíkön og hvenær ekki. Einn oddviti Sjálfstæðisflokksins þvertekur fyrir það á meðan annar sér ekki eftir staðreyndavillum úr smiðju gervigreindarinnar.
Skoðanagreinar, gögn og annars konar innlegg í kosningaumræðuna hrannast inn frá bæði frambjóðendum og stuðningsmönnum fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar þann 16. maí. Sumir kjósendur reyna á meðan að greina hvort umrætt efni sé úr smiðju gervigreindarinnar eður ei. Klippa: Segist ekki sjá eftir staðreyndavillum úr smiðju gervigreindar Margrét Tryggvadóttir, formaður Rithöfundasambands Íslands, vakti athygli á skoðanagrein eftir oddvita Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi á Facebook-síðu sinni og taldi víst að hún hafi verið skrifuð af gervigreind. Hún gagnrýndi það harðlega og sagði um vanvirðingu við kjósendur að ræða. „Nei, hún er það ekki, hún er skrifuð af mér. Ég er að skrifa þessa grein byggða á okkar áherslum. Ég nýti hins vegar gervigreindina til að draga fram meginatriðin úr áherslum okkar og til að stytta texta og svo framvegis. Þetta er bara leið til að vinna með skilvirkum hætti en í raun er greinin unnin af mér,“ segir Ásdís Kristjánsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi, spurð hvort umrædd grein hafi verið skrifuð af gervigreind. Móðgandi samanburður Ásdís segir að ekki sé hægt að treysta greiningartólum í blindni til að komast að því hvort tiltekinn texti sé unninn af gervigreind eða ekki. Til að mynda prófaði hún að setja sinn texta í annað greiningartæki og þá kom fram að textinn væri unninn af manneskju. „Ég prófaði að skoða aðrar greinar sem höfðu verið skrifaðar og þá fékk ég öðruvísi niðurstöður eftir forritum. Þetta eru óáreiðanleg tól að styðja sig við.“ Finnst þér móðgandi að þín skrif séu borin saman við gervigreind? „Já, auðvitað er það móðgandi. Hún var meira að segja prófarkalesin af einstaklingi sem brá heldur betur í brún þegar hann sá þessa frétt. Það sem maður kannski sér og er mikilvægt að hafa í huga er að hér er frambjóðandi Samfylkingarinnar í Kópavogi að stíga fram og benda á þetta. Að mínu mati er verið að slá ryki í augu kjósenda að einhverju leyti,“ segir hún og á við Margréti Tryggvadóttur sem er í fjórtánda sæti á lista Samfylkingarinnar í Kópavogi. Hér má lesa umrædda grein. Merki sveitarfélaga afskræmd og fálkinn einnig Orri Björnsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði, birti mynd sem á að sýna samanburð á bið eftir leikskólaplássi á höfuðborgarsvæðinu. Eins og sjá má eru merki sveitarfélaganna breytt og fálki Sjálfstæðisflokksins líkist frekar mávi. Þá var bent á að staðreyndavillur væru í þeim tölum sem slengt er upp sem oddvitinn viðurkennir að gervigreind hafi búið til. „Þetta voru nú bara félagar mínir í SUS (Samband ungra sjálfstæðismanna) sem gerðu þessa einföldu mynd sem náði miklu flugi. Ég er íhaldsmaður og er ekkert sérstaklega hrifinn af gervigreindinni, því það eru enn þá villur í niðurstöðunum oft. Ræður eru ekki endilega vel skrifaðar eða greinar ef gervigreindin skrifar þær. Myndin er enn inni á Facebook-síðu Orra þrátt fyrir staðreyndavillur. „Það er aukaatriði í þessu máli. Við vorum að tala um bilið á milli fæðingarorlofs og leikskóla. Það er enginn vandi að leiðrétta þessar upplýsingar. Reykjavík minnir mig að hafi verið 22 mánuðir á þessari mynd en er 20,7 svo það er ekki langt á milli.“
Gervigreind Sveitarstjórnarkosningar 2026 Sjálfstæðisflokkurinn Mest lesið Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Lækkar eigin laun Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Fleiri fréttir 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum „Leiðinlegt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi“ Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Ísaksskóli eignast Ísaksskóla Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Kraumar enn í Wolt-sendlum Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Tafir á afhendingu á bóluefni við inflúensu Tilboðum hafnað í glæsibrúna en efnt til samkeppnisviðræðna Tíu mánuðir án ákvörðunar um umönnunarbilið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa BDSM á Íslandi fordæmir sýknudóm í ofbeldismáli Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Sjá meira